Val í 7.- 8. bekk

Tímabil 1: 24. ágúst - 9. október

 Val A

Er kennt á mánudögum og fimmtudögum kl. 12:30-13:50


01 Heimilisfræði

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hilmar Guðlaugsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Heimilisfræði er ekki valgrein í A vali. Allir fara í heimilisfræði einu sinni í vetur.

Í þessu valfagi er lögð áhersla á eldamennsku og bakstur í bland.

Farið verður yfir meðhöndlun hráefnis og matvæla, umgengni og þrif á helstu áhöldum í eldhúsinu auk almenns frágangs. Auk þess verur farið yfir tengsl næringar og heilsu ásamt ýmsum þáttum tengdum heimilishaldi.

Í vetur munu nemendur nota vefinn til að finna uppskriftir. Velja sér eitthvað til að elda eða baka og taka sig svo upp. Hluti af námsmatinu í heimilisfræði er myndbandið sem nemendur skila af sér.

Hæfniviðmið

  • Kynnist helsta handbragði í matreiðslu og bakstri.
  • Matreitt einfalda rétti eftir uppskrift og unnið sjálfstætt.
  • Farið eftir leiðbeiningum um hreinlæti og þrif tengdu heimilishaldi.
  • Gert sér grein fyrir helstu kostnaðarliðum við heimilishald og sé meðvitaður um neytendavernd.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, vandvirkni, umgengni og ábyrgð eru metin.

 


02 Hönnun

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Leifur Viðarssong og Magnús Hilmar Viktorsson
Hámarksfjöldi: 16 nemendur

Ertu með frábæra hugmynd að einhverju? Íþróttabúningar, plötuumslög, vefsíða, tískufatnaður, listmunir o.fl. Ef þú hefur brennandi áhuga á hönnun þá finnum við leið til að þróa hugmyndina. Hér eru nánast engin takmörk.

Hæfniviðmið

  • Útskýrt hugmyndir sínar með því að rissa upp málsetta vinnuteikningu.
  • Nýtt hugbúnað við hönnun tvívíðra og þrívíðra forma.
  • Notað mismunandi efni, verkfæri, miðla og tækni, á skipulagðan hátt í eigin sköpun.
  • Byggt eigin listsköpun á hugmyndavinnu tengdri ímyndun, rannsóknum og reynslu.
  • Unnið hugmynd frá skissu að lokaverki bæði fyrir tví- og þrívíð verk.

Námsmat

Virkni, þátttaka og hugmyndavinna.

 


03 Textílmennt - Garnlitun og prjón

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 16 nemendur

Nemendur læra að lita garn á einfaldan hátt og prjóna síðan úr því einfalda hluti til skrauts eða notkunar t.d. húfur, eyrnabönd, bolta, bangsa eða eitthvað annað sem nemendum langar að prjóna.

Hæfniviðmið:

  • að nemendur kynnist grunnaðferðum og áhöldum greinarinnar
  • að nemandi nái undirstöðufærni í prjóni, þ.e. að fitja upp, fella af og prjóna slétta prjón.
  • að nemandi sé sjálfstæður og vinnubrögðum

Námsmat:

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt þátttöku í tímum. 

 


04 Pizzabretti og hnífur

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Þuríður Ingvarsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Nemendur smíða áhöld til pizzugerðar.  Tálga skaft fyrir pizzahníf og smíða pizzabretti sem þau merkja í laser í Fablab.

Hæfniviðmið:

  • Að nemendur noti ólíkan efnivið, ómeðhöndlaðan nýjan við í bland við unnið timbur.
  • Að  nemendur vinni hugmynd frá skissu að tilbúnum hlut.
  • Að nemendur læri að nota verkfæri við hæfi, beita þeim rétt og rétta umhirðu þeirra.

Námsmat

Leiðsagnarmat og símat.

 


05 Frisbígolf

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Bára Sif Gunnlaugsdóttir og Heiðar Pétur Halldórsson
Hámarksfjöldi: 16 nemendur

Við munum fara í frisbígolf á frisbígolfsvellinum hér á Selfossi. Við förum hjólandi frá skólanum, því er mikilvægt að nemendur mæti á hjóli í skólann. Þau sem eiga frisbígolfsdiska mega endilega taka þá með sér, en kennarinn verður líka með diska fyrir þá sem koma ekki með sína.

Markmið

  • Að nemendur kynnist frisbígolfi.
  • Læri helstu grip og köst í frisbí.
  • Sýni sjálfstæði og taki ábyrgan þátt í útivist.

Námsmat

Þátttaka og virkni nemenda.


Val B

Er kennt á þriðjudögum kl. 12:30-13:50

01 Stuttmyndagerð

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 6 vikur
Kennari: Elín Ása Magnúsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Í þessu vali förum við í gegnum hvernig er best að gera stuttmyndir frá A-Ö

Námsmarkmið eru að nemendur:

  • Fái þjálfun og læri að gera verkáætlun frá hugmynd að fullunnu verki
  • Kynnist hvað felst í gerð kvikmynda eins og til að mynda handritsgerð 
  • Læra að nota ný forrit eins og í Imovie og klippa til stuttmyndina
  • Þjálfast í samvinnu sem og sjálfstæðum vinnubrögðum

Námsmat:

Leiðsagnarmat og símat þar sem metið er frumkvæði og lykilhæfni.


02 Útikennsla og ýmislegt fleira

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 6 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Nemendur kynnast því að kveikja upp í eldstæði og baka lummur, hita kakó, súpur og fleira sem við getum gert á eldstæðinu.  Þegar ekki eru aðstæður til að kveikja upp verður farið í göngutúr um nágrenni skólans og farið á leikvelli.  Mikilvægt er að nemendur klæði sig eftir veðri.

Hæfniviðmið:

  • að nemendur sýni ábyrga og örugga umgengni við vinnu og frágang á vinnusvæði.
  • að nemendur geti tekið tillit til annarra í í hópavinnu og sýnt frumkvæði.
  • að nemendur geti unnið á skipulagðan hátt.

Námsmat:

Hvernig verður námsmatið?

Leiðsagnarmat og símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, umgengni og vandvirkni.


03 Music Fusion

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 6 vikur
Kennari: Guðný Lára Gunnarsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Ertu til í tónlist, karaoke, spil, kvikmyndir og skemmtilegar áskoranir? Í Music Fusion blöndum við þessu öllu saman. Við förum í tónlistarleiki og keppnir, karaoke og kannski lip-sync, spilum tónlistarspil, horfum á kvikmynd tengda tónlist og prófum skapandi verkefni tengd lögum og listamönnum. Þú þarft ekki að kunna á hljóðfæri eða vera góður söngvari – bara vera til í að taka þátt og hafa gaman! 

Hæfniviðmið:

  • Nemandi beitir rödd sinni í söng eða rappi, einn eða með öðrum.
  • Nemandi greinir ólíka tónlistarstíla og tengir þá við menningu og samhengi.
  •  Nemandi beitir gagnrýninni hugsun við mat á tónlist með hliðsjón af stíl, fagurfræði og eigin smekk.
  • Nemandi greinir og metur eigin tónlistarvinnu og vinnu samnemenda af sanngirni og virðingu.

Námsmat:
Leiðsagnarmat, símat og sjálfsmat þar sem metin eru þátttaka, virkni og samvinna nemenda.


04 Myndsköpun og súrrealískar áskoranir

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 5 vikur
Kennari: Úlfur Karlsson
Hámarksfjöldi: 18 nemendur

Hefurðu gaman af myndum, furðulegum hugmyndum og því að skapa eitthvað sem kemur á óvart? Í Myndsköpun og súrrealískum áskorunum fá nemendur að kynnast hugmyndum og vinnubrögðum tékkneska listamannsins og kvikmyndagerðarmannsins Jan Švankmajer. Við skoðum hvernig hægt er að gefa hversdagslegum hlutum nýtt líf með því að setja þá í óvænt samhengi, breyta þeim, klippa þá í sundur og skapa úr þeim nýjar og undarlegar hugmyndir.

Nemendur vinna með teikningar, myndir, úrklippur og ýmislegt myndefni og fá tækifæri til að prófa óhefðbundnar leiðir í myndsköpun. Unnið verður meðal annars með klippimyndir og myndasamsetningar þar sem nemendur geta klippt úr teiknimyndablöðum og öðru myndefni, raðað saman á nýjan hátt og skapað eigin persónur, senur og sögur.

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á leik, tilraunir og hugmyndaflug fremur en að allt þurfi að vera „rétt“ eða fullkomið. Nemendur fá að kanna hvernig myndir geta sagt sögur án orða og hvernig ólíkir hlutir geta tekið á sig nýja merkingu þegar þeir eru settir saman á óvæntan hátt.

Afrakstur námskeiðsins verður sýnilegur í skólanum. Verk nemenda verða sett upp á veggjum skólans í sameiginlegri sýningu þannig að hægt verði að sjá fjölbreyttan og skapandi afrakstur námskeiðsins að því loknu.

Engin sérstök reynsla er nauðsynleg – bara áhugi á að prófa nýjar hugmyndir, klippa, líma, teikna og sjá hvað gerist þegar ímyndunaraflið fær að ráða.

Hæfniviðmið:

  • Nemandi þróar eigin hugmynd og útfærir hana í skapandi myndverki.
  • Nemandi kynnist óhefðbundnum aðferðum við myndsköpun og beitir hugmyndaflugi í eigin verkefnum.
  • Nemandi getur notað myndir, úrklippur, teikningar og ólík efni til að skapa nýja myndræna merkingu.
  • Nemandi sýnir frumkvæði og þorir að prófa ólíkar leiðir og gera tilraunir í skapandi vinnu.
  • Nemandi metur eigin verk og vinnuferli og tekur við ábendingum sem geta hjálpað við að þróa hugmyndir áfram.
  • Nemandi tekur þátt í sameiginlegri sýningu og getur rætt um eigin verk og skapandi ferli.

Námsmat:

Leiðsagnarmat, símat og sjálfsmat þar sem lögð er áhersla á þátttöku, frumkvæði, hugmyndaflug, tilraunir, úrvinnslu og vinnu við verkefnin. Einnig er horft til þess hvernig nemandi þróar hugmynd sína frá upphafi til loka og tekur þátt í uppsetningu sameiginlegrar sýningar.


Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða spurningar þá vinsamlegast sendið línu á leifur@stekkjaskoli.is