Fréttasafn
Fréttir frá Stekkjaskóla
Gervigrasið komið á leikvöll Stekkjaskóla
Lóðaverktakar hafa verið að vinna á fullu í lóðinni í vikunni. Búið er að leggja gervigras á fótboltavöllinn, helluleggja og leiktækin eru væntanleg á lóðina. Það er fyrirtækið PRO – garðar ehf sem sjá um lóðaframkvæmdir og stefna þeir á …
Sinfóníutónleikar
Miðvikudaginn 29. september heimsótti Sinfóníuhljómsveit Suðurlands alla 4. bekki í Árborg. Spilaði hljómsveitin fyrir nemendur nokkur skemmtileg lög, fluttu ævintýrið Lykilinn og nemendur sungu lagið Á Sprengisandi. Á tónleikunum kom 14 manna klassísk hljómsveit fram sem er smækkuð sinfóníuhljómsveit ásamt sögumanni og stjórnanda. Verkið Lykillinn sem er eins konar “íslenskur Pétur og úlfurinn”. Sagan segir frá stráknum Benna sem villist í þokunni ásamt hundinum Snata. Þeir lenda m.a. inni í girðingu hjá Geirmundi, mannýgasta nautinu í sveitinni og hitta álfastrák …
Sjóminjasafnið og fjaran
Nemendur í 2.-3. ES fóru um daginn til Eyrarbakka þar sem Sjóminjasafnið var skoðað og farið í fjöruna. Ferðin tókst vel og allir hegðuðu sér með sóma. Í fjörunni fundu nemendur ýmsar lífverur svo sem klettadoppur, krabba, dauðan fisk og fallega steina og skeljar.
Stafir, form og mynstur
Nemendur í 1. EIK unnu ýmis verkefni í liðinni viku. Unnið var með stafinn Íí og lagður inn stafurinn Aa og nemendur skrifuðu hann í úrklippu- og verkefnabók. Í sögubók var unnið með ,,bestu” árstíðina okkar og í stærðfræði var unnið með …
Heimsókn í LAVA setrið
Nemendur í 4. IM fóru í velheppnaða vettvangsferð í LAVA setrið á Hvolsvelli um daginn. Farið var upp á þak safnsins til að sjá hvaða eldfjöll sáust frá safninu. Því miður var skyggnið lélegt en þó sást aðeins til Vestmannaeyja. Síðan fengu …
Vikupóstar frá umsjónarkennurum
Frá því að skólastarf hófst í haust hafa umsjónarkennarar sent fréttabréf/vikupósta til forráðamanna einu sinni í viku þar sem þeir hafa sagt frá vinnu síðustu daga og hvað sé framundan. Stuðst er við forritið Sway í Office 365 þar sem …
Staða framkvæmda
Í dag heimsóttu skólastjórnendur byggingsvæðið að Heiðarstekk 10, ásamt sviðsstjóra fjölskyldusviðs og fulltrúum frá mannvirkja- og umhverfissviði. Framkvæmdir við Stekkjaskóla eru á mikilli siglingu. Í vikunni var skólalóðin malbikuð og á mánudaginn hefst vinna við hellulögn og frágang lóðarinnar. Búið …
Starfsdagur á föstudaginn – frí hjá nemendum
Næstkomandi föstudag, 24. september, er starfsdagur í Stekkjaskóla vegna haustþings kennara. Einnig er starfsdagur hjá frístundaheimili Stekkjaskóla. Nemendur verða því í fríi þennan dag.
Loftmyndir af framkvæmdum
Miklar byggingaframkvæmdir hafa verið undanfarnar vikur og mánuði á skólalóð Stekkjaskóla að Heiðarstekk 10 á Selfossi. Meðfylgjandi myndir tók Rúnar Sveinn Valgeirsson starfsmaður Auðlindar með dróna yfir verkstað 9. september síðastliðinn. Auðlindin, atvinnu- og virkniþátttaka, hefur tekið að sér ýmis …
Stjórnendur Stekkjaskóla skoðuðu framkvæmdir
Síðastliðinn föstudag fóru stjórnendur Stekkjaskóla að skoða færanlegu kennslustofurnar að Heiðarstekk 10. Sigurður Ólafsson deildarstjóri framkvæmda- og tæknideildar Árborgar sem hefur yfirumsjón með framkvæmdunum gekk um svæðið með Hilmari skólastjóra, Ástrós Rún aðstoðarskólastjóra og Hildi deildarstjóra. Einnig voru með í för Atli Marel sviðstjóri, Óðinn umsjónarmaður fasteigna og Davíð Örn …
Fréttir frá Stekkjaskóla
Í dag, föstudaginn 3. september, var fyrsta fréttabréf Stekkjaskóla sent á forráðamenn nemenda. Þar munu birtast ýmsar fréttir um skólastarfið, ýmsar gagnlegar upplýsingar og hvað er helst framundan. Þess má geta að slóð inn á fréttabréfið verður jafnframt sett hér …
Skólastarfið fer vel af stað
Það er ánægjulegt að segja frá því að skólastarfið hefur farið vel af stað í Stekkjaskóla. Margt hefur verið gert til að brjóta upp hefðbundið starf með útiveru og ferðalögum. Síðastliðinn miðvikudag fór t.d. 4. bekkur í Alviðru og gekk …