Fleiri kennslustofur
Í fyrrakvöld komu þrjú hús til viðbótar á skólalóð Stekkjaskóla. Þau voru síðan hífð á sinn stað í gær ásamt grindum í tengiganginn. Nú er verið að undirbúa sökkla fyrir næstu fjögur hús sem berast á verkstað eftir tæpar tvær vikur. Á meðfylgjandi myndum má sjá að miklar framkvæmdir eru á við færanlegu stofurnar og […]
Fyrstu færanlegu skólastofurnar komnar
Þann 21. júní komu fyrstu færanlegu kennslustofurnar á skólalóð Stekkjaskóla. Stofurnar eru smíðaðar í Reykjavík af fyrirtækinu Snorri ehf. Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar þær voru nýkomnar á Selfoss og hvernig þær líta út í dag á sínum stað. Á næstu dögum koma fleiri stofur. Mikil kraftur er í framkvæmdum á skólalóð Stekkjaskóla og í […]
Kynningum á Stekkjaskóla lokið þetta vorið
Nú hafa skólastjórnendur Stekkjaskóla lokið við fjórar skólakynningar á starfi skólans fyrir forráðamenn nemenda. Ein kynning fyrir hvern árgang. Kynningin fyrir 1. bekk var haldin í Vallskóla en í Grænumörk fyrir forráðamenn 2.-4. bekkja. Mjög góð mæting var á flestar kynningarnar og gott hljóð í fólki. Meðal þess sem skólastjórnendur lögðu áherslu á var að […]
Glöð börn á skólakynningu
Það voru glöð og spennt börn sem mættu á skólakynningu með foreldrum sínum miðvikudaginn 2. júní. Börnin eru að byrja í 1. bekk í Stekkjaskóla í haust og þar með að hefja sína 10 ára grunnskólagöngu. Að kynningunni stóðu Hilmar Björgvinsson skólastjóri, Ástrós Rún Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, Hildur Bjargmundsdóttir deildarstjóri stoðþjónustu, Gunnar Eysteinn Sigurbjörnsson frístunda- og […]
Byggingaframkvæmdir
Hér má sjá nokkrar myndir sem voru teknar af byggingaframkvæmdum þann 8. júní. Annars vegar þar sem verið er að ganga frá undirstöðum fyrir færanlegar kennslustofur og hins vegar framkvæmdir við 1. áfanga skólans sem verður tilbúinn 31. júní 2022. Hér verða birtar reglulega myndir af framkvæmdum.