Fréttasafn

Fréttir frá Stekkjaskóla

Bókun bæjarráðs um hreystivöll á skólalóð Stekkjaskóla

9 mars, 2024

Á fundi bæjarráðs Árborgar 29. febrúar var tekið fyrir erindi frá skólaráði Stekkjaskóla þar sem skorað var á bæjarráð að kom upp skólahreystivelli á skólalóðinni. Eftirfarandi var bókað: Bæjarráð fagnar því að nemendur láti sig varða um hönnun skólalóðarinnar og […]

Skertur skóladagur fimmtudaginn 7. mars

6 mars, 2024

Fimmtudaginn 7. mars er skertur skóladagur hjá nemendum skv. skóladagatali. Hefðbundnum skóladegi lýkur þá um kl. 13:00. Kennarar og aðrir uppeldismenntaðir starfsmenn í grunnskólum Árborgar verða með sameiginlega dagskrá eftir hádegi í Vallaskóla. Dagskráin er tileinkuð upplýsingatækni í skólastarfi og […]

Hinsegin vika í Árborg

24 febrúar, 2024

Hinsegin vika Árborgar verður haldin hátíðleg í þriðja sinn í sveitarfélaginu, vikuna 26. febrúar til 1. mars. Starfsmenn og nemendur Stekkjaskóla munu taka þátt í vikunni. Við ætlum að hafa Regnbogadag í Stekkjaskóla föstudaginn 1. mars og hvetjum alla að […]

Öskudagur og vetrarfrí framundan

13 febrúar, 2024

Á morgun, miðvikudaginn 14. febrúar, er öskudagurinn. Það má gera ráð fyrir því að það verði líf og fjör í skólanum eins og undanfarin ár. Við hvetjum nemendur og starfsmenn til að mæta í búningum og gera sér glaðan dag. […]

Pínulitla Mjallhvít

11 febrúar, 2024

Leikhópurinn  Lotta heimsótti Stekkjaskóla miðvikudaginn 7. febrúar með sýninguna Pínulitla Mjallhvít.  Leikritið var sýnt fyrir nemendur í 1.-4. bekk. Um var að ræða skemmtilega 30 mínútna sýningu sem var unnin uppúr sögunni um  Mjallhvíti og dvergunum sjö.   Sagan var sett upp […]

Gosmökkurinn sást frá Stekkjaskóla

10 febrúar, 2024

Eld­gosið sem hófst að morgni miðvikudagsins 8. fe­brú­ar milli Sund­hnúks og Stóra-Skóg­fells sást víða að. Nemendur og starfsmenn Stekkjaskóla sáu vel birtuna og reykjarmökkinn frá eldgosinu af efri hæð skólans. Margir nemendur fóru upp á efri hæðina og gátu séð […]

Innritun í grunnskóla skólaárið 2024 – 2025

4 febrúar, 2024

Innritun barna sem eru fædd árið 2018 og eiga að hefja skólagöngu í Sveitarfélaginu Árborg haustið 2024 fer fram á Mín Árborg til 20. febrúar næstkomandi.  Reglur um skólahverfi, innritun og umsóknir í grunnskóla Árborgar má finna hér fyrir neðan […]

Kór Stekkjaskóla

5 janúar, 2024

Í næstu viku hefjast æfingar hjá kór Stekkjaskóla. Kórinn verður fyrir nemendur í 4.-6. bekk og verða kóræfingar á fimmtudögum kl. 9:30-10:30. Kórstjórar verða: Stefán Þorleifsson kórstjórnandi, tónlistarkennari og eigandi Tónsmiðju Suðurlands og Alexander Freyr Olgeirsson gítarleikari, tónlistarkennari og forstöðumaður […]

Starfsmenn óskast í Stekkjaskóla

1 janúar, 2024

Stekkjaskóli leitar eftir öflugu starfsfólki sem er tilbúið að taka þátt í skólaþróun og byggja upp farsælt skólastarf í nýjum grunnskóla.  Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag. Hér með […]

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

22 desember, 2023

Starfsfólk Stekkjaskóla óskar nemendum, forráðamönnum og öðrum velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum fyrir ánægjulegt og gott samstarf á árinu sem er að líða. Kennsla hefst á nýju ári miðvikudaginn 3. janúar 2023. samkvæmt stundatöflu. […]

Skemmtileg litlu jól

22 desember, 2023

Það voru glaðir nemendur sem mættu prúðbúnir á litlu jólin þann 20. desember síðasliðinn.  Þeir mættu til að byrja með á stofujól á heimasvæðið sínu með bekkjarsystkinum sínum og starfsmönnum og áttu þar notarlegaog gleðilega stund saman. Jólasögur voru lesnar […]

Fréttabréf Stekkjaskóla

17 desember, 2023

Stjórnendur Stekkjaskóla senda forráðamönnum fréttabréf reglulega. Þar er sagt frá ýmsu sem varðar innra starf skólans, sagt frá liðnum viðburðum, hvað er framundan o.fl. Umsjónarkennarar senda í hverri viku fréttabréf heim til síns árgangs og síðan eru fréttir og ýmsar […]