Bókamessa á Degi íslenskrar tungu.

Dagur íslenskrar tungu hefur verið haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember ár hvert, samkvæmt tillögu menntamálaráðherra. Allir eiga bækur heima sem hafa verið lesnar og safna nú ryki. Dagana 14.-16.nóvember fá nemendur tækifæri til að koma með bók eða bækur að heiman í skólann og fá bókamiða í staðinn. Nemendur geta síðan notað …

Bókamessa á Degi íslenskrar tungu. Read More »

Skrifað undir samning um 2. áfanga Stekkjaskóla

Skrifað var undir samning um hönnun og byggingu á 2. áfanga Stekkjaskóla föstudaginn 11. nóvember. Verklok verða í byrjun ágúst 2024. Hilmar Björgvinsson skólastjóri og Ástrós Rún Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri voru viðstödd fyrir hönd Stekkjaskóla. Kennsla hefst í 1. áfanga skólans í byrjun árs 2023. Virkilega spennandi tímar framundan hjá nemendum og starfsmönnum Stekkjaskóla og alls …

Skrifað undir samning um 2. áfanga Stekkjaskóla Read More »

Íþróttakennari óskast – umsóknarfrestur til og með 16. nóvember

Staða íþróttakennara við Stekkjaskóla er laus til umsóknar. Langar þig að taka þátt í að byggja upp nýjan grunnskóla þar sem lögð er áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag. Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember. Sjá nánar https://starf.arborg.is/storf/viewjobonweb.aspx?jobid=3285

Starfsdagur 31. október – foreldradagur 1. nóvember

Mánudaginn 31. október verður starfsdagur og því enginn skóli. Frístund verður þó opin fyrir þau börn sem nú þegar er búið að skrá. Þennan dag verða starfsmenn í ýmsum undirbúningi s.s. fyrir foreldradaginn sem verður daginn eftir. Einhver foreldraviðtöl verða þó tekin þennan dag. Foreldradagur, þriðjudaginn 1. nóvember Umsjónarkennarar hitta nemendur og foreldra í viðtali. …

Starfsdagur 31. október – foreldradagur 1. nóvember Read More »

Haustfrí 13. og 14. október

Fimmtudaginn 13. október og föstudaginn 14. október verður haustfrí í grunnskólum Árborgar. Það verður því frí hjá nemendum þessa daga í Stekkjaskóla og í frístundaheimilinu Bjarkarbóli. Gleðilegt haustfrí. Starfsfólk Stekkjaskóla

Stjórn foreldrafélags Stekkjaskóla og fulltrúar í ráðum og teymum

Aðalfundur Foreldrafélags Stekkjaskóla var haldinn þann 21. september. Þar var ný stjórn kosin og skipti hún með sér verkum á sínum fyrsta stjórnarfundi sem haldinn var 5. október. Stjórnin er skipuð eftirfarandi fulltrúum: Pétur Aðalsteinsson formaður Kristjana Sigríður Skúladóttir varaformaður Sólveig Ingadóttir gjaldkeri Eva María Pétursdóttir ritari Róbert Sverrisson meðstjórnandi Fulltrúar í skólaráði verða Guðjón …

Stjórn foreldrafélags Stekkjaskóla og fulltrúar í ráðum og teymum Read More »

Frétta- og vikubréf Stekkjaskóla

Í hverri viku senda umsjónarkennarar heim vikubréf til forráðamanna nemenda í hverjum árgangi. Þar eru birtar upplýsingar um námið, fréttir frá liðinni viku og hvað er framundan í skólastarfinu. Einu sinni í mánuði senda stjórnendur rafrænt fréttabréf til forráðamanna og hér má sjá 1. tbl. skólaársins. Við minnum ykkur á að skoða heimasíðuna reglulega því …

Frétta- og vikubréf Stekkjaskóla Read More »

Kennaraþing Suðurlands 30. september

Þing Kennarafélags Suðurlands hófst á Flúðum  í gær fimmtudaginn 29. september.  Eins og fram kom í fréttablaði til forráðamanna í síðustu viku og í tölvupóstum er enginn skóli í dag. Sjá skóladagatal hér. Vetrarfrí verður síðan 14. – 15. október. Njótið helgarinnar. Starfsmenn Stekkjaskóla

Aðalfundur foreldrafélags Stekkjaskóla í kvöld

Kæru forráðamenn!Foreldrafélag Stekkjaskóla minnir á aðalfund foreldrafélagsins á morgun. Sem fyrr hvetjum við ykkur til að mæta og taka þátt í starfinu með þeim. Félagið er nýtt og hefur núna sitt annað starfsár eins og skólinn.Aðalfundur foreldrafélags Stekkjaskóla verður haldinn miðvikudaginn 21. september kl. 20:00 í matsal Stekkjaskóla. Áhugasömum gefst kostur á að bjóða sig …

Aðalfundur foreldrafélags Stekkjaskóla í kvöld Read More »