Starfsdagur á föstudaginn – frí hjá nemendum
Næstkomandi föstudag, 24. september, er starfsdagur í Stekkjaskóla vegna haustþings kennara. Einnig er starfsdagur hjá frístundaheimili Stekkjaskóla. Nemendur verða því í fríi þennan dag.
Loftmyndir af framkvæmdum
Miklar byggingaframkvæmdir hafa verið undanfarnar vikur og mánuði á skólalóð Stekkjaskóla að Heiðarstekk 10 á Selfossi. Meðfylgjandi myndir tók Rúnar Sveinn Valgeirsson starfsmaður Auðlindar með dróna yfir verkstað 9. september síðastliðinn. Auðlindin, atvinnu- og virkniþátttaka, hefur tekið að sér ýmis fjölbreytt verkefni fyrir stofnanir sveitafélagsins eins og þetta. Á yfirlitsmyndunum sést vel hvernig færanlegu kennslustofurnar […]
Stjórnendur Stekkjaskóla skoðuðu framkvæmdir
Síðastliðinn föstudag fóru stjórnendur Stekkjaskóla að skoða færanlegu kennslustofurnar að Heiðarstekk 10. Sigurður Ólafsson deildarstjóri framkvæmda- og tæknideildar Árborgar sem hefur yfirumsjón með framkvæmdunum gekk um svæðið með Hilmari skólastjóra, Ástrós Rún aðstoðarskólastjóra og Hildi deildarstjóra. Einnig voru með í för Atli Marel sviðstjóri, Óðinn umsjónarmaður fasteigna og Davíð Örn rekstrarstjóri, allir frá mannvirkja- og umhverfissviði Árborgar. Framkvæmdir eru vel á veg komnar og áætlað er að […]
Fréttir frá Stekkjaskóla
Í dag, föstudaginn 3. september, var fyrsta fréttabréf Stekkjaskóla sent á forráðamenn nemenda. Þar munu birtast ýmsar fréttir um skólastarfið, ýmsar gagnlegar upplýsingar og hvað er helst framundan. Þess má geta að slóð inn á fréttabréfið verður jafnframt sett hér á heimasíðu skólans. Heimasíðan verður sem fyrr helsta upplýsingaveita skólans. Hugmyndin er að senda svona […]
Skólastarfið fer vel af stað
Það er ánægjulegt að segja frá því að skólastarfið hefur farið vel af stað í Stekkjaskóla. Margt hefur verið gert til að brjóta upp hefðbundið starf með útiveru og ferðalögum. Síðastliðinn miðvikudag fór t.d. 4. bekkur í Alviðru og gekk ferðin vel. Veðrið hefði mátt vera betra en allir komu glaðir heim. Nemendur í 2. […]