Upplestrarhátíð Stekkjaskóla

Föstudaginn 4.mars var fyrsta upplestrarhátíð Stekkjaskóla haldin hátíðleg. Upplestrarhátíðin eða Litla upplestrarkeppnin eins og hún er oft kölluð er haldin árlega í 4.bekk í grunnskólum landsins og er einskonar undirbúningur fyrir Stóru upplestrarkeppnina í 7.bekk. Markmið upplestrarhátíðarinnar er að ná betri árangri í lestri, munnlegri tjáningu og framkomu. Upplestrarhátíðin hefur átt langan undirbúningstíma. Umsjónarkennarar 4.bekkjar …

Upplestrarhátíð Stekkjaskóla Read More »

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma 28. febrúar – glitrandi dagur

Mánudaginn 28. febrúar verður alþjóðadagur sjaldgæfra sjúkdóma haldinn hátíðlegur um allan heim og verður Ísland þar engin undantekning. Félagasamtökin Einstök börn hvetja alla til þess að klæðast einhverju glitrandi þann dag og sýna með því stuðning í verki til þeirra sem lifa með sjaldgæfum sjúkdómum eða heilkennum. Nemendur og starfsmenn Stekkjaskóla ætla að taka þátt …

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma 28. febrúar – glitrandi dagur Read More »

Vetrarfrí 21. og 22. febrúar

Vetrarfrí verður í grunnskólum Árborgar í næstu viku, dagana 21. og 22. febrúar.   Stekkjaskóli verður því lokaður þessa daga ásamt frístundarheimilinu Bjarkarbóli. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundatöflu miðvikudaginn 23. febrúar.  

Fyrsti fundur skólaráðs Stekkjaskóla

Fyrsti fundur skólaráðs Stekkjaskóla var haldinn mánudaginn 7. febrúar. Hilmar Björgvinsson skólastjóri kynnti þar fulltrúa ráðsins, hlutverk þess og drög að starfsáætlun. Einnig var farið yfir drög að skóladagatali skólaársins 2022-2023 og stöðu framkvæmda við nýbyggingu skólans. Hér má sjá fundargerðina.

Fréttabréf Stekkjaskóla – 5. tbl.

5. tbl. af fréttabréfi Stekkjaskóla til foreldra var sent út 14. febrúar.  Í fréttabréfinu eru birtar myndir úr skólastarfinu, fjallað um þróunarverkefni skólans ,,Stekkur til framtíðar“, gerð grein fyrir stöðu framkvæmda við nýbyggingu Stekkjaskóla, sagt frá fyrsta fundi foreldraráðs þar sem m.a. fór fram umræða um skóladagatal næsta skólaárs, fjallað um námsefniskynningar sem voru sendar …

Fréttabréf Stekkjaskóla – 5. tbl. Read More »

Innritun í grunnskóla skólaárið 2022-23 / Enrollment in primary school year 2022–2023 / Zapisy do szkoły podstawowej w roku szkolnym 2022−2023

Innritun barna sem eru fædd árið 2016 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2022 fer fram á Mín Árborg til 27. febrúar næstkomandi. Einnig er hægt að skrá börnin í mötuneyti á mínum síðum | Mín Árborg Skráning í frístund fer fram á skráningarvef Völu | Vala frístund – Umsóknarvefur Upplýsingar um skólahverfi hvers skóla …

Innritun í grunnskóla skólaárið 2022-23 / Enrollment in primary school year 2022–2023 / Zapisy do szkoły podstawowej w roku szkolnym 2022−2023 Read More »

Vasaljósaganga í -12°C

Úr vikubréfi 4. IM Fréttir vikunnar 7.- 11. febrúar Á þriðjudaginn var gerð heiðarleg tilraun til að skella sér í vasaljósagöngu. Þar sem veðrið var leiðinlegt nýttum við okkur ljósin á annan hátt. Ljósin í stofunni voru slökkt og notuðum við birtuna af þeim til að læra. Á miðvikudaginn fengum við gesti í heimsókn. Hópur …

Vasaljósaganga í -12°C Read More »