Fréttasafn

Fréttir frá Stekkjaskóla

Stekkjaskóli – laus störf næsta skólaár. Umsóknarfrestur til og með 29. mars

18 mars, 2023

Stekkjaskóli auglýsir eftirfarandi stöður fyrir næsta skólaár: Deildarstjóri yngra stigs Náms- og starfsráðgjafi Þroskaþjálfi Umsjónarkennari á yngsta stig, ein staða Umsjónarkennarar á miðstig, 3 stöður Íþróttakennarar, 2 stöður Stuðningsfulltrúi, 75% staða Sjá nánar hér: https://sveitarfelagid-arborg.alfred.is/  og auglýsinguna hér fyrir neðan. …

Stekkjaskóli – laus störf næsta skólaár. Umsóknarfrestur til og með 29. mars Read More »

Kostir þess að leika og læra í náttúrunni

18 mars, 2023

Hreyfifærni í dag og til framtíðar Fræðslukvöld í nýjum og glæsilegum húsakynnum Stekkjaskóla Þriðjudaginn 28. mars kl. 20:00 Allir velkomnir Stjórnir foreldrafélaga Stekkjaskóla og Jötunheima

Stekkjaskóli flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði

17 mars, 2023

Þessa dagana eru merkilegir tímar í sögu Stekkjaskóla. Flutningar standa yfir í nýtt og glæsilegt skólahúsnæði og mun kennsla hefjast þar miðvikudaginn 22. mars.  Öryggisúttekt og starfsleyfi   Fimmtudaginn 16. mars fór fram öryggisúttekt á nýbyggingunni og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gerði sína …

Stekkjaskóli flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði Read More »

Fulltrúar skólaráðs skoðuðu nýbygginguna

10 mars, 2023

Skólaráð fundaði 23. febrúar síðastliðinn. Í lok fundarins fóru fulltrúar að skoða nýbyggingu skólans. Fulltrúar nemenda í skólaráði, Ragna Fanney og Stefán Darri skrifuðu neðangreinda frétt um heimsóknina. Heimsókn í Stekkjaskóla Fimmtudaginn 23. febrúar fór skólaráð Sekkjaskóla í  heimsókn í …

Fulltrúar skólaráðs skoðuðu nýbygginguna Read More »

Vetrarfrí 27.-28. febrúar

27 febrúar, 2023

Dagana 27. og 28. febrúar er vetrarfrí í grunnskólum Árborgar samkvæmt skóladagatali.  Skólastarf hefst á ný miðvikudaginn 1. mars samkvæmt stundaskrá.Með óskum um ánægjulegt vetrarfrí,starfsfólk Stekkjaskóla

Innritun í grunnskóla skólaárið 2023-2024

9 febrúar, 2023

Innritun barna sem eru fædd árið 2017 og eiga að hefja skólagöngu í Árborg haustið 2023 fer fram á arborg.is/Mín Árborg til 20. febrúar næstkomandi.  Skráning fyrir skólagöngu barna í Sveitarfélaginu Árborg á Mín Árborg Einnig er hægt að skrá …

Innritun í grunnskóla skólaárið 2023-2024 Read More »

100 daga hátíð

8 febrúar, 2023

Um daginn hélt 1. HIJ upp á það að liðnir voru 100 dagar frá því að skólinn byrjaði. Hér má sjá frétt frá umsjónarkennurum um það sem gert var í tilefni dagsins: Við héldum upp á það að við erum …

100 daga hátíð Read More »

Appelsínugul veðurviðvörun í fyrramálið

6 febrúar, 2023

App­el­sínu­gul veðurviðvör­un er í gildi frá 06:00 til 09:30 í fyrra­málið, þriðju­dag­inn 7. fe­brú­ar. For­ráðamenn þurfa að meta sjálf­ir hvort fylgja þurfi börn­um í skóla eða frí­stund­astarf. Við app­el­sínu­gula veðurviðvör­un er meiri þörf á að fylgja börn­um í skól­ann. Ef …

Appelsínugul veðurviðvörun í fyrramálið Read More »

Matráður óskast

6 febrúar, 2023

Stekkjaskóli óskar eftir að ráða matráð í 50-80% starfshlutfall frá og með 1. mars eða eftir nánara samkomulagi. Leitað er að metnaðarfullum, barngóðum og jákvæðum einstaklingi sem er staðgengill matreiðslumanns.   Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2023.  Sjá nánar …

Matráður óskast Read More »

Starfsdagur 2. febrúar og foreldradagur 3. febrúar

1 febrúar, 2023

Starfsdagur verður í Stekkjaskóla fimmtudaginn 2. febrúar.  Þennan dag eru starfsmenn í ýmsum undirbúningi og eru umsjónarkennarar að undirbúa foreldraviðtöl. Einhver foreldraviðtöl verða einnig þennan dag.  Föstudaginn 3. febrúar er foreldradagur þar sem umsjónarkennarar hitta nemendur ásamt forráðamönnum. Umsjónarkennarar sendu …

Starfsdagur 2. febrúar og foreldradagur 3. febrúar Read More »

Skólastarf með óbreyttum hætti í dag – hugsanlegar tafir á skólaakstri úr dreifbýlinu

31 janúar, 2023

Veðrið á Selfossi er að mestu gengið niður.  Skólastarf verður með óbreyttum hætti í dag þriðjudaginn 31. janúar. Mögulegar verða einhverjar tafir á skólaakstri úr dreifbýlinu nú  í morgunsárið en stefnt er á að koma öllum nemendum í skóla. (Birt …

Skólastarf með óbreyttum hætti í dag – hugsanlegar tafir á skólaakstri úr dreifbýlinu Read More »

Úr vikubréfum umsjónarkennara

28 janúar, 2023

Í hverri viku senda umsjónarkennarar fréttabréf til forráðamanna. Hér eru nokkrir punktar úr vikubréfinunum og myndir fyrir neðan. 1. árgangur Íslenska: Þessa vikuna voru lagðir inn stafirnir Éé og Hh og unnið með þá á margvíslegan hátt. Unnið var með …

Úr vikubréfum umsjónarkennara Read More »