Skákkennsla fyrir grunnskólabörn hefst 5. febrúar

Laugardaginn 5. febrúar hefst skáknámskeið fyrir grunnskólabörn í Fischersetrinu á Selfossi

Námsskeiðið er haldið í samstarfi við Sveitarfélagið Árborg og Skákfélag Selfoss og nágrennis.

Oddgeir Ágúst Ottesen og Ingimundur Sigurmundsson hjá Skákfélagi Selfoss og nágrennis sjá um kennsluna. Þetta verða 8 skipti eða einu sinni í viku, á laugardögum frá 11:00 – 12:30 og kostar allt námsskeiðið 4.000 kr.

Varðandi frekari upplýsingar þá vinsamlegast hringið í síma 894 1275 eða sendið tölvupóst á netfangið fischersetur@gmail.com

Fischersetrið á Selfossi