Litlu jólin – 20. desember
Litlu jólin – 20. desember Read More »
Föstudaginn 8. desember ætlum við að hafa rauðan dag hjá okkur í Stekkjaskóla í tilefni þess að nú styttist óðum í jólin. Nemendur eru því hvattir til að klæðast einhverju rauðu á morgun. Skóladagurinn verður að öðru leiti með hefðbundnu sniði.
Rauður dagur í Stekkjaskóla Read More »
Foreldrafélag Stekkjaskóla heldur úti öflugu foreldrastarfi. Meðal verkefna sem stjórnin hefur framkvæmt í vetur er aðalfundur þann 12. september þar sem ný stjórn var kjörin, fræðsluerindi í haust um skjánotkun barna og nú nýverið að gefa nemendum 1. bekkjar endurskinsvesti . Glæsilegt fréttabréf foreldrafélags Stekkjaskóla er gefið út reglulega og hér má sjá haustbréf félagsins.
Fréttabréf foreldrafélags Stekkjaskóla Read More »
Þriðjudaginn 21. nóvember er skertur skóladagur hjá nemendum skv. skóladagatali. Hefðbundnum skóladegi lýkur þá um kl. 13:00. Kennarar í Árborg verða með sameiginlega vinnu eftir hádegi þvert á skóla og hittast í öllum fjórum grunnskólum sveitarfélagsins eftir ákveðnu skipulagi. Allir nemendur fara heim kl. 13:00 nema þeir sem eru í frístund. Starfsmenn frístundar taka
Skertur skóladagur 21. nóvember frá kl. 13:00 Read More »
Dagur íslenskrar tungu er í dag 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar skálds (1807-1845). Haldið var upp á daginn í Stekkjaskóla með söngstund og bókamessu. Allir nemendur skólans komu á sal í morgun og sungu fjögur lög við undirspil Leifs kennara. Síðan var bókamessa hjá okkur þar sem allir 226 nemendur skólans fengu að velja
Bókamessa og söngstund í Stekkjaskóla Read More »
Góðir gestir heimsóttu Stekkjaskóla fimmtudaginn 9. nóvember. Á ferðinni voru Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra, Teitur Erlingsson aðstoðarmaður ráðherra ásamt starfsmönnum ráðuneytisins þeim Þorsteini Hjartarsyni skrifstofustjóra og Viktori Berg Guðmundssyni sérfræðingi . Með þeim var Heiða Ösp Kristjánsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs Árborgar. Stjórnendur gengu með gestunum um skólann og litið var inn í nokkrar kennslustundir
Mennta- og barnamálaráðherra í heimsókn Read More »
Þann 19. september var hátíðarsalur skólans tekinn í notkun. Salurinn er fjölnotasalur og eru þar m.a. kenndar íþróttir og jóga. Nemendur í 1.-2 bekk fá alla sína íþróttakennslu i fjölnotasalnum en eldri nemendur fara einu sinni í viku í íþróttahús Vallaskóla.
Íþróttakennsla hafin í hátíðarsal / fjölnotasal Stekkjaskóla Read More »
Við minnum á að samkvæmt skóladagatali skólans er starfsdagur mánudaginn 30. október og þriðjudaginn 31. október eru foreldra- og nemendaviðtöl. Mánudaginn 30. október verður starfsdagur og því enginn skóli. Frístund verður þó opin fyrir þau börn sem nú þegar er búið að skrá. Sjá hér. Þennan dag verða starfsmenn í ýmsum undirbúningi s.s. fyrir foreldradaginn
Starfsdagur 30. október – Foreldra- og nemendaviðtöl 31. október Read More »
Foreldrafélag Stekkjaskóla í samstarfi við foreldrafélag Jötunheima ætlar að efna til fræðslukvölds fyrir foreldra fimmtudaginn 26. október nk., kl. 20.00. Skúli Geirdal ætlar fjallar um skjánotkun og samfélagsmiðlanotkun barna. Sjá nánar hér. Hvetjum foreldra til að fjölmenna á fundinn um efni sem snertir okkur öll. Foreldrafélög Stekkjaskóla og Jötunheima
Fræðslufundur um skjánotkun barna Read More »
Þriðjudaginn 24. október verður Kvennaverkfall og eru konur og kynsegin fólk hvatt til að leggja niður launuð sem ólaunuð störf þann dag. Vegna kvennaverkfalls mun Stekkjaskóli ekki sjá sér fært um að halda úti kennslu þennan dag og mun skólastarf því falla niður 24. október. Sjá nánar bréf frá skólanum hér. Kærar kveðjur, skólastjórnendur Stekkjaskóla