hilmarb

Aðalfundur foreldrafélagsins

Aðalfundur Foreldrafélags Stekkjaskóla verður haldinn þriðjudaginn 12. september kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn á kaffistofu starfsmanna á 2. hæð. Vonast er eftir góðri mætingu.    

Ólympíuhlaup ÍSÍ

Nemendur og starfsmenn Stekkjaskóla ætla að taka þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ áður Norræna skólahlaupið fimmtudaginn 7. september. Eitt af markmiðum hlaupsins er að hvetja nemendur til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Hlaupið byrjar hjá færanlegu stofununum, sama stað og í fyrra. Íþróttakennarateymi skólans, þær Alda, Auður María …

Ólympíuhlaup ÍSÍ Read More »

Kynningafundir fyrir forráðamenn framundan

Á næstu dögum verða fræðslu- og kynningarfundir fyrir forráðamenn nemenda. Fundirnir fyrir forráðamenn nemenda í 1. og 5. bekk eru á vegum umsjónarkennara, skólastjórnenda og skólaþjónustu Árborgar. Aðrir fundir sjá umsjónarkennarar um og eru á skólatíma. Fyrsti fundurinn verður næstkomandi miðvikudag kl:17:00 fyrir forráðmenn barna í 1. bekk. Sjá nánar dagskrá fundarins hér. Fundurinn fyrir …

Kynningafundir fyrir forráðamenn framundan Read More »

Áformsbækur Stekkjaskóla

Við í Stekkjaskóla viljum stuðla að einstaklingsmiðuðu námi og kenna nemendum okkar að setja sér námsmarkmið út frá hæfniviðmiðum sem er unnið með hverju sinni. Með þessum bókum stuðlum við að því að nemendur setji sér markmið í samráði við kennara og samhliða sjá nemendur og foreldrar alltaf þau markmið sem stefnt er að. Í …

Áformsbækur Stekkjaskóla Read More »

Skólasetning Stekkjaskóla

Stekkjaskóli var settur í þriðja sinn miðvikudaginn 23. ágúst. Það voru glaðir nemendur sem mættu í skólann að loknu sumarleyfi og hittu vini sína, bekkjarfélaga og starfsmenn. Í skólasetningaræðu skólastjóra, Hilmars Björgvinssonar, kom fram að í byrjun skólaársins hefja 224 nemendur nám í  skólanum í 1.-6. bekk. Nýir nemendur eru 59 talsins og þar af …

Skólasetning Stekkjaskóla Read More »

Stekkur til framtíðar – skýrsla

Stekkjaskóli fékk styrk úr Sprotasjóði á vormánuðum 2021 til að vinna að þróunarverkefninu Stekkur til framtíðar – Að byggja upp lærdómssamfélag í nýjum grunnskóla.  Hér má sjá skýrslu sem verkefnastjórn skilaði til Sprotasjóðs í júní.

Skólasetning Stekkjaskóla 23. ágúst

Skólasetning Stekkjaskóla fer fram miðvikudaginn 23. ágúst 2023 kl. 9:00 í sal skólans. Eftir stutta samkomu á sal munu nemendur hitta umsjónarkennara. Nemendur í 2.-6. bekk, f. 2016 – 2012 mæta kl. 9:00 Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar (f. 2017) verða boðaðir til viðtals með umsjónarkennara. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 24. ágúst kl. 8:10. …

Skólasetning Stekkjaskóla 23. ágúst Read More »

Fréttabréf foreldrafélagsins

Stjórn foreldrafélags Stekkjaskóla hefur staðið fyrir góðu starfi á nýliðnu skólaári.  Foreldrafélagið hélt m.a. fræðsluerindi um mikilvægi hreyfingar úti í náttúrunni, aðstoðaði við vorhátíð skólans og hélt utan um tengslastarfið sem er gífurlega mikilvægt. Hér má sjá nýtt fréttabréf foreldrafélagsins og upplýsingabæklinginn fyrir tenglastarfið. Við þökkum foreldrafélaginu fyrir frábært starf á nýliðnu skólaári og óskum …

Fréttabréf foreldrafélagsins Read More »