hilmarb

Veðurspá mið 5.2 og fim 6.2 – skólaakstur

Vegna appelsínugulrar veðurspár í dag, miðvikudaginn 5. febrúar, má búast við röskunum á akstri GTS. Skólabílar munu fara frá skólum um kl 13:00, miðað við núverandi veðurspá verður ekki önnur ferð eftir það. Að öllu óbreyttu mun akstur ferðaþjónustu fatlaðra innanbæjar á Selfossi halda sér. ATH miðað við núverandi spá er ekki farið út fyrir Selfoss eftir […]

Veðurspá mið 5.2 og fim 6.2 – skólaakstur Read More »

Starfs- og foreldradagar fimmtudaginn 30. janúar og föstudaginn 31. janúar

Starfs- og foreldradagar verða fimmtudaginn 30. janúar og föstudaginn 31. janúar í Stekkjaskóla.  Þessa daga mun nemendafélag skólans standa fyrir vöfflukaffi og lengd viðvera verður í frístundinni Bjarkarbóli fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.   Útför starfsmanns  Útför Soffíu Magnúsdóttur stuðningsfulltrúa fer fram næstkomandi föstudag. Þá kveðjum við yndislegan samstarfsmann❤️. Blessuð sé minning hennar. 

Starfs- og foreldradagar fimmtudaginn 30. janúar og föstudaginn 31. janúar Read More »

Gleðilegt nýtt ár og til hamingju með 2. áfanga

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir samstarfið á liðnu ári.   Það er ánægjulegt að segja frá því að 2. áfangi skólans var afhentur sveitarfélaginu fyrir jólaleyfi. Stórglæsileg bygging sem er með heimasvæði fyrir nemendur á miðstigi og unglingastigi. Í þessum áfanga er einnig aðstaða fyrir upplýsingaver skólans (bókasafn), myndmenntastofa, náttúrufræðistofa með gróðurskála, hreyfirými, félagsaðstaða

Gleðilegt nýtt ár og til hamingju með 2. áfanga Read More »

Fréttabréf Stekkjaskóla

Þann 13. desember fengu allir forráðamenn sent í tölvupósti fyrsta fréttabréf skólaársins. Í fréttabréfinu var sagt lauslega frá ýmsu starfi skólans síðustu vikurnar fyrir jólaleyfi.  Þar má nefna vasaljósferðir, gönguferðir í Selfosskirkju, tónleikar nemenda sem læra á hljóðfæri hjá Tónlistarskóla Árnesinga, gjöf Foreldrafélagsins á endurskinsvestum til nemenda 1. bekkjar, fræðslu um netöryggi og fyrirlestur Þorgríms

Fréttabréf Stekkjaskóla Read More »

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Starfsfólk Stekkjaskóla óskar nemendum, forráðamönnum og öðrum velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum fyrir ánægjulegt og gott samstarf á árinu sem er að líða. Kennsla hefst á nýju ári mánudaginn 6. janúar 2025. samkvæmt stundatöflu. Skrifstofa skólans opnar eftir  jólaleyfi föstudaginn 3. janúar 2025.  Bestu jólakveðjur, Starfsfólk Stekkjaskóla

Gleðileg jól og farsælt komandi ár Read More »

Jólastemmning desembermánaðar – framundan

Í desember er talsvert um uppbrot í skólastarfi Stekkjaskóla. Meðal þess sem er framundan er netöryggisfræðsla, kirkjuheimsóknir, tónleikar á sal, rauður dagur, rithöfundur heimsækir miðstig og hápunktur mánaðarins eru litlu jólin með stofujólum og jólaballi.   Sjá nánar hér: Mánudagur 9.desember  Netöryggisfræðsla í 4.bekk  Þriðjudagur 10.desember  Kirkjuheimsóknir hjá 2. og 4. bekk  Miðvikudagur 11.desember  Netöryggisfræðsla í

Jólastemmning desembermánaðar – framundan Read More »

Er barnið þitt vel upplýst í skammdeginu?

Er barnið þitt vel upplýst? Er það ekki örugglega að nota endurskinsmerki eða sýnileikavesti?  Á þessum árstíma er mjög dimmt úti og því mikilvægt að öll börn séu vel upplýst með endurskinsmerkjum og/eða í sýnileikavestum.   Endurskinsmerkjadagar í Stekkjaskóla   Í síðustu viku voru endurskinsmerkjadagar í Stekkjaskóla og við ætlum að halda áfram að vera með með sérstakt

Er barnið þitt vel upplýst í skammdeginu? Read More »

Viðburðarríkur skreytingardagur í Stekkjaskóla

Föstudaginn 29. nóvember var skemmtilegur skreytingardagur í skólanum. Nemendur og starfsmenn tóku sig til og gerðu ýmislegt jólaskraut og skreyttu stofurnar sínar og opin svæði. Í tilefni dagsins fengu allir nemendur kakó og piparkökur. Þennan dag var jafnframt söngstund í tilefni af degi íslenskrar tónlistar í matsal skólans. Samsöngur þar sem margir skólar á landinu

Viðburðarríkur skreytingardagur í Stekkjaskóla Read More »