hilmarb

Skákkennsla fyrir grunnskólabörn hefst 5. febrúar

Laugardaginn 5. febrúar hefst skáknámskeið fyrir grunnskólabörn í Fischersetrinu á Selfossi Námsskeiðið er haldið í samstarfi við Sveitarfélagið Árborg og Skákfélag Selfoss og nágrennis. Oddgeir Ágúst Ottesen og Ingimundur Sigurmundsson hjá Skákfélagi Selfoss og nágrennis sjá um kennsluna. Þetta verða 8 skipti eða einu sinni í viku, á laugardögum frá 11:00 – 12:30 og kostar …

Skákkennsla fyrir grunnskólabörn hefst 5. febrúar Read More »

Starfsdagur og foreldradagur 3.-4. febrúar

Í janúar hefur skólastarfið gengið vel en að sjálfsögðu hefur Covid haft töluverð áhrif.  Framundan er starfsdagur og foreldradagur og þá daga er opið í frístund fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.    Starfsdagur  fimmtudaginn 3. febrúar Næstkomandi fimmtudag er starfsdagur og þá eru starfsmenn í ýmsum undirbúningi og umsjónarkennarar að undirbúa foreldraviðtöl.   …

Starfsdagur og foreldradagur 3.-4. febrúar Read More »

Fréttir frá 2.-3. ES

Umsjónarkennarar senda forráðamönnum fréttabréf að jafnaði einu sinni í viku. Fréttbréfin eru gerð í forritinu Sway sem er í Microsoft Office pakkanum. Hér má sjá fréttir frá 2.-3. ES frá 28. janúar  . Kæru foreldrar og forráðamenn! Í næstu viku, fimmtudag og föstudag, verða starfsdagar í Stekkjaskóla. Á föstudeginum verða viðtöl og í boði er …

Fréttir frá 2.-3. ES Read More »

Hinsegin vika í Árborg í fyrsta sinn

Vikuna 17.-23. janúar stendur forvarnateymi Árborgar fyrir fyrstu hinsegin vikunni sem haldin hefur verið hér í sveitarfélaginu. Vikan er til þess gerð að auka fræðslu, skapa umræður og veita stuðning til þeirra sem tengja við hinsegin málefni á einn eða annan hátt. Það verður ýmislegt á döfinni þessa viku í öllu sveitarfélaginu í leikskólum, skólum …

Hinsegin vika í Árborg í fyrsta sinn Read More »

Fréttabréf til foreldra – skráning á vinnudag

Stjórnendur Stekkjaskóla senda að jafnaði fréttabréf til foreldra einu sinni í mánuði.  Hér má sjá 4. tbl. skólaársins sem var sent út 10. janúar. Í fréttabréfi mánaðarins er m.a. sagt frá vinnudegi starfsmanna miðvikudaginn 12. janúar í tengslum við þróunarverkefnið ,,Að byggja upp lærdómssamfélag í nýjum grunnskóla“. Foreldrum er þar boðið að taka þátt. Sjá …

Fréttabréf til foreldra – skráning á vinnudag Read More »

Foreldrafélag Stekkjaskóla stofnað

Fimmtudaginn 16. desember síðastliðinn var stofnfundur foreldrafélag Stekkjaskóla . Fundurinn gekk vel fyrir sig og létt var yfir fundarmönnum. Hilmar Björgvinsson skólastjóri tók að sér fundarstjórn og Kristjana Sigríður Skúladóttir foreldri skrifaði fundargerð. Fyrst var farið yfir drög að lögum félagsins og þau samþykkt. Síðan var kosin stjórn félagsins. Pétur Aðalsteinsson var kosinn formaður og …

Foreldrafélag Stekkjaskóla stofnað Read More »

Gleðilegt nýtt ár

Starfsmenn Stekkjaskóli óska öllum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir gott samstarf á nýliðnu ári. Skólastarf hefst samkvæmt stundaskrá á morgun, þriðjudaginn 4. janúar 2022. Skólarúta fyrir börnin í dreifbýlinu gengur samkvæmt áætlun. Við viljum minna foreldra og forráðamenn á að láta vita af veikindum eða öðrum leyfum. Ný sóttvarnareglugerð tók gildi á Þorláksmessu og …

Gleðilegt nýtt ár Read More »