Uncategorized

Bangsadagur og hrekkjavökudagur

Alþjóðlegi bangsadagurinn er miðvikudaginn 27.okt og þann dag mega nemendur Stekkjaskóla koma með einn bangsa sem passar í skólatöskuna og mæta í kósýgalla/náttfötum ef þeir vilja. Nemendum í 1.- 4. bekk er boðið á Bangsadiskó með Vallaskóla í íþróttahúsi Vallaskóla þennan dag.  Föstudaginn 29.okt ætlum við svo að taka forskot á Hrekkjavökuna (e.Halloween) og mæta í grímubúningum (engin vopn eða aukahlutir leyfð), með vasaljós, sparinesti og fernudrykk (nammi, snakk og gos flokkast ekki undir sparinesti). 

Heimsókn í Veiðisafnið á Stokkseyri

Fimmtudaginn 21. október heimsóttu nemendur í 2.-3.ES og starfsmenn Veiðisafnið á Stokkseyri. Páll eigandi safnsins tók á móti hópnum og sagði frá dýrunum. Þar voru m.a. uppstoppaður gíraffi sem hann skaut sjálfur, sebrahestar, nashyrningur, ísbjörn og mörg fleiri dýr. Að heimsókn fór hópurinn í heimsókn til Jóhönnu kennara sem býr á Stokkseyri.

Bleikur dagur í Stekkjaskóla 

Þann 13. október síðastliðinn var bleikur dagur í Stekkjaskóla þar sem nemendur og starfsmenn mættu í einhverju bleiku eða höfðu eitthvað bleikt á sér.  Bleiki dagurinn er hápunktur Bleiku slaufunnar árlegs árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameins­félagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.   Það var gaman að sjá bleika litinn sem var ríkjandi í Stekkjaskóla þennan dag. Á meðfylgjandi myndum má sjá nemendur og starfsmenn í hinum bleika tón. Þennan dag færðu stjórnendur …

Bleikur dagur í Stekkjaskóla  Read More »

Nemendur í 4. IM heimsóttu Listasafn Árnesinga 

Mánudaginn 11. október fór 4. bekkur í heimsókn á Listasafn Árnesinga í tengslum við verkefnið  Þræðir. Nemendur röltu um safnið og skoðuðu sýninguna Hafið kemst vel af án okkar og feminísku sýningunum Áhrif og andagift með vekum eftir listakonuna Rósku, Iðustreymi og Yfirtaka. Þetta var skemmtilegt verkefni sem má lesa nánar um hér: Þræðir. 

Haustfrí 14. og 15. október

Haustfrí er í grunnskólum Árborgar  fimmtudaginn 14. október og föstudaginn 15. október. Frístund Stekkjaskóla er jafnframt lokuð. Við  í Stekkjaskóla óskum nemendum og forráðamönnum ánægjulegs haustfrís.

Fréttir til forráðamanna

Í dag sendu stjórnendur Stekkjaskóla fréttabréf á forráðamenn. Meðal efnis er umfjöllun um stöðu framkvæmda við færanlegu kennslustofurnar, undirbúningur að stofnun foreldrafélags skólans, hverjir eru foreldratenglar, fréttir frá list- og verkgreinakennurum og umfjöllun um áformsbækur og námsmarkmið. Framundan er haustfrí, þ.e. fimmtudaginn 14. október og föstudaginn 15. október. Frístund Stekkjaskóla er jafnframt lokuð. Við óskum …

Fréttir til forráðamanna Read More »

Nemendur Stekkjaskóla tóku þátt í  Ólympíuhlaupi ÍSÍ

Síðastliðinn fimmtudag, 30. september,  tóku allir nemendur Stekkjaskóla þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Hlaupið fór fram á tjaldstæðinu við Gestshús og  á íþróttavallasvæðinu.  Minnst átti að hlaupa 2,5 km en mesta vegalengdin var 10 km. Samtals hlupu nemendur Stekkjaskóla 366 km sem er næstum því eins langt og að hlaupa frá Selfossi til Hafnar í Hornarfirði. Nemendur Stekkjaskóla voru ótrúlega duglegir að hlaupa og allir gerðu sitt besta. Hér má sjá nánar um Ólympíuhlaup ÍSÍ.

Gervigrasið komið á leikvöll Stekkjaskóla

Lóðaverktakar hafa verið að vinna á fullu í lóðinni í vikunni. Búið er að leggja gervigras á fótboltavöllinn, helluleggja og leiktækin eru væntanleg á lóðina. Það er  fyrirtækið PRO – garðar ehf sem sjá um lóðaframkvæmdir og stefna þeir á að ljúka sínum þætti í næstu viku. Meðfylgjandi myndir voru teknar síðastliðinn miðvikudag.