Opinn fundur í skólaráði

Mánudaginn 16. maí  kl. 16:15 verður haldinn fundur í skólaráði Stekkjaskóla.  Fundurinn er opinn fyrir forráðamenn sem og aðra aðila skólasamfélagsins og eru allir hjartanlega velkomnir. Fundurinn verður í  4. bekkjarstofu sem er staðsett í suðurhluta skólans. Dagskrá: Kynning á fulltrúa grenndarsamfélagsins Starfið í vetur/starfsáætlun   Áherslur næsta skólaárs  Starfsmannamál – breytingar  Skólapúlsinn – kynning á …

Opinn fundur í skólaráði Read More »

Myndataka á morgun í Stekkjaskóla þann 10. maí

Á morgun, þriðjudaginn 10. maí, verður myndataka í Stekkjaskóla. Teknar verða árgangamyndir af 1. og 4. bekk og einstaklingsmyndir af þeim sem vilja. Einnig ætlum við að fá hópmynd af öllum nemendum skólans ásamt starfsmönnum, til minningar um fyrsta starfsárið okkar. Ljósmyndarinn verður Laufey Ósk Magnúsdóttir frá Stúdíó Stund. Fyrirkomulagið er að foreldrar panta og …

Myndataka á morgun í Stekkjaskóla þann 10. maí Read More »

Þemadagar í Stekkjaskóla 26. – 28. apríl

Gleðilegt sumar Í næstu viku verða þemadagar hjá okkur í Stekkjaskóla. Foreldrum er boðið að koma og ganga á milli stöðva fimmtudaginn 28. apríl frá kl. 8:45 – 11:00. Þemað okkar tengist þeim áherslum sem við höfum verið að vinna með í þróunarverkefninu okkar Stekkur til framtíðar sem eru: • Skapandi skólastarf og fjölbreyttir kennsluhættir …

Þemadagar í Stekkjaskóla 26. – 28. apríl Read More »

Gleðilega páska

Starfsmenn Stekkjaskóla óska nemendum, forráðamönnum og velunnurum skólans gleðilegra páska. Skólastarf hefst að nýju samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 19. apríl.   Páskakveðjur  

Fréttabréf til forráðamanna

Skólastjórnendur Stekkjaskóla senda að jafnaði eitt fréttabréf í mánuði til forráðamanna. Auk þessara fréttabréfa senda umsjónarkennarar vikubréf heim í nær hverri viku eins og nafnið gefur til kynna. Hér má sjá sjötta vikubréf Stekkjaskóla.

Stekkjaskóli – laus störf skólaárið 2022-2023

Vilt þú taka þátt í því að byggja upp sterka liðsheild í nýjum grunnskóla á Selfossi? Okkur vantar öfluga og metnaðarfulla starfsmenn sem búa yfir þekkingu, reynslu og áhuga á skólastarfi: Verkefnastjóri og kennari í upplýsingatækni Umsjónarkennarar Matreiðslumaður Húsvörður Stuðningsfulltrúar Stekkjaskóli er nýr grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Í dag fer …

Stekkjaskóli – laus störf skólaárið 2022-2023 Read More »

Nýjasti grunnskólinn á Íslandi

Hundrað nem­end­ur og þrem­ur bet­ur eru í Stekkj­a­skóla á Sel­fossi; nýj­asta grunn­skóla lands­ins. Starfið hófst í ág­úst á síðasta ári og var fyrstu mánuðina í bráðabirgðahús­næði í frí­stunda­heim­il­inu Bif­röst við Tryggvagötu. Er nú komið í klasa timb­ur­húsa við Heiðar­stekk á Sel­fossi sem eru á lóðinni þar sem verið er að reisa glæsi­legt skóla­hús. Sjá nánar …

Nýjasti grunnskólinn á Íslandi Read More »

Skóladagur Árborgar miðvikudaginn 30. mars – enginn skóli og engin frístund

Skóladagur Árborgar er haldinn annað hvert ár í Árborg og er fastur liður í starfsþróun og samvinnu skóla og skólastiga. Þar mætir allt starfsfólk grunnskólanna ásamt starfsfólki frístundaheimila, frístundaklúbba, félagsmiðstöðvar og ungmennahúss. Í ár verður skóladagurinn haldinn miðvikudaginn 30. mars í Sunnulækjarskóla.  Hér má sjá nánari upplýsingar um daginn og  dagskrána má sjá  hér. Þema …

Skóladagur Árborgar miðvikudaginn 30. mars – enginn skóli og engin frístund Read More »

Upplestrarhátíð Stekkjaskóla

Föstudaginn 4.mars var fyrsta upplestrarhátíð Stekkjaskóla haldin hátíðleg. Upplestrarhátíðin eða Litla upplestrarkeppnin eins og hún er oft kölluð er haldin árlega í 4.bekk í grunnskólum landsins og er einskonar undirbúningur fyrir Stóru upplestrarkeppnina í 7.bekk. Markmið upplestrarhátíðarinnar er að ná betri árangri í lestri, munnlegri tjáningu og framkomu. Upplestrarhátíðin hefur átt langan undirbúningstíma. Umsjónarkennarar 4.bekkjar …

Upplestrarhátíð Stekkjaskóla Read More »