hilmarb

Dýrin í Hálsaskógi í flutningi nemenda í 5. AI

Fimmtudaginn 27. apríl var árshátíð 5. bekkjar. Nemendur sýndu leikritið Dýrin í Hálsaskógi. Nemendur sáu um handritsgerð, leikmuni og búningahönnun og æfðu leikritið og sönginn mjög vel undir stjórn kennaranna sinna, stuðningsfulltrúa, tónmenntakennara o.fl. Jafnframt voru margir nemendur duglegir að æfa sig heima. Leiksýningin gekk alveg glimrandi vel og voru foreldrar og aðrir gestir virkilega …

Dýrin í Hálsaskógi í flutningi nemenda í 5. AI Read More »

Árshátíð 2. bekkjar

Miðvikudaginn 26. apríl var árshátíð 2. EK. Þetta var jafnframt fyrsta árshátíðin þetta skólaár og fyrsta árshátíðin í nýju skólabyggingunni okkar. Nemendur byrjuðu á því að syngja öll saman eitt lag og í framhaldinu sýndu þeir nokkra leikþætti á skjá sem þeir höfðu æft síðustu daga og vikur. Nemendur sömdu leikþættina upp úr þekktum ævintýrum …

Árshátíð 2. bekkjar Read More »

Horfið á fyrirlesturinn ,,Samvinna barnanna vegna“ hér á heimasíðunni

Þriðjudaginn 25. apríl var haldinn fundur í Árborg á vegum Heimili og skóla, landssamtaka foreldra. Fundurinn var ætlaður forsjáraðilum barna í grunnskólum, leikskólum, framhaldsskóla, frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum sem tilheyra Árborg. Fundurinn fjallaði um endurreisn foreldrastarfs í kjölfar heimsfaraldurs, mikilvægi foreldrastarfs og virk samskipti heimila og skóla. Í haust mun Heimili og skóli leiða innleiðingu farsældarssáttmála. …

Horfið á fyrirlesturinn ,,Samvinna barnanna vegna“ hér á heimasíðunni Read More »

Skertur dagur miðvikudaginn 19. apríl – starfsdagur 21. apríl

Miðvikudaginn 19. apríl er skertur dagur í Stekkjaskóla skv. skóladagatali og lýkur skóla kl. 11:20 ( allir nemendur fá hádegismat fyrir heimferð). Föstudaginn 21. apríl er starfsdagur og enginn skóli. Starfsfólk skólans er að fara í náms- og kynnisferð til Varsjár í Póllandi. Við förum m.a. í skólaheimsóknir á fimmtudag og föstudag.   Nánar:   apríl: …

Skertur dagur miðvikudaginn 19. apríl – starfsdagur 21. apríl Read More »

Ein stór fjölskylda

Nemendur og starfsmenn Stekkjaskóla fengu aldeilis frábæra gesti þriðjudaginn 28. mars síðastliðinn. Það voru félagarnir Gunnar Helgason og Felix Bergsson sem komu og fluttu dagskrána Ein stór fjölskylda fyrir alla nemendur og starfsmenn skólans. Gunnar sem er leikari og rithöfundur sagði frá því hvernig á að skrifa geggjaðar sögur og  hvað þarf til að gera …

Ein stór fjölskylda Read More »

Gleðilega páska

Starfsmenn Stekkjaskóla óska nemendum, forráðamönnum og velunnurum skólans gleðilegra páska. Páskafrí er dagana 1.-10. apríl. Skólastarf hefst að nýju samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 11. apríl.   Páskakveðjur

Kostir þess að leika og læra í náttúrunni

Þriðjudagskvöldið 28. mars síðastliðinn stóð foreldrafélag Stekkjaskóla fyrir fræðslukvöldi fyrir forráðamenn. Pétur Aðalsteinsson formaður foreldrafélagsins bauð forráðamenn og aðra gesti velkomna og kynnti Sabínu Steinunni Halldórsdóttur til leiks. Hún flutti mjög áhugverðan og skemmtilegan fyrirlestur sem bar nafnið; ,,Kostir þess að leika og læra í náttúrunni. Hreyfifærni í dag og til framtíðar“.  Þess má geta að …

Kostir þess að leika og læra í náttúrunni Read More »

Brosandi börn í nýju skólahúsnæði

Það var mikill gleðidagur hjá nemendum og starfsmönnum Stekkjaskóla í gær, miðvikudaginn 23. mars,  þegar fyrsti skóladagurinn var í nýju glæsilegu húsnæði skólans að Heiðarstekk 10 á Selfossi. Nemendur komu brosandi inn í skólann, fullir tilhlökkunar að byrja í ,,alvöru skóla“ eins og einn nemandi komst að orði. Skólinn er fallegur og vel skipulagður og …

Brosandi börn í nýju skólahúsnæði Read More »