Val í 9. bekk

Tímabil 2: 12. október - 27. nóvember

 Val A

Er kennt á mánudögum og fimmtudögum kl. 11:10-12:30


01 Heimilisfræði

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hilmar Guðlaugsson
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Heimilisfræði er ekki valgrein í A vali. Allir fara í heimilisfræði einu sinni í vetur.

Í þessu valfagi er lögð áhersla á eldamennsku og bakstur í bland.

Farið verður yfir meðhöndlun hráefnis og matvæla, umgengni og þrif á helstu áhöldum í eldhúsinu auk almenns frágangs. Auk þess verur farið yfir tengsl næringar og heilsu ásamt ýmsum þáttum tengdum heimilishaldi.

Í vetur munu nemendur nota vefinn til að finna uppskriftir. Velja sér eitthvað til að elda eða baka og taka sig svo upp. Hluti af námsmatinu í heimilisfræði er myndbandið sem nemendur skila af sér.

Hæfniviðmið

  • Kynnist helsta handbragði í matreiðslu og bakstri.
  • Matreitt einfalda rétti eftir uppskrift og unnið sjálfstætt.
  • Farið eftir leiðbeiningum um hreinlæti og þrif tengdu heimilishaldi.
  • Gert sér grein fyrir helstu kostnaðarliðum við heimilishald og sé meðvitaður um neytendavernd.

Námsmat

Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, vandvirkni, umgengni og ábyrgð eru metin.

Mother and teenage kids are preparing homemade pizza for lunch.
Teenage boy is grating cheese, the girl is peeling garlic, and the mother is washing mushrooms.
Shot with Canon R5

 


02 Hönnun og prjón

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Nemendur hafa val um að hanna/breyta fötum og að prjóna sér flík.  Nemendur sem vilja sauma nýta sér efnivið sem til er í skólanum eða koma með efnivið að heiman sem þeir nýta til að hanna nýja hluti.

Hæfniviðmið:

  • Að nemendur kynnist grunnaðferðum og áhöldum greinarinnar
  • Að  nemendur vinni hugmynd frá skissu að tilbúnum hlut 
  • Að nemendur geti unnið eftir ferli og leyft sköpunargleðinni að ráða. 

Námsmat:

Leiðsagnar- og símat.

 


03 Snillismiðja

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Þuríður Ingvarsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Lærum að teikna í tölvuforritum bæði tvívídd og þrívídd og vinnum með eigin teikningar. 

Búum til límmiða, merkjum textíl, þrívíddarprentum, förum í laser og jafnvel fleira.

Vinnan fer fram í skólanum og í Fablab (hjólum eða löbbum þangað).

Hæfniviðmið:

  • Að nýta stafræna tækni til framleiðslu.
  • Að vinna hugmynd frá skissu að lokaafurð.
  • Að nota fjölbreyttan efnivið

Námsmat:

Leiðsagnar- og símat.

 


04 Íþróttaval

Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Magnús Hilmar Viktorsson og Viktorija Riskute
Hámarksfjöldi: 12 nemendur

Í áfanganum fá nemendur tækifæri til að kynnast fjölbreyttum íþróttum og hreyfingu. Við munum fara til dæmis í borðtennis, badminton og aðrar íþróttir sem hægt er að stunda í fjölnotasal skólans. Einnig munum við fara í körfubolta, fótbolta og aðrar íþróttir úti til að nýta aðstöðu og svæði í nærumhverfi skólans þegar veður leyfir. Áhersla verður lögð á hreyfingu, samvinnu og að nemendur taki virkan þátt í tímunum

Hæfniviðmið:

  • Tekið þátt í fjölbreyttum íþróttum og hreyfingu og beitt grunnfærni við ólíkar aðstæður.
  • Unnið með öðrum, farið eftir reglum og sýnt sanngirni og tillitssemi.
  • Metið eigin þátttöku og framfarir og áttað sig á mikilvægi hreyfingar fyrir heilsu og vellíðan.

Námsmat:

Þátttaka og virkni nemenda.

 


Val B

Er kennt á þriðjudögum kl. 12:30-13:50

01 Tölvuleikjahönnun

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Bryndís Kjartansdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Í þessu vali kynnast nemendur því hvernig forrit og leikir verða til. Við ætlum að læra einfaldar skipanir til þess að hanna og forrita einfalda tölvuleiki í tvívídd. Forritunarmálið sem við vinnum með heitir Scratch sem er hugbúnaður gerður fyrir börn. Hér verður sköpunargleði og útsjónarsemi í aðalhlutverki.

Hæfniviðmið:

  • Þekkja einfaldar skipanir í forritun
  • Þekkja nokkur grunnhugtök í tölvunarfræði
  • Þjálfa rökhugsun og útsjónarsemi
  • Geta hannað einfaldan leik

Námsmat:

Símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði og vandvirkni.


02 Límmiðar og fatavinyll

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Nemendur kynnast eiginleikum vinyls sem við notum til að setja texta/myndir á efni.  Lærum hvernig við getum notað vinyl til að búa til límmiða til skrauts sem og til að merkja hluti.

Val verður um verkefni t.d. púðar, litlar töskur eða pokar.  Allir þurfa að gera eitt verkefni þar sem notaður er strauvinyll og eitt verkefni það sem notaður er límmiðavinyll.

Nemendur geta komið með fatnað að heiman og sett strauvinyl á fatnaðinn til skrauts.

Hæfniviðmið:

  • Þekkir eiginleika vinyls í textíl og hvaða möguleika það gefur.
  • Getur unnið með hugmynd frá skissu að fullgerðum hlut.

Námsmat:

Leiðsagnarmat og símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, umgengni og vandvirkni.


03 Leikræn tjáning og spuni

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Guðný Lára Gunnarsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Í smiðjunni vinnum við með leikræna tjáningu á skapandi og skemmtilegan hátt. Áhersla verður á spuna, líkamstjáningu, rödd, persónusköpun, framkomu og samvinnu.

Við förum í fjölbreytta leiklistarleiki og æfingar þar sem nemendur fá að prófa sig áfram, bregðast við í augnablikinu og byggja áfram á sínum eigin hugmyndum og annarra. Unnið verður bæði í pörum og litlum hópum og notast við einfaldar kveikjur, texta, aðstæður og hugmyndir nemenda sjálfra.

Áherslan er fyrst og fremst á sköpunargleði, samvinnu, tjáningu og að öðlast meira öryggi í leik og framkomu. 

Í lok smiðjunnar vinna nemendur stutt leikræn verkefni eða spuna þar sem þeir nýta það sem þeir hafa lært.

Hæfniviðmið:

  • Geti nýtt sér hugmyndir jafningja og lagt fram sínar eigin í leikrænu ferli og við undirbúning og sköpun leikþáttar. 
  • Geti skapað skýra leikpersónu og viðhaldið henni í stuttum leikþætti með viðeigandi radd- og líkamsbeitingu. 
  • Geti unnið í hópi að fjölbreyttum leiklistarverkefnum, lagt fram sínar eigin hugmyndir og nýtt hugmyndir annarra við undirbúning og sköpun leikþátta. 

Námsmat:

Leiðsagnarmat, símat og sjálfsmat þar sem metin eru þátttaka, virkni og samvinna nemenda.


04 Þrívídd og litaskynjun

Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Úlfur Karlsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur

Hefurðu áhuga á litum, formum og því hvernig við sjáum hluti? Í Þrívídd og litskynjun fá nemendur að kanna hvernig litir, form, ljós og rými hafa áhrif á það sem við sjáum.

Nemendur vinna með fjölbreytt verkefni í tví- og þrívídd, meðal annars með pappír, pappa, leir og öðrum einföldum efnum. Unnið verður með form, byggingu, sjónhverfingar, litablöndun og ólíkar leiðir til að skapa tilfinningu fyrir dýpt og rými.

Áhersla er á að prófa sig áfram, skoða hvernig hlutir virka í rými og þróa eigin hugmyndir í gegnum verklega vinnu.

Hæfniviðmið:

  • Vinna með form, liti, rými og áferð í eigin verkum, geta nýtt ólík efni og aðferðir til að skapa verk í tví- og þrívídd.
  • Kanna hvernig litir, ljós og form hafa áhrif á sjónræn áhrif.
  • Getua skapað tilfinningu fyrir dýpt og rými í myndverkum og þrívíddarverkum.
  • Þróa eigin hugmyndir og útfært þær á skapandi hátt.
  • Geta rætt um eigin verk, aðferðir og vinnuferli.
  • Þróar eigin hugmynd og útfært hana í skapandi myndverki.

Námsmat:

Leiðsagnarmat, símat og sjálfsmat þar sem lögð er áhersla á þátttöku, hugmyndavinnu, tilraunir, úrvinnslu og þróun verkefna.


Val C

Er kennt á mánudögum kl. 13:40-14:20

01 Vélritun (Fingrasetning)

Tímafjöldi: 1 kennslustund í viku í 7 vikur
Kennari: Rakel Ýr Gunnlaugsdóttir
Hámarksfjöldi: 18 nemendur

Í þessu vali læra nemendur undirstöðuatriði vélritunar með áherslu á rétta fingrasetningu, nákvæmni og aukinn innsláttarhraða. Nemendur þjálfast í að nota alla fingur við vélritun og tileinka sér rétta staðsetningu fingra á lyklaborðinu.

Unnið verður með fjölbreyttar fingrasetningaræfingar þar sem nemendur æfa sig í að skrifa bókstafi, orð, setningar og lengri texta án þess að horfa á lyklaborðið. Áhersla er lögð á rétta líkamsstöðu, vönduð vinnubrögð og reglulega þjálfun.

Markmið valsins er að nemendur öðlist aukið öryggi, hraða og nákvæmni í vélritun og geti nýtt færnina við verkefnavinnu í skóla og daglegu lífi.

Hæfniviðmið:

Að loknu valinu á nemandi að geta:

  • beitt réttri fingrasetningu við vélritun,
  • þekkt staðsetningu bókstafa og helstu tákna á lyklaborði,
  • notað alla fingur við innslátt texta,
  • vélritað orð, setningar og lengri texta með aukinni nákvæmni,
  • skrifað texta án þess að þurfa stöðugt að horfa á lyklaborðið,
  • aukið innsláttarhraða sinn með reglulegri þjálfun,
  • tileinkað sér rétta líkamsstöðu og góð vinnubrögð við tölvunotkun,
  • fylgst með eigin framförum í hraða og nákvæmni.

Námsmat:

Námsmat byggir á virkni, vinnusemi og framförum nemenda yfir valtímabilið. Lögð er áhersla á rétta fingrasetningu, nákvæmni við innslátt og aukið sjálfstæði í vélritun.

Framfarir nemenda verða meðal annars metnar með reglulegum fingrasetningaræfingum og hraðaprófum þar sem fylgst er með innsláttarhraða og villufjölda.

Áhersla er lögð á einstaklingsbundnar framfarir fremur en samanburð milli nemenda. Horft er til þess hvernig nemendur bæta hraða sinn, nákvæmni og fingrasetningu með reglulegri þjálfun.

 


02 Stærðfræðiaðstoð

Tímafjöldi: 1 kennslustund í viku í 7 vikur
Kennari: Agnes Harpa Hreggviðsdóttir
Hámarksfjöldi: 18 nemendur

Í þessu vali fá nemendur tækifæri til að styrkja grunnfærni sína í stærðfræði og fá aukna aðstoð við það námsefni sem unnið er með hverju sinni í almennum stærðfræðitímum.

Farið verður yfir viðfangsefni vikunnar, rifjuð upp mikilvæg hugtök og reikniaðferðir og unnið með fjölbreytt verkefni sem tengjast námsefninu. Nemendur fá tækifæri til að spyrja spurninga, fá nánari útskýringar og æfa sig í þeim þáttum sem reynast þeim erfiðir.

Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða aðstoð, skýra uppsetningu útreikninga og að nemendur öðlist aukið öryggi og sjálfstæði í stærðfræði.

Markmið valsins er að efla skilning nemenda á námsefni vikunnar, styrkja undirstöðuatriði og hjálpa þeim að fylgja betur eftir í almennu stærðfræðinámi.

Hæfniviðmið:

Að loknu valinu á nemandi að geta:

  • sýnt aukinn skilning á þeim stærðfræðihugtökum og reikniaðferðum sem unnið er með í almennum stærðfræðitímum,
  • beitt viðeigandi reikniaðferðum við lausn fjölbreyttra verkefna,
  • sett stærðfræðidæmi upp á skýran hátt og sýnt útreikninga sína,
  • nýtt leiðbeiningar og útskýringar til að bæta eigin skilning,
  • greint hvaða þætti námsefnisins hann þarf að æfa betur,
  • yfirfarið eigin útreikninga, fundið villur og leiðrétt þær,
  • nýtt fyrri þekkingu við lausn nýrra verkefna,
  • sýnt aukið sjálfstæði og öryggi við lausn stærðfræðiverkefna.

Námsmat:

Námsmat byggir á virkni, vinnusemi og framförum nemenda yfir valtímabilið. Lögð er áhersla á þátttöku í verkefnum, skilning á námsefni vikunnar og vilja til að nýta leiðbeiningar og bæta eigin færni.

Ekki er eingöngu horft til réttra niðurstaðna heldur einnig til framfara, vinnubragða og þess hvernig nemendur nýta aðstoðina til að efla skilning sinn og sjálfstæði í stærðfræði.

 


03 Ritgerðarsmíði

Tímafjöldi: 1 kennslustund í viku í 7 vikur
Kennari: Leifur Viðarsson
Hámarksfjöldi: 18 nemendur

Farið verður í ferlið sem það er að skrifa góða ritgerð. Í þessari valgrein verður bæði farið yfir efnið sjálft, hvað þarf passa upp á varðandi uppsetningu á texta, ritun setninga og uppbyggingu efnisgreina.

Einnig förum við yfir tæknilegar hliðar og útlitið á sjálfri ritgerðinni. Skoðum forsiðugerð, efnisyfirlit og heimildarskrá. Lærum að gera neðanmálsgreinar og tilgang skýringamynda í ritgerðum.

Við skrifum saman stutta ritgerð og setjum hana upp á réttan hátt.

Hæfniviðmið:

Að nemandi geti...

  • haft vald á ólíkum leiðum til að miðla rituðu máli og getur valið þá leið sem hentar tilgangi og lesendum.
  • skrifað texta þar sem efnisatriðum er skipað í röklegt samhengi, góður þráður er á milli efnisgreina og kaflaskipting er skýr.
  • beitt ríkulegu tungutaki, fjölbreyttum orðaforða og málsniði í texta eftir því hver tilgangur skrifanna er, fyrir hvaða viðtakendur er skrifað og hvaða birtingarform er valið.
  • samið fjölbreyttan texta til að tjá hug¬myndir, skoðanir, reynslu og sköpunarkraft, metið og endurbætt með hliðsjón af gagnrýni og hjálpargögnum.
  • beitt helstu atriðum stafsetningar og greinarmerkjasetningar og notað til þess reglur um réttritun og önnur hjálpartæki.

Námsmat

Virkni í tímum og ritgerðin sjálf


Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða spurningar þá vinsamlegast sendið línu á leifur@stekkjaskoli.is