hilmarb

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Starfsfólk Stekkjaskóla óskar nemendum, forráðamönnum og öðrum velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.  Við þökkum fyrir ánægjulegt og gott samstarf á árinu sem er að líða og þann hlýhug sem okkur hefur verið sýndur á þessum fyrstu mánuðum í rekstri skólans. Kennsla hefst á nýju ári þriðjudaginn 4. janúar 2022 samkvæmt stundatöflu. …

Gleðileg jól og farsælt komandi ár Read More »

Stofnfundur Foreldrafélags Stekkjaskóla – skráning 

Hér með minnum við forráðamenn á stofnfund Foreldrafélags Stekkjaskóla sem verður haldinn í skólanum að Heiðarstekk 10,  fimmtudagskvöldið 16. desember kl. 20:00.    Fundarboð var sent frá undirbúningsnefnd til forráðamanna þann 8. desember. Þar kemur m.a. fram dagskrá fundarins, hversu mikilvægt er að byggja upp öflugt foreldrastarf við nýjan skóla, ósk um áhugasama foreldra í fyrstu stjórnina, persónubundnar sóttvarnir o.fl.  Sjá fundarboð …

Stofnfundur Foreldrafélags Stekkjaskóla – skráning  Read More »

Stofnfundur Foreldrafélags Stekkjaskóla

Hér með er boðað til stofnfundar Foreldrafélags Stekkjaskóla í húsnæði skólans við Heiðarstekk 10 á Selfossi  fimmtudagskvöldið 16. desember næstkomandi kl. 20:00. Undirritaðir fulltrúar úr hópi foreldra tóku að sér að undirbúa stofnun félagsins og gera drög að fyrstu lögum þess, sem fylgja með fundarboði þessu og verða borin upp til samþykktar á fundinum. Sjá nánar hér: …

Stofnfundur Foreldrafélags Stekkjaskóla Read More »

Fyrsti skóladagurinn í nýja húsnæðinu

Það var stór dagur  í Stekkjaskóla í dag þegar kennsla hófst í nýju húsnæði skólans að Heiðarstekk 10. Húsnæðið er rúmgott og fallegt og nemendur voru glaðir og spenntir þegar þeir mættu í skólann á nýjum stað. Á meðfylgjandi myndum má sjá nemendur fást við ýmis viðfangsefni. Sjá einnig frétt á www.arborg.is og foreldrabréf sem fór heim í dag.  

Til hamingju með nýtt skólahúsnæði

Mánudaginn 29. nóvember hefst skólastarfið að Heiðarstekk 10, í rúmgóðu og fallegu húsnæði. Mikið þrekvirki hefur verið unnið síðustu daga við að koma öllu í stand og undirbúa komu nemenda í skólann. Starfsdagarnir fyrir helgi voru mjög vel nýttir í þá vinnu þar sem húsgögnum og búnaði var komið fyrir á rétta staði. Starfsmönnum skólans …

Til hamingju með nýtt skólahúsnæði Read More »

Kennsla hefst í nýju húsnæði mánudaginn 29. nóvember 

Nú styttist í að kennsla hefjist í nýju húsnæði Stekkjaskóla. Síðustu daga hafa birgjar verið að keyra til okkar húsgögn og annan varning og búið er að setja saman flest húsgögn. Verið er að  leggja lokahönd á framkvæmdir.  Starfsdagar verða fimmtudaginn 26.11. og föstudaginn 27.11. Þessa daga mun flutningum ljúka og starfsmenn flytja sig frá Bifröst yfir á Heiðarstekk. …

Kennsla hefst í nýju húsnæði mánudaginn 29. nóvember  Read More »

Starfsdagar verða fimmtudaginn 26.11. og föstudaginn 27.11 vegna flutninga skólans frá Bifröst að Heiðarstekk. 

Starfsdagar verða fimmtudaginn 26.11. og föstudaginn 27.11 vegna flutninga skólans frá Bifröst að Heiðarstekk.  Á starfsdögunum verður boðið upp á viðveru fyrir nemendur sem verður mönnuð af starfsfólki frístundar og stuðningsfulltrúum skólans. Þar sem það verður í mörg horn að líta hjá starfsfólki skólans og frístundar þá óskum við eftir að þeir sem hafa tök á því …

Starfsdagar verða fimmtudaginn 26.11. og föstudaginn 27.11 vegna flutninga skólans frá Bifröst að Heiðarstekk.  Read More »

Dagur íslenskrar tungu

Haldið var upp á dag  íslenskrar tungu með ýmsum hætti í Stekkjaskóla í dag, 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar skálds.    Nemendur í 1. bekk unnu t.d. með ljóð Jónasar; Buxur, vesti, brók og skó. Buxur, vesti, brók og skó,   bætta sokka nýta,   húfutetur, hálsklút þó,   háleistana hvíta.  Umsjónarkennararnir hengdu upp ýmsan klæðnað á þvottasnúru með skírskotun í ljóðið eins og sjá má á …

Dagur íslenskrar tungu Read More »

Covid 19 – nýjar sóttvarnaráherslur

Nýjar sóttvarnarreglur tóku gildi 12. nóvember með nýrri reglugerð heilbrigðisráðuneytisins.  Sjá hér  Reglugerðin gildir frá 13. nóvember til og með 8. desember 2021. Skólinn fer yfir á stig sóttvarnasvæða. Nemendur og starfsfólk mega fara á milli svæða en ekki að nauðsynjalausu – sýna skal smitgát. Helstu áhersluþættir eru eftirfarandi: Markmiðið með reglugerðinni ,,er að hægja …

Covid 19 – nýjar sóttvarnaráherslur Read More »