Vikupóstar frá umsjónarkennurum 

Frá því að skólastarf hófst í haust hafa umsjónarkennarar sent fréttabréf/vikupósta til forráðamanna einu sinni í viku þar sem þeir hafa sagt frá vinnu síðustu daga og hvað sé framundan. Stuðst er við forritið Sway í Office 365 þar sem fréttirnar eru settar upp á fallegan, áhugaverðan og gagnvirkan hátt. Foreldrar hafa fengið vefslóð senda í tölvupósti og nú er ætlunin að setja slóðina á bréfin jafnframt inn á Mentor þar sem auðvelt verður fyrir forráðamenn að nálgast þau. 

Annað slagið verða valdar fréttir úr vikupóstunum settar hér á heimasíðuna.  Á meðfylgjandi myndum má sjá hvernig vikupóstarnir líta út.