Fréttabréf foreldrafélagsins
Stjórn foreldrafélags Stekkjaskóla hefur staðið fyrir góðu starfi á nýliðnu skólaári. Foreldrafélagið hélt m.a. fræðsluerindi um mikilvægi hreyfingar úti í náttúrunni, aðstoðaði við vorhátíð skólans og hélt utan um tengslastarfið sem er gífurlega mikilvægt. Hér má sjá nýtt fréttabréf foreldrafélagsins og upplýsingabæklinginn fyrir tenglastarfið. Við þökkum foreldrafélaginu fyrir frábært starf á nýliðnu skólaári og óskum […]
Skólaslit miðvikudaginn 7. júní kl. 9:00
Skólaslit Stekkjaskóla verða í matsal Stekkjaskóla kl. 9:00 miðvikudaginn 7. júní fyrir alla nemendur skólans. Foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomnir.
Vorhátíð þriðjudaginn 6. júní
Þriðjudaginn 6. júní verður vorhátíð Stekkjaskóla. Skóladagurinn byrjar að venju kl. 8:10 í heimastofum nemenda. Kl. 8:40 – 11:10 – Nemendur fara á milli stöðva, í leiki og fleira fjör. Kl. 11:10 -12:00 – Foreldrafélagið býður upp á dagskrá. Slökkvilið, sjúkraflutningar og lögreglan heimsækja okkur. Nemendur fá að sprauta og hlaupa í gegnum vatnsvegg og […]
Opið hús í Stekkjaskóla 1. júní
Opið hús verður í Stekkjaskóla fimmtudaginn 1. júní kl. 14:00-16:00. Íbúar Árborgar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að koma og skoða þennan nýjasta grunnskóla landsins sem er hannaður sem teymiskennsluskóli.
Dýrin í Hálsaskógi í flutningi nemenda í 5. AI
Fimmtudaginn 27. apríl var árshátíð 5. bekkjar. Nemendur sýndu leikritið Dýrin í Hálsaskógi. Nemendur sáu um handritsgerð, leikmuni og búningahönnun og æfðu leikritið og sönginn mjög vel undir stjórn kennaranna sinna, stuðningsfulltrúa, tónmenntakennara o.fl. Jafnframt voru margir nemendur duglegir að æfa sig heima. Leiksýningin gekk alveg glimrandi vel og voru foreldrar og aðrir gestir virkilega […]