Fréttasafn
Fréttir frá Stekkjaskóla
Til hamingju með nýtt skólahúsnæði
Mánudaginn 29. nóvember hefst skólastarfið að Heiðarstekk 10, í rúmgóðu og fallegu húsnæði. Mikið þrekvirki hefur verið unnið síðustu daga við að koma öllu í stand og undirbúa komu nemenda í skólann. Starfsdagarnir fyrir helgi voru mjög vel nýttir í […]
Kennsla hefst í nýju húsnæði mánudaginn 29. nóvember
Nú styttist í að kennsla hefjist í nýju húsnæði Stekkjaskóla. Síðustu daga hafa birgjar verið að keyra til okkar húsgögn og annan varning og búið er að setja saman flest húsgögn. Verið er að leggja lokahönd á framkvæmdir. Starfsdagar verða fimmtudaginn 26.11. og föstudaginn […]
Starfsdagar verða fimmtudaginn 26.11. og föstudaginn 27.11 vegna flutninga skólans frá Bifröst að Heiðarstekk.
Starfsdagar verða fimmtudaginn 26.11. og föstudaginn 27.11 vegna flutninga skólans frá Bifröst að Heiðarstekk. Á starfsdögunum verður boðið upp á viðveru fyrir nemendur sem verður mönnuð af starfsfólki frístundar og stuðningsfulltrúum skólans. Þar sem það verður í mörg horn að […]
Dagur íslenskrar tungu
Haldið var upp á dag íslenskrar tungu með ýmsum hætti í Stekkjaskóla í dag, 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar skálds. Nemendur í 1. bekk unnu t.d. með ljóð Jónasar; Buxur, vesti, brók og skó. Buxur, vesti, brók og skó, bætta sokka nýta, húfutetur, hálsklút þó, háleistana hvíta. Umsjónarkennararnir […]
Covid 19 – nýjar sóttvarnaráherslur
Nýjar sóttvarnarreglur tóku gildi 12. nóvember með nýrri reglugerð heilbrigðisráðuneytisins. Sjá hér Reglugerðin gildir frá 13. nóvember til og með 8. desember 2021. Skólinn fer yfir á stig sóttvarnasvæða. Nemendur og starfsfólk mega fara á milli svæða en ekki að […]
Skemmtilegur bangsa- og náttfatadagur
Um daginn var bangsadagur og þá máttu nemendur jafnframt koma í náttfötum. Vallaskóli bauð nemendum Stekkjaskóla á náttfataball sem var virkilegt ánægjulegt og skemmtilegt. Við þökkum Vallaskóla kærlega fyrir gott boð. Hér má sjá nokkrar myndir.
Ýmsar furðuverur
Um daginn var hrekkjavökudagur í Stekkjaskóla. Dagurinn var hinn skrautlegasti og margir voru í skemmtilegum búningum. Sumir voru alveg óþekkjanlegir. Í frístundinni voru síðan ýmsar hræðilegar veitingar sem Krystina í eldhúsinu sá um s.s. bakaðir puttar. Annars var dagurinn hinn […]
Styttist í flutninga
Þær gleðilegu fréttir fengust í vikunni að nú styttist í það að skólahúsnæði Stekkjaskóla verði tilbúið. Í næstu viku verður gerð öryggisúttekt á skólahúsnæðinu og í framhaldi af henni mun Heilbrigðiseftirlitið taka húsnæðið út. Þegar allt verður eins og það […]
Matseðill nóvembermánaðar
Hér má sjá matseðil nóvembermánaðar.
Starfsdagur og foreldradagur, 1.-2. nóvember
Mánudaginn 1. nóvember er starfsdagur í Stekkjaskóla og þá eru starfsmenn að vinna að ýmsum verkefnum og umsjónarkennarar að undirbúa foreldraviðtöl. Einhver foreldraviðtöl eru jafnframt þennan dag eftir hádegi. Þriðjudaginn 2. nóvember er foreldradagur þar sem umsjónarkennarar hitta nemendur ásamt […]
Verkefni í tónmennt
Nemendur í 2. og 3. bekk fengu það verkefni um daginn að teikna örugga staðinn sinn útfrá laginu Myndin hennar Lísu eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur. Verkin hanga til sýnis inni í tónmenntarstofu. Lagið Myndin hennar Lísu er búið að vera óopinbert lag mánaðarins nú í október, svo allir nemendur ættu að kunna að syngja það eða allavega þekkja það. Hér er linkur á undirspil, ef ykkur langar til þess að syngja lagið með börnunum. Myndin hennar Lísu Gult fyrir sól, grænt fyrir líf, grátt fyrir þá sem reka menn út í stríð. Hvítt fyrir börn, sem biðja um frið biðja þess eins að fá að lifa’ eins og við. Er ekki jörðin fyrir alla? Taktu þér blað, málaðu’ á það mynd þar sem að allir eiga öruggan stað. Augu svo blá, hjörtu sem slá hendur sem fegnar halda frelsinu á. Þá verður jörðin fyrir alla. Olga Guðrún Árnadóttir […]
Pizzubakstur, hópefli o.fl. hjá 1. EIK
Það var margt um að vera í námi og leik hjá nemendum 1. EIK í síðustu viku. Í vikubréfi umsjónarkennara, 22. október, stendur m.a. : Þessa vikuna lék veðrið við okkur og fórum við út í Gesthúsaskóg að leika í […]