Vettvangsferðir felldar niður

Kæru forráðamenn, nemendur og starfsmenn

Ákveðið hefur verið að fella niður fyrirhugaðar vettvangsferðir í dag..
Ástæðan er slæmt veður, léleg færð og lokanir vega. Hellisheiðin er lokuð og ekki verður keyrt úr sveitinni í dag.

Ekkert sund verður í dag og dagurinn verður í rólegri kantinum.
Forráðamenn eru beðnir um að láta skólann vita ef nemendur verða heima í dag en að sjálfsögðu verður skólinn opinn.
Vettvangsferðir bíða betri tíma fram á nýtt ár.

Bestu kveðjur,
Hilmar Björgvinsson skólastjóri