hilmarb

Gleðilegt sumar

Stekkjaskóla var slitið í þriðja sinn við hátíðlega athöfn þann 6. júní síðastliðinn.  Á skólaslitum yngri nemenda spiluðu tveir nemendur á hljóðfæri, hún Erika Ósk Valsdóttir á fiðlu og Magni Þór Ívarsson á horn. Á skólaslitum eldri nemenda söng kór Stekkjaskóla lagasyrpu undir stjórn Stefáns Þorleifssonar. Það voru glaðir nemendur sem hlupu út í sumarið …

Gleðilegt sumar Read More »

Skólaslit fimmtudaginn 6. júní

Skólaslit Stekkjaskóla verða fimmtudaginn 6. júní samkvæmt eftirfarandi skipulagi:  1.-3. bekkur kl. 9:00  4.-6. bekkur kl. 10:00  Athöfnin fer fram í  hátíðarsal skólans.  Foreldrar og forráðamenn eru velkomnir.   

Vordagar og skólaslit

Ný styttist heldur betur í skólalok. Vordagar eru í næstu viku og skólaslit næstkomandi fimmtudag.   Dagskrá: 3. júní, mánudagur. Vordagur  4. júní, þriðjudagur. Vordagur  5. júní, miðvikudagur. Vordagur og vorhátíð.   Kl. 8:10-10:00 Nemendur í heimastofum.  Undirbúningur fyrir ratleik og andlitsmálun Kl. 10:00 – 11:00 Ratleikur nemenda með starfsfólki Kl. 11:00 – 11:30 Skemmtun/gleði í boði …

Vordagar og skólaslit Read More »

Umsjónarkennarar óskast

Auglýst er eftir umsjónarkennurum á miðstig í 100% starfshlutföll frá 1. ágúst 2024. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum grunnskólakennurum sem vilja kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf. Þekking, hæfni og áhugi á upplýsingatækni er mikilvæg ásamt þátttöku í skólaþróun. Umsóknarfrestur er til og með 27. maí …

Umsjónarkennarar óskast Read More »

Hæfileikaríkir tónlistarnemendur í Stekkjaskóla – myndir frá tónleikum

Það voru virkilega flottir nemendur sem stigu á stokk í fjölnotasal Stekkjaskóla fimmtudaginn, 2. maí og sungu og spiluðu fyrir foreldra sína og aðra gesti. Tónleikarnir byrjuðu með kór Stekkjaskóla sem söng skemmtileg og fjörug lög undir stjórn Stefáns og Alexanders frá Tónsmiðju Suðurlands.  Að því loknu spilaði fjöldinn allur af nemendum á hin ýmsu …

Hæfileikaríkir tónlistarnemendur í Stekkjaskóla – myndir frá tónleikum Read More »

Myndir frá tónleikum kórs Stekkjaskóla

Kór Stekkjaskóla hélt vortónleika sína 3. maí síðastliðinn. Tónleikarnir voru virkilega skemmtilegir með fjölbreyttu og skemmtilegu lagavali. Frábær kór með hæfileikaríkum nemendum. Nokkrir nemendur sungu einsöngva sem var virkilega vel gert. Kórinn hefur aðeins verið starfandi frá því í byrjun ársins og lofar mjög góðu. Hann mun örugglega stækka og blómstra á komandi árum. Á …

Myndir frá tónleikum kórs Stekkjaskóla Read More »

Kór Stekkjaskóla með tónleika föstudaginn 3. maí kl. 18:00

Kór Stekkjaskóla er með vortónleika föstudaginn 3. maí kl. 18:00. Þá eru foreldar, forráðamenn, afar og ömmur o.fl. velkomnir á örstutta tónleika (ca. 20-25 mínútur) þar sem við syngjum fyrir ykkur það sem við höfum verið að vinna með á vorönninni. Kannski birtast einhverjir einsöngvarar líka? Bestu kveðjur Alexander Freyr og Stefán

Tónleikar Tónlistarskóla Árnesinga og Tónsmiðju Suðurlands ásamt kór Stekkjaskóla

Fimmtudaginn, 2. maí verða tónleikar í Stekkjaskóla í samstarfi við Tónlistarskóla Árnesinga og Tónsmiðju Suðurlands. Tónleikarnir verða tvískiptir, kl. 8:30 stíga á svið nemendur í 1.-3. bekk og klukkan 9:10 nemendur í 4. – 6 bekk ásamt kór Stekkjaskóla. Foreldrum og forráðamönnum þeirra nemenda sem koma fram á tónleikunum er sérstaklega boðið. Tónleikarnir verða í …

Tónleikar Tónlistarskóla Árnesinga og Tónsmiðju Suðurlands ásamt kór Stekkjaskóla Read More »