hilmarb

Stekkjaskóli flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði

Þessa dagana eru merkilegir tímar í sögu Stekkjaskóla. Flutningar standa yfir í nýtt og glæsilegt skólahúsnæði og mun kennsla hefjast þar miðvikudaginn 22. mars.  Öryggisúttekt og starfsleyfi   Fimmtudaginn 16. mars fór fram öryggisúttekt á nýbyggingunni og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gerði sína úttekt föstudaginn 17. mars. Báðar þessar úttektir gengu eins og í sögu og fær skólinn …

Stekkjaskóli flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði Read More »

Fulltrúar skólaráðs skoðuðu nýbygginguna

Skólaráð fundaði 23. febrúar síðastliðinn. Í lok fundarins fóru fulltrúar að skoða nýbyggingu skólans. Fulltrúar nemenda í skólaráði, Ragna Fanney og Stefán Darri skrifuðu neðangreinda frétt um heimsóknina. Heimsókn í Stekkjaskóla Fimmtudaginn 23. febrúar fór skólaráð Sekkjaskóla í  heimsókn í nýju bygginguna. Allir þurftu að vera með hjálma og vesti. Þegar í bygginguna var komið …

Fulltrúar skólaráðs skoðuðu nýbygginguna Read More »

Vetrarfrí 27.-28. febrúar

Dagana 27. og 28. febrúar er vetrarfrí í grunnskólum Árborgar samkvæmt skóladagatali.  Skólastarf hefst á ný miðvikudaginn 1. mars samkvæmt stundaskrá.Með óskum um ánægjulegt vetrarfrí,starfsfólk Stekkjaskóla

Innritun í grunnskóla skólaárið 2023-2024

Innritun barna sem eru fædd árið 2017 og eiga að hefja skólagöngu í Árborg haustið 2023 fer fram á arborg.is/Mín Árborg til 20. febrúar næstkomandi.  Skráning fyrir skólagöngu barna í Sveitarfélaginu Árborg á Mín Árborg Einnig er hægt að skrá börnin í mötuneyti á Mín Árborg. Skráning í frístund fer fram á skráningarvef Völu. Upplýsingar um skólahverfi hvers …

Innritun í grunnskóla skólaárið 2023-2024 Read More »

100 daga hátíð

Um daginn hélt 1. HIJ upp á það að liðnir voru 100 dagar frá því að skólinn byrjaði. Hér má sjá frétt frá umsjónarkennurum um það sem gert var í tilefni dagsins: Við héldum upp á það að við erum búin að vera 100 daga í skólanum. Það var mjög gaman og við fengum að …

100 daga hátíð Read More »

Appelsínugul veðurviðvörun í fyrramálið

App­el­sínu­gul veðurviðvör­un er í gildi frá 06:00 til 09:30 í fyrra­málið, þriðju­dag­inn 7. fe­brú­ar. For­ráðamenn þurfa að meta sjálf­ir hvort fylgja þurfi börn­um í skóla eða frí­stund­astarf. Við app­el­sínu­gula veðurviðvör­un er meiri þörf á að fylgja börn­um í skól­ann. Ef hálka eða ofan­koma fylg­ir veðrinu aukast lík­ur á að þörf sé fyr­ir fylgd. For­sjáraðilar þurfa …

Appelsínugul veðurviðvörun í fyrramálið Read More »

Matráður óskast

Stekkjaskóli óskar eftir að ráða matráð í 50-80% starfshlutfall frá og með 1. mars eða eftir nánara samkomulagi. Leitað er að metnaðarfullum, barngóðum og jákvæðum einstaklingi sem er staðgengill matreiðslumanns.   Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2023.  Sjá nánar hér.

Starfsdagur 2. febrúar og foreldradagur 3. febrúar

Starfsdagur verður í Stekkjaskóla fimmtudaginn 2. febrúar.  Þennan dag eru starfsmenn í ýmsum undirbúningi og eru umsjónarkennarar að undirbúa foreldraviðtöl. Einhver foreldraviðtöl verða einnig þennan dag.  Föstudaginn 3. febrúar er foreldradagur þar sem umsjónarkennarar hitta nemendur ásamt forráðamönnum. Umsjónarkennarar sendu upplýsingar um viðtölin í vikubréfum sínum síðastliðinn föstudag.  Framkvæmdir við nýbyggingu skólans eru langt komnar. …

Starfsdagur 2. febrúar og foreldradagur 3. febrúar Read More »