Fréttasafn
Fréttir frá Stekkjaskóla
Fréttabréf foreldrafélagsins
Stjórn foreldrafélags Stekkjaskóla hefur staðið fyrir góðu starfi á nýliðnu skólaári. Foreldrafélagið hélt m.a. fræðsluerindi um mikilvægi hreyfingar úti í náttúrunni, aðstoðaði við vorhátíð skólans og hélt utan um tengslastarfið sem er gífurlega mikilvægt. Hér má sjá nýtt fréttabréf foreldrafélagsins […]
Skólaslit miðvikudaginn 7. júní kl. 9:00
Skólaslit Stekkjaskóla verða í matsal Stekkjaskóla kl. 9:00 miðvikudaginn 7. júní fyrir alla nemendur skólans. Foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomnir.
Vorhátíð þriðjudaginn 6. júní
Þriðjudaginn 6. júní verður vorhátíð Stekkjaskóla. Skóladagurinn byrjar að venju kl. 8:10 í heimastofum nemenda. Kl. 8:40 – 11:10 – Nemendur fara á milli stöðva, í leiki og fleira fjör. Kl. 11:10 -12:00 – Foreldrafélagið býður upp á dagskrá. Slökkvilið, […]
Opið hús í Stekkjaskóla 1. júní
Opið hús verður í Stekkjaskóla fimmtudaginn 1. júní kl. 14:00-16:00. Íbúar Árborgar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að koma og skoða þennan nýjasta grunnskóla landsins sem er hannaður sem teymiskennsluskóli.
Dýrin í Hálsaskógi í flutningi nemenda í 5. AI
Fimmtudaginn 27. apríl var árshátíð 5. bekkjar. Nemendur sýndu leikritið Dýrin í Hálsaskógi. Nemendur sáu um handritsgerð, leikmuni og búningahönnun og æfðu leikritið og sönginn mjög vel undir stjórn kennaranna sinna, stuðningsfulltrúa, tónmenntakennara o.fl. Jafnframt voru margir nemendur duglegir að […]
Árshátíð 2. bekkjar
Miðvikudaginn 26. apríl var árshátíð 2. EK. Þetta var jafnframt fyrsta árshátíðin þetta skólaár og fyrsta árshátíðin í nýju skólabyggingunni okkar. Nemendur byrjuðu á því að syngja öll saman eitt lag og í framhaldinu sýndu þeir nokkra leikþætti á skjá […]
Horfið á fyrirlesturinn ,,Samvinna barnanna vegna“ hér á heimasíðunni
Þriðjudaginn 25. apríl var haldinn fundur í Árborg á vegum Heimili og skóla, landssamtaka foreldra. Fundurinn var ætlaður forsjáraðilum barna í grunnskólum, leikskólum, framhaldsskóla, frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum sem tilheyra Árborg. Fundurinn fjallaði um endurreisn foreldrastarfs í kjölfar heimsfaraldurs, mikilvægi foreldrastarfs […]
Samvinna barnanna vegna / Cooperation for our children
Kæru foreldrar og forráðamenn, nemenda í Stekkjaskóla Þriðjudaginn 25. apríl kl. 20:00-21:15 verður fræðslufundur fyrir foreldra og forsjáraðila í Árborg með Heimili og skóla haldinn í Vallaskóla Hvernig get ég sem foreldri lagt mitt að mörkum til að auka vellíðan […]
Skrifstofa skólans lokuð frá kl. 11:30 í dag
Vegna náms- og kynnisferðar starfsmanna skólans verður skólinn lokaður frá kl. 11:30 í dag. Kennsla hefst aftur skv. stundaskrá mánudaginn 24. apríl. Sjá nánar hér.
Skertur dagur miðvikudaginn 19. apríl – starfsdagur 21. apríl
Miðvikudaginn 19. apríl er skertur dagur í Stekkjaskóla skv. skóladagatali og lýkur skóla kl. 11:20 ( allir nemendur fá hádegismat fyrir heimferð). Föstudaginn 21. apríl er starfsdagur og enginn skóli. Starfsfólk skólans er að fara í náms- og kynnisferð til […]
Ein stór fjölskylda
Nemendur og starfsmenn Stekkjaskóla fengu aldeilis frábæra gesti þriðjudaginn 28. mars síðastliðinn. Það voru félagarnir Gunnar Helgason og Felix Bergsson sem komu og fluttu dagskrána Ein stór fjölskylda fyrir alla nemendur og starfsmenn skólans. Gunnar sem er leikari og rithöfundur […]
Gleðilega páska
Starfsmenn Stekkjaskóla óska nemendum, forráðamönnum og velunnurum skólans gleðilegra páska. Páskafrí er dagana 1.-10. apríl. Skólastarf hefst að nýju samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 11. apríl. Páskakveðjur