Matseðill – október
Nemendur og starfsmenn eru mjög ánægðir með matinn sem þeir fá í skólanum. Hér má sjá matseðil októbermánaðar.
Nemendur og starfsmenn eru mjög ánægðir með matinn sem þeir fá í skólanum. Hér má sjá matseðil októbermánaðar.
Síðastliðinn fimmtudag, 30. september, tóku allir nemendur Stekkjaskóla þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Hlaupið fór fram á tjaldstæðinu við Gestshús og á íþróttavallasvæðinu. Minnst átti að hlaupa 2,5 km en mesta vegalengdin var 10 km. Samtals hlupu nemendur Stekkjaskóla 366 km sem er næstum því eins langt og að hlaupa frá Selfossi til Hafnar í Hornarfirði. Nemendur Stekkjaskóla voru ótrúlega duglegir að hlaupa og allir gerðu sitt besta. Hér má sjá nánar um Ólympíuhlaup ÍSÍ.
Lóðaverktakar hafa verið að vinna á fullu í lóðinni í vikunni. Búið er að leggja gervigras á fótboltavöllinn, helluleggja og leiktækin eru væntanleg á lóðina. Það er fyrirtækið PRO – garðar ehf sem sjá um lóðaframkvæmdir og stefna þeir á að ljúka sínum þætti í næstu viku. Meðfylgjandi myndir voru teknar síðastliðinn miðvikudag.
Miðvikudaginn 29. september heimsótti Sinfóníuhljómsveit Suðurlands alla 4. bekki í Árborg. Spilaði hljómsveitin fyrir nemendur nokkur skemmtileg lög, fluttu ævintýrið Lykilinn og nemendur sungu lagið Á Sprengisandi. Á tónleikunum kom 14 manna klassísk hljómsveit fram sem er smækkuð sinfóníuhljómsveit ásamt sögumanni og stjórnanda. Verkið Lykillinn sem er eins konar “íslenskur Pétur og úlfurinn”. Sagan segir frá stráknum Benna sem villist í þokunni ásamt hundinum Snata. Þeir lenda m.a. inni í girðingu hjá Geirmundi, mannýgasta nautinu í sveitinni og hitta álfastrák inni í kletti. Allt fer vel að lokum þegar þokunni léttir og amma og afi finna …
Nemendur í 2.-3. ES fóru um daginn til Eyrarbakka þar sem Sjóminjasafnið var skoðað og farið í fjöruna. Ferðin tókst vel og allir hegðuðu sér með sóma. Í fjörunni fundu nemendur ýmsar lífverur svo sem klettadoppur, krabba, dauðan fisk og fallega steina og skeljar.
Nemendur í 1. EIK unnu ýmis verkefni í liðinni viku. Unnið var með stafinn Íí og lagður inn stafurinn Aa og nemendur skrifuðu hann í úrklippu- og verkefnabók. Í sögubók var unnið með ,,bestu” árstíðina okkar og í stærðfræði var unnið með form og mynstur. Í hverri viku er stuðst við lífsleiknibókina um Tíslu. Þar eru stuttar sögur þar sem unnið er með skóla- og félagsfærni og tilfinningar. Í kjölfarið skapast fróðlegar og skemmtilegar umræður. Í vikunni var lesin sagan Tísla fer í frímínútur sem tók á neikvæðri hegðun í frímínútum og unnið með hugtökin reiði og fyrirgefningu. Farið var í Lyklakippuleikinn og Hver er undir teppinu og skemmtu allir sér konunglega. Smiðjur voru bæði …
Nemendur í 4. IM fóru í velheppnaða vettvangsferð í LAVA setrið á Hvolsvelli um daginn. Farið var upp á þak safnsins til að sjá hvaða eldfjöll sáust frá safninu. Því miður var skyggnið lélegt en þó sást aðeins til Vestmannaeyja. Síðan fengu nemendur kynningu á eldgosum og jarðskjálftum á Íslandi. Að henni lokinni var horft á fræðslumyndband …
Frá því að skólastarf hófst í haust hafa umsjónarkennarar sent fréttabréf/vikupósta til forráðamanna einu sinni í viku þar sem þeir hafa sagt frá vinnu síðustu daga og hvað sé framundan. Stuðst er við forritið Sway í Office 365 þar sem fréttirnar eru settar upp á fallegan, áhugaverðan og gagnvirkan hátt. Foreldrar hafa fengið vefslóð senda …
Í dag heimsóttu skólastjórnendur byggingsvæðið að Heiðarstekk 10, ásamt sviðsstjóra fjölskyldusviðs og fulltrúum frá mannvirkja- og umhverfissviði. Framkvæmdir við Stekkjaskóla eru á mikilli siglingu. Í vikunni var skólalóðin malbikuð og á mánudaginn hefst vinna við hellulögn og frágang lóðarinnar. Búið er að setja saman leiktæki sem fara á skólalóðina. Þegar undirstöður fyrir þau verða tilbúnar …
Næstkomandi föstudag, 24. september, er starfsdagur í Stekkjaskóla vegna haustþings kennara. Einnig er starfsdagur hjá frístundaheimili Stekkjaskóla. Nemendur verða því í fríi þennan dag.