hilmarb

Frétta- og vikubréf Stekkjaskóla

Í hverri viku senda umsjónarkennarar heim vikubréf til forráðamanna nemenda í hverjum árgangi. Þar eru birtar upplýsingar um námið, fréttir frá liðinni viku og hvað er framundan í skólastarfinu. Einu sinni í mánuði senda stjórnendur rafrænt fréttabréf til forráðamanna og hér má sjá 1. tbl. skólaársins. Við minnum ykkur á að skoða heimasíðuna reglulega því …

Frétta- og vikubréf Stekkjaskóla Read More »

Kennaraþing Suðurlands 30. september

Þing Kennarafélags Suðurlands hófst á Flúðum  í gær fimmtudaginn 29. september.  Eins og fram kom í fréttablaði til forráðamanna í síðustu viku og í tölvupóstum er enginn skóli í dag. Sjá skóladagatal hér. Vetrarfrí verður síðan 14. – 15. október. Njótið helgarinnar. Starfsmenn Stekkjaskóla

Aðalfundur foreldrafélags Stekkjaskóla í kvöld

Kæru forráðamenn!Foreldrafélag Stekkjaskóla minnir á aðalfund foreldrafélagsins á morgun. Sem fyrr hvetjum við ykkur til að mæta og taka þátt í starfinu með þeim. Félagið er nýtt og hefur núna sitt annað starfsár eins og skólinn.Aðalfundur foreldrafélags Stekkjaskóla verður haldinn miðvikudaginn 21. september kl. 20:00 í matsal Stekkjaskóla. Áhugasömum gefst kostur á að bjóða sig …

Aðalfundur foreldrafélags Stekkjaskóla í kvöld Read More »

Haustfundur fyrir forráðamenn nemenda í 5. bekk

Mánudaginn 19. september kl. 17:00-18:30 verður haustfundur fyrir forráðamenn nemenda í 5. bekk.  Erindi verða frá fjölskyldusviði Árborgar ásamt námsefniskynningu frá umsjónarkennurum. Við vonumst til að sjá sem flesta, enda frábær fræðsla í boði ásamt mikilvægri kynningu umsjónarkennara nú þegar nemendur eru að stíga sín fyrstu skref á miðstigi.Hlökkum til að hitta ykkur og eiga notalega …

Haustfundur fyrir forráðamenn nemenda í 5. bekk Read More »

Nýr umsjónarkennari i 3.-4. bekk

Gunnar Hliðdal Gunnarsson grunnskólakennari hefur verið ráðinn sem þriðji umsjónarkennarinn í 3.-4. bekk. Hann hefur langan og góðan feril sem umsjónarkennari, síðustu árin í Grunnskóla Hveragerðis. Við bjóðum Gunnar hjartanlega velkominn í starfsmannahóp Stekkjaskóla. Eins og áður hefur komið fram fjölgaði nemendum mikið rétt fyrir skólabyrjun og mest í 3.-4. bekk.  Þess vegna var ákveðið …

Nýr umsjónarkennari i 3.-4. bekk Read More »

Umsjónarkennari óskast

Vegna fjölgunar nemenda auglýsum við eftir umsjónarkennara í 3.-4. bekk í 100% stöðuhlutfall. Stekkjaskóli – umsjónarkennari óskast Stekkjaskóli er nýr grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag. Vegna fjölgunar nemenda auglýsum við eftir umsjónarkennara í 3.-4. bekk í 100% stöðuhlutfall. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið …

Umsjónarkennari óskast Read More »

Haustfundir / fræðsla og kynningar fyrir forráðamenn

Í næstu viku hefjast haustfundir fyrir forráðmenn. Fyrsti fundurinn verður þriðjudaginn  6. september fyrir forráðamenn nemenda í 1. bekk. Þess má geta að Skólaþjónusta Árborgar mun taka þátt í fundum í þremur árgöngum í skólum sveitarfélagsins, 1. árgang, 4. árgang og 8. árgang. Ákveðin samræmd fræðsla verður í hverjum árgangi. Dagsetningar fundanna verða eftirfarandi: 1. …

Haustfundir / fræðsla og kynningar fyrir forráðamenn Read More »

Að hefja nám í grunnskóla – kynningarfundur fyrir forráðamenn nemenda í 1. bekk

Þriðjudaginn 6. september verður kynningarfundur fyrir forráðamenn nemenda í 1. bekk sem ber yfirskriftina ,,Að hefja nám í grunnskóla“. Hann verður haldinn í matsal skólans.  Á fundinum verða stutt fræðsluerindi frá Stekkjaskóla og Skólaþjónustu Árborgar. Þeir sem verða með innlegg verða stjórnendur skólans, umsjónarkennarar árgangsins, deildarstjóri Skólaþjónustu Árborgar, yfirsálfræðingur skólaþjónustunnar og kennsluráðgjafi. Þess má geta …

Að hefja nám í grunnskóla – kynningarfundur fyrir forráðamenn nemenda í 1. bekk Read More »