Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Starfsfólk Stekkjaskóla óskar nemendum, forráðamönnum og öðrum velunnurum skólans gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. 

Við þökkum fyrir ánægjulegt og gott samstarf á árinu sem er að líða og þann hlýhug sem okkur hefur verið sýndur á þessum fyrstu mánuðum í rekstri skólans.

Kennsla hefst á nýju ári þriðjudaginn 4. janúar 2022 samkvæmt stundatöflu.

Skrifstofa skólans er lokuð vegna jólaleyfis frá og með fimmtudeginum 23. desember til mánudagsins 3. janúar 2022.

Bestu jólakveðjur,

Starfsfólk Stekkjaskóla