Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Þemadagar 17.-19. apríl – Fjölmenning í Stekkjaskóla

By hilmarb | 8 apríl, 2024

Dagana 17. -19. apríl verða þemadagar í Stekkjaskóla. Þemað er fjölmenning í Stekkjaskóla og verða unnin verkefni um löndin sem nemendur okkar tengjast. Við erum með nemendur frá 16 löndum, að Íslandi meðtöldu. Nemendum verður skipt í aldursblandaða hópa þessa daga og verður stundaskráin með aðeins breyttu sniði. Nemendur mæta á sín heimasvæði í byrjun […]

Fréttabréf til forráðamanna

By hilmarb | 7 apríl, 2024

Skólastjórnendur sendu út þriðja fréttabréf skólaársins til forráðamanna föstudaginn 5. apríl. Í fréttabréfinu er m.a. sagt frá því að Stekkjaskóli hlaut tvær tilnefningar til Menntaverðlauna Suðurlands, kynning á nýsamþykktum verklagsreglum Árborgar um viðbrögð þegar bregðast þarf við/stöðva óásættanlega og/eða skaðlega hegðun nemenda í grunnskólum Árborgar, umfjöllun um fyrirhugða þemadaga um fjölmenningu 17.-19. apríl og kynning […]

Áföll barna og þróun sjálfsmyndar

By hilmarb | 3 apríl, 2024

Mánudaginn 8. apríl kl. 20:00 standa foreldrafélög Jötunheima, Goðheima, Álfheima, Árbæjar og Stekkjaskóla fyrir fyrirlestri sem heitir: Áföll barna og þróun sjálfsmyndar.  Fyrirlesarar eru Katrín Katrínar og Theodór Francis klínískir félagsráðgjafar. Sjá nánar hér. Öll velkomin í Stekkjaskóla, foreldrafélögin      

Stekkjaskóli – laus störf skólaárið 2024-2025

By hilmarb | 25 mars, 2024

Stekkjaskóli auglýsir fjölbreyttar og áhugaverðar stöður fyrir næsta skólaár. Skólinn leggur m.a. áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag.  Umsjónarkennarar á yngsta- og miðstig  Íþróttakennari, tímabundin ráðning  Stuðningsfulltrúar á miðstig  Matráður  Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2024.   Upplýsingar um störfin veita Hilmar Björgvinsson, skólastjóri, hilmarb@stekkjaskoli.is , sími […]

Skóladagatal Stekkjaskóla skólaárið 2024-2025

By hilmarb | 23 mars, 2024

Á fundi fræðslu- og frístundarnefndar 13. mars síðastliðinn voru skóladagatöl leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2024-2025 samþykkt. Skóladagatal Stekkjaskóla er komið á heimasíðu skólans. Sjá hér.