Stofnfundur Foreldrafélags Stekkjaskóla
Hér með er boðað til stofnfundar Foreldrafélags Stekkjaskóla í húsnæði skólans við Heiðarstekk 10 á Selfossi fimmtudagskvöldið 16. desember næstkomandi kl. 20:00. Undirritaðir fulltrúar úr hópi foreldra tóku að sér að undirbúa stofnun félagsins og gera drög að fyrstu lögum þess, sem fylgja með fundarboði þessu og verða borin upp til samþykktar á fundinum. Sjá nánar hér: …
Fyrsti skóladagurinn í nýja húsnæðinu
Það var stór dagur í Stekkjaskóla í dag þegar kennsla hófst í nýju húsnæði skólans að Heiðarstekk 10. Húsnæðið er rúmgott og fallegt og nemendur voru glaðir og spenntir þegar þeir mættu í skólann á nýjum stað. Á meðfylgjandi myndum má sjá nemendur fást við ýmis viðfangsefni. Sjá einnig frétt á www.arborg.is og foreldrabréf sem fór heim í dag.
Til hamingju með nýtt skólahúsnæði
Mánudaginn 29. nóvember hefst skólastarfið að Heiðarstekk 10, í rúmgóðu og fallegu húsnæði. Mikið þrekvirki hefur verið unnið síðustu daga við að koma öllu í stand og undirbúa komu nemenda í skólann. Starfsdagarnir fyrir helgi voru mjög vel nýttir í þá vinnu þar sem húsgögnum og búnaði var komið fyrir á rétta staði. Starfsmönnum skólans …
Kennsla hefst í nýju húsnæði mánudaginn 29. nóvember
Nú styttist í að kennsla hefjist í nýju húsnæði Stekkjaskóla. Síðustu daga hafa birgjar verið að keyra til okkar húsgögn og annan varning og búið er að setja saman flest húsgögn. Verið er að leggja lokahönd á framkvæmdir. Starfsdagar verða fimmtudaginn 26.11. og föstudaginn 27.11. Þessa daga mun flutningum ljúka og starfsmenn flytja sig frá Bifröst yfir á Heiðarstekk. …
Kennsla hefst í nýju húsnæði mánudaginn 29. nóvember Read More »
Starfsdagar verða fimmtudaginn 26.11. og föstudaginn 27.11 vegna flutninga skólans frá Bifröst að Heiðarstekk.
Starfsdagar verða fimmtudaginn 26.11. og föstudaginn 27.11 vegna flutninga skólans frá Bifröst að Heiðarstekk. Á starfsdögunum verður boðið upp á viðveru fyrir nemendur sem verður mönnuð af starfsfólki frístundar og stuðningsfulltrúum skólans. Þar sem það verður í mörg horn að líta hjá starfsfólki skólans og frístundar þá óskum við eftir að þeir sem hafa tök á því …