Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Verkefni í tónmennt

By hilmarb | 24 október, 2021

Nemendur í 2. og 3. bekk fengu það verkefni um daginn að teikna örugga staðinn sinn útfrá laginu Myndin hennar Lísu eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur. Verkin hanga til sýnis inni í tónmenntarstofu. Lagið Myndin hennar Lísu er búið að vera óopinbert lag mánaðarins nú í október, svo allir nemendur ættu að kunna að syngja það eða allavega þekkja það. Hér er linkur á undirspil,  ef ykkur langar til þess að syngja lagið með börnunum. Myndin hennar Lísu  Gult fyrir sól, grænt fyrir líf,  grátt fyrir þá sem reka menn út í stríð.  Hvítt fyrir börn, sem biðja um frið  biðja þess eins að fá að lifa’ eins og við.  Er ekki jörðin fyrir alla?  Taktu þér blað, málaðu’ á það  mynd þar sem að allir eiga öruggan stað.  Augu svo blá, hjörtu sem slá  hendur sem fegnar halda frelsinu á.  Þá verður jörðin fyrir alla.  Olga Guðrún Árnadóttir    Við eigum mikla snillinga í skólanum okkar!   Guðný Lára tónmenntakennari 

Pizzubakstur, hópefli o.fl. hjá 1. EIK

By hilmarb | 24 október, 2021

Það var margt um að vera í námi og leik hjá nemendum 1. EIK í síðustu viku. Í vikubréfi umsjónarkennara, 22. október, stendur m.a. :  Þessa vikuna lék veðrið við okkur og fórum við út í Gesthúsaskóg að leika í skóginum og fótbolta á vellinum. Nokkrir meira að segja lásu úti í skógi. Tveir hópar …

Pizzubakstur, hópefli o.fl. hjá 1. EIK Read More »

Bangsadagur og hrekkjavökudagur

By hilmarb | 24 október, 2021

Alþjóðlegi bangsadagurinn er miðvikudaginn 27.okt og þann dag mega nemendur Stekkjaskóla koma með einn bangsa sem passar í skólatöskuna og mæta í kósýgalla/náttfötum ef þeir vilja. Nemendum í 1.- 4. bekk er boðið á Bangsadiskó með Vallaskóla í íþróttahúsi Vallaskóla þennan dag.  Föstudaginn 29.okt ætlum við svo að taka forskot á Hrekkjavökuna (e.Halloween) og mæta í grímubúningum (engin vopn eða aukahlutir leyfð), með vasaljós, sparinesti og fernudrykk (nammi, snakk og gos flokkast ekki undir sparinesti). 

Heimsókn í Veiðisafnið á Stokkseyri

By hilmarb | 23 október, 2021

Fimmtudaginn 21. október heimsóttu nemendur í 2.-3.ES og starfsmenn Veiðisafnið á Stokkseyri. Páll eigandi safnsins tók á móti hópnum og sagði frá dýrunum. Þar voru m.a. uppstoppaður gíraffi sem hann skaut sjálfur, sebrahestar, nashyrningur, ísbjörn og mörg fleiri dýr. Að heimsókn fór hópurinn í heimsókn til Jóhönnu kennara sem býr á Stokkseyri.

Bleikur dagur í Stekkjaskóla 

By hilmarb | 22 október, 2021

Þann 13. október síðastliðinn var bleikur dagur í Stekkjaskóla þar sem nemendur og starfsmenn mættu í einhverju bleiku eða höfðu eitthvað bleikt á sér.  Bleiki dagurinn er hápunktur Bleiku slaufunnar árlegs árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameins­félagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.   Það var gaman að sjá bleika litinn sem var ríkjandi í Stekkjaskóla þennan dag. Á meðfylgjandi myndum má sjá nemendur og starfsmenn í hinum bleika tón. Þennan dag færðu stjórnendur …

Bleikur dagur í Stekkjaskóla  Read More »