Haustfundir / fræðsla og kynningar fyrir forráðamenn

Í næstu viku hefjast haustfundir fyrir forráðmenn. Fyrsti fundurinn verður þriðjudaginn  6. september fyrir forráðamenn nemenda í 1. bekk. Þess má geta að Skólaþjónusta Árborgar mun taka þátt í fundum í þremur árgöngum í skólum sveitarfélagsins, 1. árgang, 4. árgang og 8. árgang. Ákveðin samræmd fræðsla verður í hverjum árgangi. Dagsetningar fundanna verða eftirfarandi: 1. …

Haustfundir / fræðsla og kynningar fyrir forráðamenn Read More »

Að hefja nám í grunnskóla – kynningarfundur fyrir forráðamenn nemenda í 1. bekk

Þriðjudaginn 6. september verður kynningarfundur fyrir forráðamenn nemenda í 1. bekk sem ber yfirskriftina ,,Að hefja nám í grunnskóla“. Hann verður haldinn í matsal skólans.  Á fundinum verða stutt fræðsluerindi frá Stekkjaskóla og Skólaþjónustu Árborgar. Þeir sem verða með innlegg verða stjórnendur skólans, umsjónarkennarar árgangsins, deildarstjóri Skólaþjónustu Árborgar, yfirsálfræðingur skólaþjónustunnar og kennsluráðgjafi. Þess má geta …

Að hefja nám í grunnskóla – kynningarfundur fyrir forráðamenn nemenda í 1. bekk Read More »

Matseðill fyrir september

Í haust byrjaði hjá okkur matreiðslumaður, Sævar Birnir Steinarsson. Hann eldar mat hjá okkur tvisvar í viku og áfram fáum við mat frá Veisluþjónustunni þrisvar í viku. Þegar við flytjum í nýbyggingu skólans um áramótin að þau mun Sævar og starfsmenn mötuneytisins sjá um alla matseld í skólanum. Hér má sjá matseðil septembermánaðar.

Brosandi nemendur mættu á skólasetningu Stekkjaskóla

Það voru glaðir nemendur sem mættu ásamt forráðamönnum sínum á skólasetningu Stekkjaskóla í dag. Í skólasetningarræðu Hilmars Björgvinssonar skólastjóra kom fram að nemendum hefur fjölgað mjög mikið frá því í fyrravetur. Í skólabyrjun er fjöldi nemanda orðinn 171 talsins í 1. – 5. bekk. Í vor voru þeir 106. Flestir nemendur eru í 1. bekk …

Brosandi nemendur mættu á skólasetningu Stekkjaskóla Read More »

Skólasetning Stekkjaskóla skólaárið 2022-2023

Stekkjaskóli verður settur þriðjudaginn 23. ágúst 2022. Kl. 9:00 Nemendur í 2. bekk, f. 2015 Kl. 10:00 Nemendur í 5. bekk, f. 2012 Kl. 11:00 Nemendur í 3.-4. bekk, f. 2013 og 2014 Skólasetning 2.-5. bekkja fer fram í matsal Stekkjaskóla. Eftir stutta samkomu munu nemendur ásamt forráðamönnum hitta umsjónarkennara. Nemendur 1. bekkjar (f. 2016) …

Skólasetning Stekkjaskóla skólaárið 2022-2023 Read More »

Skrifstofa Stekkjaskóla lokuð í dag

Skrifstofa Stekkjaskóla verður lokuð í dag, fimmtudaginn 18. ágúst, vegna endurmenntunar starfsmanna. Kl. 8:00 – 16:00 Stekkur til framtíðar á Laugarvatni. Þróunarverkefni skólans. Drög að dagskrá:  Kl. 8:20 Lagt af stað frá Stekkjaskóla.  Kl. 9:00-12:00 Vinna við þróunarverkefnið okkar, Stekkur til framtíðar. Ingvar Sigurgeirsson fyrrv. prófessor ásamt stjórnendum stýra vinnunni.  Kl. 12:00-13:00 Matur í Héraðsskólanum.  …

Skrifstofa Stekkjaskóla lokuð í dag Read More »

Sumarkveðja – Skrifstofan opnar 4. ágúst

Vonandi hafa nemendur, forráðamenn og starfsmenn haft það gott í sumarfríinu. Skrifstofa skólans opnar fimmtudaginn 4. ágúst en hún er opin á virkum dögum kl. 8:00-15:00. Skólasetning verður þriðjudaginn 23. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 24. ágúst. Nánar auglýst síðar. Njótið áfram sumarsins.

Vorhátíð og skólaslit 2022

Nú fer fyrsta starfsári Stekkjaskóla að ljúka, en árið hefur svo sannarlega verið viðburðarríkt fyrir okkur öll. Við eigum ljúfar minningar um gott skólaár, þrátt fyrir húsnæðiserfiðleika í byrjun skólaárs og heimsfaraldur sem hafði sem betur fer ekki mikil áhrif á skólastarfið í vetur. Við ljúkum skólaárinu með vordögum þann 3. og 7. júní þar …

Vorhátíð og skólaslit 2022 Read More »

Kaffihúsafundur um innra mat Stekkjaskóla

Matsteymi Stekkjaskóla stendur fyrir kaffihúsafundi um innra mat skólans miðvikudaginn 18. maí kl. 13:30-15:30. Þátttakendur verða starfsmenn og forráðamenn. Rýnt verður í niðurstöður úr starfsmannakönnun Maskínu og foreldrakönnun Skólapúlsins. Þátttakendum verður skipt upp í sex hópa með u.þ.b. 5-6 þátttakendum í hverju hópi. Hver hópur fer á sex stöðvar/stofur þar sem ræða á ákveðnar niðurstöður …

Kaffihúsafundur um innra mat Stekkjaskóla Read More »