Val í Stekkjaskóla

Í Stekkjaskóla leggjum við mikla áherslu á fjölbreytt nám og fjölbreytta kennslu. Með því að bjóða upp á val frá 5. bekk viljum við efla nemendalýðræði og áhugasviðsnám. Markmiðið er líka að virkja nemendur á því sviði sem þau hafa áhuga á, að vinna saman þvert á árganga og jafnframt að kynna fyrir þeim nýjar og fjölbreyttar greinar.

  • Valinu í Stekkjaskóla er skipt í þrennt.
    • 5. og 6. bekkur saman = tvær kennslustundir á viku
    • 7. og 8. bekkur saman = sex kennslustundir á viku
    • 9. bekkur = sjö kennslustundir á viku
  • 5. og 6. bekkur eru einnig í smiðjum sem nær yfir allar list- og verkgreinar.
  • Hjá 7. og 8. bekk er valinu skipt upp í tvo flokka. Val-A nær til fjögurra kennslustunda á viku. Val-B nær til tveggja kennslustunda á viku. List- og verkgreinakennsla fer fram að mestu í Val-A hlutanum.
  • Í 9. bekk er valinu skipt upp í þrjá flokka. Val-A nær til fjögurra kennslustunda á viku. Val-B nær til tveggja kennslustunda á viku. Val-C nær til einnar kennslustunda á viku. List- og verkgreinakennsla fer fram að mestu í Val-A hlutanum. Val-C er nýtt hjá okkur og er bóklegt nám til þess að styrkja eða efla nemendur í bóklegum greinum.
  • Það verða fimm tímabil í vetur þar sem nemendur geta valið. Nemendur í 5. árgangi fá að velja fmm mismunandi valgreinar yfir skólaveturinn. Nemendur í 6. og 7. árgangi fá að velja 10 mismunandi valgreinar yfir skólaveturinn. Nemendur í 9. bekk fá að veja 15 mismunandi valgreinar yfir skólaveturinn.
  • Val B er samkennt hjá 7.-9. bekk. Þar kemur inn metið val sem eru utan skóla tómstundir t.s. íþróttaæfingar, tónlistarnám, björgungarsveit, skátar o.fl. Ef nemendur eru að sinna utan skóla tómstundum í 8. og 9. bekk þá þurfa þau ekki að mæta í Val B.

Hugmynd að uppsetningu er unnin eftir fyrirmynd Húsaskóla í Reykjavík.
Ef einhverjar spurningar vakna þá hafið samband við Leif Viðarsson: leifur@stekkjaskoli.is

Valgreinatímabil

Val 1 - Tímabil 24. ágúst - 9. október
5.-6. bekkur (opens in new tab)         7.-8. bekkur(opens in new tab)         9. bekkur(opens in new tab)
(opens in new tab)