Tímabil 1: 25. ágúst - 10. október

 Val A

Er kennt á mánudögum og fimmtudögum kl. 11:10-12:30


01 Heimilisfræði

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hilmar Guðlaugsson
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Heimilisfræði er ekki valgrein í A vali. Allir fara í heimilisfræði einu sinni í vetur.

Í þessu valfagi er lögð áhersla á eldamennsku og bakstur í bland.

Farið verður yfir meðhöndlun hráefnis og matvæla, umgengni og þrif á helstu áhöldum í eldhúsinu auk almenns frágangs. Auk þess verur farið yfir tengsl næringar og heilsu ásamt ýmsum þáttum tengdum heimilishaldi.

Í vetur munu nemendur nota vefinn til að finna uppskriftir. Velja sér eitthvað til að elda eða baka og taka sig svo upp. Hluti af námsmatinu í heimilisfræði er myndbandið sem nemendur skila af sér.

Hæfniviðmið

  • Kynnist helsta handbragði í matreiðslu og bakstri.
  • Matreitt einfalda rétti eftir uppskrift og unnið sjálfstætt.
  • Farið eftir leiðbeiningum um hreinlæti og þrif tengdu heimilishaldi.
  • Gert sér grein fyrir helstu kostnaðarliðum við heimilishald og sé meðvitaður um neytendavernd.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, vandvirkni, umgengni og ábyrgð eru metin.

 


02 XXX

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: XXX
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

V...

Hæfniviðmið

  • N...

Námsmat

S.

 


03 Klukka

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Þuríður Ingvarsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Nemendur hanna og smíða klukku í samráði við kennara.

Hæfniviðmið:

  • Að nemendur noti ólíkan efnivið, timbur, plexigler o.fl. 
  • Að  nemendur vinni hugmynd frá skyssu að tilbúnum hlut 
  • Að nemendur læri að nota verkfæri við hæfi, beita þeim rétt og rétta umhirðu þeirra. 

Námsmat:

Leiðsagnar- og símat.

 


04 Frisbígolf

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Magnús Hilmar Viktorsson og Viktorija Riskute
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Við munum fara í frisbígolf á frisbígolfsvellinum hér á Selfossi. Við förum hjólandi frá skólanum, því er mikilvægt að nemendur mæti á hjóli í skólann. Þau sem eiga frisbígolfsdiska mega endilega taka þá með sér en kennarinn verður líka með diska fyrir þá sem koma ekki með sína. 

Skilyrði: Mæta á hjóli/hlaupahjóli

Hæfniviðmið:

  • Að nemendur kynnist frisbígolfi 
  • Læri helstu grip og köst í frisbí 
  • Sýni sjálfstæði og taki ábyrgan þátt í útivist

Námsmat:

Þátttaka og virkni nemenda.

 


 

Val B

Er kennt á þriðjudögurm kl. 12:30-13:50


01 Stuttmyndagerð

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Elín Ása Magnúsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Í þessu vali förum við í gegnum hvernig er best að gera stuttmyndir frá A-Ö

Námsmarkmið eru að nemendur:

  • Fái þjálfun og læri að gera verkáætlun frá hugmynd að fullunnu verki
  • Kynnist hvað felst í gerð kvikmynda eins og til að mynda handritsgerð 
  • Læra að nota ný forrit eins og í Imovie og klippa til stuttmyndina
  • Þjálfast í samvinnu sem og sjálfstæðum vinnubrögðum

Námsmat:

Leiðsagnarmat og símat þar sem metið er frumkvæði og lykilhæfni.

 


02 Byggjum skólann

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Leifur Viðarsson
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Í þessu vali er planið að smíða skólann (og mögulega aðrar byggingar á Selfossi) í Minecraft. Hér reynir á samvinnu og hönnun.

Hæfniviðmið

  • Samvinna og lausnamiðuð hugsun.
  • Netsiðferði og samskiptahæfni.

Námsmat

Símat, leiðsagnarmat, vinnusemi, frumkvæði, vandvirkni, umgengni og ábyrgð.

 


03 Jógachill“ og Tóna-töfrar! 

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Guðný Lára Gunnarsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Í haust fáum við tækifæri til að prófa jóga, slökun, núvitund og tónheilun í skólanum – og þetta er alls ekkert venjulegt líkamsræktarprógram! Engin keppni, enginn samanburður. Bara þú, líkamin þinn og andardrátturinn. Við byrjum rólega, hreyfum okkur aðeins, æfum öndun, og slökum svo vel á. Stundum notum við tónlist, stundum gerum við létta leiki, stundum bara hlustum við. Þú mátt vera eins og þú ert – og taka þátt á þínum forsendum. 

Við ætlum að:

  • Hreyfa okkur  – með stöðum sem kenna okkur jafnvægi, styrk og mýkt. 
  • Læra öndunartækni sem getur róað hugann og gefið okkur betri einbeitingu.
  • Prófa hugleiðslu og slökun – bara liggja, hlusta og vera.
  • Leika okkur í skemmtilegum leikjum! 
  • Upplifa tónlist í líkamanum – með gongi, söngskálum frá Tíbet, Indjánaflautum og fleiru spennandi ♫♫♫. 
  • Finna leiðir til að takast á við stress og álag. 
  • Og kannski það mikilvægasta: finna ró og tengjast sjálfum sér ♥.

Hvað segja börn/unglingar sem hafa prufað Jóga? 

„Ég hélt að þetta væri leiðinlegt, en þetta var ótrúlega næs.“ 
„Ég fattaði loksins hvernig maður róar hugann.“ 
„Ég fann fyrir styrk sem ég vissi ekki að ég hefði.“

Hæfniviðmið:  

  • Aukin lífsgæði, sjálfstraust og vellíðan 
  • Kynnist menningarlegum áhrifum tónlistar og jóga. 
  • Aukinn skilningur á hvernig jóga hefur heildræn áhrif á líkama og sál  
  • Aukin færni í að framkvæma grunnæfingar í jóga með tilliti til öndunar, jafnvægis og liðleika. 
  • Aukinn skilningur á áhrifum tónlistar og hreyfingar á eigin tilfinningar og líðan

Námsmat

Sjálfsmat nemenda og símat kennara þar sem litið verður til þátttöku og virkni nemenda. 

 


04 Skissuteikningar og hugmyndavinna

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Áslaug Tóka Gunnlaugsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Hér verður megináhersla lögð á mismunandi skissugerð, teikningar og hugmyndavinnu.  Nemendur búa til sína hugmynd að skissu- eða hugmyndabók. 

Hæfniviðmið

  • Fjallað um eigin verk og verk annarra í virku samtali við aðra nemendur.
  • Unnið hugmynd frá skissu að lokaverki bæði fyrir tví- og þrívíð verk.

Námsmat

Virkni og þátttaka í tímum og verkefnaskil.

 


05 Útikennsla og ýmislegt smálegt

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Þegar veður er gott fara nemendur út og kveikja upp í eldstæðinu þar sem þeir munu baka lummur, hita kakó, poppa popp og ýmislegt fleira.

Einhverjir tímar verða inni þar sem unnið er að litlum textílverkum eins og hnýttar lyklakippur, nálaþæfing eða unnið með leður.

Hæfniviðmið:

  • Að nemendur sýni ábyrga og örugga umgengni við vinnu og frágang á vinnusvæði
  • Að nemendur geti tekið tillit til annarra í hópvinnu og sýnt frumkvæði.
  • Að nemendur geti unnið á skipulagðan hátt.

Námsmat

Leiðsagnarmat, verkefnavinna á veggspjöldum og virkni í tímum.


06 Inkscape tölvuteikning

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Þuríður Ingvarsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Nemendur læra grunnatriði í teikniforritinu Inkscape og hanna/teikna sinn eigin hlut til framleiðslu vinylskera. Búum til límiða og merkingar á textíl/fatnað. Áhersla lögð á eigin teikningu og hönnun.

Hæfniviðmið:

  • Að nemendur læri grunnatriði í tölvuteikningu
  • Að nemendur vinni með texta og eigin teikningar í forritinu
  • Að nemendur vinni hugmynd frá skissu að tilbúnum hlut
  • Að nemendur læri að vista skjöl rétt og flytja yfir í önnur tæki.

Námsmat

Leiðsagnarmat og símat.


Val C

Er kennt á mánudögum kl. 12:30-13:10


01 Stuttmyndagerð

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Elín Ása Magnúsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Í þessu vali förum við í gegnum hvernig er best að gera stuttmyndir frá A-Ö

Námsmarkmið eru að nemendur:

  • Fái þjálfun og læri að gera verkáætlun frá hugmynd að fullunnu verki
  • Kynnist hvað felst í gerð kvikmynda eins og til að mynda handritsgerð 
  • Læra að nota ný forrit eins og í Imovie og klippa til stuttmyndina
  • Þjálfast í samvinnu sem og sjálfstæðum vinnubrögðum

Námsmat:

Leiðsagnarmat og símat þar sem metið er frumkvæði og lykilhæfni.

 


02 Byggjum skólann

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Leifur Viðarsson
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Í þessu vali er planið að smíða skólann (og mögulega aðrar byggingar á Selfossi) í Minecraft. Hér reynir á samvinnu og hönnun.

Hæfniviðmið

  • Samvinna og lausnamiðuð hugsun.
  • Netsiðferði og samskiptahæfni.

Námsmat

Símat, leiðsagnarmat, vinnusemi, frumkvæði, vandvirkni, umgengni og ábyrgð.

 


03 Jógachill“ og Tóna-töfrar! 

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Guðný Lára Gunnarsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Í haust fáum við tækifæri til að prófa jóga, slökun, núvitund og tónheilun í skólanum – og þetta er alls ekkert venjulegt líkamsræktarprógram! Engin keppni, enginn samanburður. Bara þú, líkamin þinn og andardrátturinn. Við byrjum rólega, hreyfum okkur aðeins, æfum öndun, og slökum svo vel á. Stundum notum við tónlist, stundum gerum við létta leiki, stundum bara hlustum við. Þú mátt vera eins og þú ert – og taka þátt á þínum forsendum. 

Við ætlum að:

  • Hreyfa okkur  – með stöðum sem kenna okkur jafnvægi, styrk og mýkt. 
  • Læra öndunartækni sem getur róað hugann og gefið okkur betri einbeitingu.
  • Prófa hugleiðslu og slökun – bara liggja, hlusta og vera.
  • Leika okkur í skemmtilegum leikjum! 
  • Upplifa tónlist í líkamanum – með gongi, söngskálum frá Tíbet, Indjánaflautum og fleiru spennandi ♫♫♫. 
  • Finna leiðir til að takast á við stress og álag. 
  • Og kannski það mikilvægasta: finna ró og tengjast sjálfum sér ♥.

Hvað segja börn/unglingar sem hafa prufað Jóga? 

„Ég hélt að þetta væri leiðinlegt, en þetta var ótrúlega næs.“ 
„Ég fattaði loksins hvernig maður róar hugann.“ 
„Ég fann fyrir styrk sem ég vissi ekki að ég hefði.“

Hæfniviðmið:  

  • Aukin lífsgæði, sjálfstraust og vellíðan 
  • Kynnist menningarlegum áhrifum tónlistar og jóga. 
  • Aukinn skilningur á hvernig jóga hefur heildræn áhrif á líkama og sál  
  • Aukin færni í að framkvæma grunnæfingar í jóga með tilliti til öndunar, jafnvægis og liðleika. 
  • Aukinn skilningur á áhrifum tónlistar og hreyfingar á eigin tilfinningar og líðan

Námsmat

Sjálfsmat nemenda og símat kennara þar sem litið verður til þátttöku og virkni nemenda. 

 


04 Skissuteikningar og hugmyndavinna

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Áslaug Tóka Gunnlaugsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Hér verður megináhersla lögð á mismunandi skissugerð, teikningar og hugmyndavinnu.  Nemendur búa til sína hugmynd að skissu- eða hugmyndabók. 

Hæfniviðmið

  • Fjallað um eigin verk og verk annarra í virku samtali við aðra nemendur.
  • Unnið hugmynd frá skissu að lokaverki bæði fyrir tví- og þrívíð verk.

Námsmat

Virkni og þátttaka í tímum og verkefnaskil.

Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða spurningar þá vinsamlegast sendið línu á leifur@stekkjaskoli.is