Fréttasafn

Fréttir frá Stekkjaskóla

Glöð börn á skólakynningu

12 júní, 2021

Það voru glöð og spennt börn sem mættu á skólakynningu með foreldrum sínum miðvikudaginn 2. júní. Börnin eru að byrja í 1. bekk í Stekkjaskóla í haust og þar með að hefja sína 10 ára grunnskólagöngu. Að kynningunni stóðu Hilmar […]

Byggingaframkvæmdir

8 júní, 2021

Hér má sjá nokkrar myndir sem voru teknar af byggingaframkvæmdum þann 8. júní. Annars vegar þar sem verið er að ganga frá undirstöðum fyrir færanlegar kennslustofur og hins vegar framkvæmdir við 1. áfanga skólans sem verður tilbúinn 31. júní 2022. […]

Skólakynningar

21 maí, 2021

Miðvikudaginn 2. júní og mánudaginn 7. júní verða skólakynningar fyrir forráðamenn barna sem fara í  Stekkjaskóla næsta haust. Þar munu skólastjórnendur kynna skólastarfið á komandi vetri, húsnæði og skólalóð. Kynningin fyrir forráðamenn nemenda 1. bekkja verður jafnframt fyrir nemendur í […]

ÞG-verk byggir fyrsta áfanga Stekkjaskóla

21 maí, 2021

Fyrr í mánuðinum var skrifað undir verksamning við ÞG-verk um byggingu á Stekkjaskóla í Björkurstykki. Verkið felst í byggingu fyrsta áfanga nýs skóla í Björkurstykki á Selfossi. Byggingin er í nýju hverfi sem er í uppbyggingu sunnan við núverandi byggð […]

Öflugur starfsmannahópur

16 maí, 2021

Nú er búið að ráða allt starfsfólk Stekkjaskóla fyrir næsta skólaár. Mjög margir öflugir umsækjendur sóttu um og það var ánægjulegt hvað margir vildu taka þátt í að byggja upp skólastarf í nýjum grunnskóla.  Við viljum nota tækifærið að þakka […]

Foreldrahandbók frístundar

16 maí, 2021

Sunna Ottósdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður frístundar Stekkjaskóla. Við bjóðum hana hjartanlega velkomna til samstarfs og hlökkum til að vinna með henni.  Frístundin verður starfrækt næsta skólaár í Stekkjaskóla fyrir yngri nemendur en í Vallaskóla fyrir þau eldri. Um daginn […]

Viðurkenning fyrir nafnið ,,Stekkjaskóli“

13 maí, 2021

Fyrir nokkru síðan var haldin nafnasamkeppni um nafn á nýja skólann okkar. Alls bárust 33 tillögur að nafni og voru tveir sem áttu vinningstillöguna sem varð fyrir valinu en grunnskólinn hlaut nafnið Stekkjaskóli. Það var Ingveldur Guðjónsdóttir sem dregin var […]

Vorskóla 1. bekkja aflýst – kynningar fyrir forráðamenn

12 maí, 2021

Fyrirhugað var að halda vorskóla fyrir nemendur verðandi 1.bekkjar Stekkjaskóla í byrjun maí. Vegna aðstæðna í samfélaginu og C-19 smita í nærumhverfinu var ákveðið að fresta honum eins og kom fram í bréfi til forráðamanna 23. apríl síðastliðinn. Ekki var […]

Upplýsingabréf til forráðamanna

4 maí, 2021

Hér má sjá upplýsingabréf sem skólastjórnendur Stekkjaskóla sendu forráðamönnum 29. apríl síðastliðinn.

Kynningar á Stekkjaskóla í fræðslunefnd

29 apríl, 2021

Miðvikudaginn 21. apríl kynntu Atli Marel Vokes, sviðsstjóri mannvirkja- og umhverfissviðs og Hilmar Björgvinsson, skólastjóri Stekkjaskóla, undirbúningsvinnu Stekkjaskóla á fundi fræðslunefndar. Atli fór vel yfir stöðu framkvæmda við kennslustofurnar sem verða teknar í notkun um mánaðarmótin júli/ágúst. Einnig sagði hann […]

Hvernig lítur Stekkjaskóli út á næsta skólaári?

21 apríl, 2021

Nú eru komnar myndir af skólalóð Stekkjaskóla og færanlegu kennslustofueiningunum sem verða notaðar á næsta skólaári. Okkur skólastjórnendum líst mjög vel á hvernig til hefur tekist. Sjá nánar frétt  hér.

Stekkjaskóli fær styrk úr Sprotasjóði

16 apríl, 2021

Verkefni skólans heitir; Að byggja upp lærdómssamfélag í nýjum grunnskóla.  Eins og nafnið gefur til kynna verður unnið með hugmyndafræði lærdómssamfélagsins   (e. professional  learning community) frá stofnun Stekkjaskóla haustið 2021 með því að byggja upp traust og samstarfshugsun frá upphafi. Mótuð […]