Val í 9. bekk
Tímabil 3: 30. nóvember - 29. janúar
Val A
Er kennt á mánudögum og fimmtudögum kl. 11:10-12:30
01 Heimilisfræði
Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hilmar Guðlaugsson
Hámarksfjöldi: 12 nemendur
Heimilisfræði er ekki valgrein í A vali. Allir fara í heimilisfræði einu sinni í vetur.
Í þessu valfagi er lögð áhersla á eldamennsku og bakstur í bland.
Farið verður yfir meðhöndlun hráefnis og matvæla, umgengni og þrif á helstu áhöldum í eldhúsinu auk almenns frágangs. Auk þess verur farið yfir tengsl næringar og heilsu ásamt ýmsum þáttum tengdum heimilishaldi.
Í vetur munu nemendur nota vefinn til að finna uppskriftir. Velja sér eitthvað til að elda eða baka og taka sig svo upp. Hluti af námsmatinu í heimilisfræði er myndbandið sem nemendur skila af sér.
Hæfniviðmið
- Kynnist helsta handbragði í matreiðslu og bakstri.
- Matreitt einfalda rétti eftir uppskrift og unnið sjálfstætt.
- Farið eftir leiðbeiningum um hreinlæti og þrif tengdu heimilishaldi.
- Gert sér grein fyrir helstu kostnaðarliðum við heimilishald og sé meðvitaður um neytendavernd.
Námsmat
Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, vandvirkni, umgengni og ábyrgð eru metin.

Teenage boy is grating cheese, the girl is peeling garlic, and the mother is washing mushrooms.
Shot with Canon R5
02 Lítill skápur með hillu og glerhurð
Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Þuríður Ingvarsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur
Nemendur smíða lítinn skáp með hillu og hurð úr plexigleri. Hurðin er skorin út og skreytt í laser í Fablab og hjarir prentaðar út í þrívíddarprentara. Ef tími vinnst til tengjum við ljós í skápinn með USB tengi.
Hæfniviðmið:
- Að nemendur kynnist grunnaðferðum og áhöldum greinarinnar.
- Að nemendur kynnist stafrænni tækni og geti notað hana til sköpunar.
- Að nemendur geti unnið eftir ferli og leyft sköpunargleðinni að ráða.
Námsmat:
Leiðsagnar- og símat.

Þessi mynd er er bara sýnimynd,
skáparnir verða ekki nákvæmlega svona.
03 Skólahreysti
Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Magnús Hilmar Viktorsson og Viktorija Riskute
Hámarksfjöldi: 12 nemendur
Skólahreysti er spennandi og krefjandi valgrein fyrir nemendur sem hafa áhuga á hreyfingu, styrk og samvinnu. Í valinu er lögð áhersla á alhliða líkamlega þjálfun þar sem unnið er markvisst að því að bæta styrk, þol, liðleika og snerpu á uppbyggilegan hátt.
Nemendur kynnast æfingum sem byggja á greinum Skólahreysti, sem eru upphífingar, dýfur, armbeygjur, hanga og hindrunarbraut. Jafnframt er lögð áhersla á góða líkamsbeitingu og jákvætt hugarfar.
Valgreinin hentar bæði þeim sem stefna á þátttöku í Skólahreysti og einnig nemendum sem vilja bæta líkamlega færni, sjálfstraust og gleði í hreyfingu. Markmiðið er að efla heilsu, þrautseigju og liðsheild í gegnum skemmtilegt og hvetjandi æfingaumhverfi.
Hæfniviðmið:
- Nemandi getur tekið þátt í fjölbreyttum styrktar- og þolæfingum.
- Nemandi getur framkvæmt grunnæfingar í Skólahreysti.
- Nemandi getur sýnt þrautsegju, sjálfsaga og jákvætt hugarfar við líkamlegar áskoranir.
Námsmat:
Leiðsagnar- og símat.

04 Google sérfræðingur
Tímafjöldi: 2x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Sveinbjörn Jón Ásgrímsson
Hámarksfjöldi: 12 nemendur
Viltu verða sérfræðingur í Google umhverfinu? Við munum læra um öll helstu tól sem eru í boði í Google umhverfinu. Við munum einnig skoða hvernig Gervigreindin virkar, hverjir eru kostir og gallar. Við munum einnig skoða það og rannsaka hver eru framtíðar störf sem munu verða til með tilkomu Gervigreindar. Nemendur nýta Google sites til að setja alla sína vinnu inn á. Einnig munum við vinna með Podcast gerð, sömuleiðis munum við læra að gera myndbönd með okkar tali og tónum.
Hæfniviðmið:
- að ná að tileinka sér góða grunnfærni í Google umhverfinu.
- Geta safnað og sannreynt trúverðugleika upplýsinga
- Geta sett upp vefsíðu sem heldur svo utan um vinnu nemenda
- Öðlast góða yfirsýn í margbreytilegum heimi upplýsinga og upplýsingaóreiðu.
Námsmat:
Leiðsagnar og símat.

Val B
Er kennt á þriðjudögum kl. 12:30-13:50
01 Skákval
Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Sveinbjörn Jón Ásgrímsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur
Vinnum saman, lærum byrjanir, leysum þrautir, teflum innbyrðis - skákmót og fjöltefli.
Hæfniviðmið:
- Námsmarkmið, hæfni- eða matsviðmið að nemendur nái góðum tökum á skáklistinni.
- Læra byrjanir - miðtafl - endatafl
- LEYSA þrautir
- Greina eigin skákir
Námsmat:
Framfarir nemenda metnar - Hér er hver og einn að keppa við sjálfan sig í að verða betri skákmaður.

02 Jólaskraut og leir
Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur
Í desember gera nemendur fjölbreytt jólaskraut og í boði er að skreyta boli/peysur fyrir jólin.
í janúar kynnast nemendur leir sem ekki þarf að brenna og búa til kertastjaka, skálar og fleira.
Hæfniviðmið:
- Að nemandi geti unnið eftir ferli og leyft sköpunargleðinni að ráða.
- Getur unnið með hugmynd frá skissu að fullgerðum hlut.
Námsmat:
Leiðsagnarmat og símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, umgengni og vandvirkni.

03 Hnotubrjótar
Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Úlfur Karlsson
Hámarksfjöldi: 14 nemendur
Við lærum um hönnun, myndsköpun og þrívíða vinnu með því að búa til hnetubrjóta úr einföldum endurnýttum efniviði. Nemendur vinna að því að skapa jólalega hnotubrjóta-veröld.
Verkefnið skiptist í tvo hluta:
A. Litlir hnotubrjótar – einstaklingsverkefni
Hver nemandi hannar sinn eigin hnetubrjót. Nemendur geta valið mismunandi liti, búninga, hatta, hárgreiðslur og svipbrigði.
B. Einn stór sameiginlegur hnetubrjótur
Hér vinna nemendur saman að því að búa til stóran hnetubrjót úr stórum pappahólki.
Stóri hnotubrjóturinn gæti orðið sameiginlegt jólaverkefni sem verður til sýnis í skólanum yfir aðventuna.
Hæfniviðmið:
- Unnið með þrívíð form og byggt upp einfaldar fígúrur úr endurnýttum efniviði.
- Nýtt hugmyndaflug og sköpunargáfu við hönnun eigin hnetubrjóta.
- Kynnst mismunandi efnum, áferðum og aðferðum við myndsköpun.
- Unnið sjálfstætt og í samvinnu við aðra.
- Tileinkað sér að nýta endurnýtanlegan efnivið í skapandi verkefnum.
- Sýnt frumkvæði við lausnaleit og útfærslu eigin hugmynda.
- Gengið vel um efni og áhöld og sýnt ábyrg vinnubrögð.
Námsmat:
Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin. Einnig er horft til vinnusemi, frumkvæðis, vandvirkni, umgengni og ábyrgðar.

Val C
Er kennt á mánudögum kl. 13:40-14:20
01 Skrift
Tímafjöldi: 1 kennslustund í viku í 7 vikur
Kennari: Rakel Ýr Gunnlaugsdóttir
Hámarksfjöldi: 18 nemendur
Í þessu vali fá nemendur tækifæri til að bæta handskrift sína með fjölbreyttum og markvissum æfingum. Áhersla verður lögð á skýra, læsilega og snyrtilega skrift, rétta stafamyndun, bil á milli orða og uppsetningu texta.
Nemendur vinna á sínum hraða að því að þróa eigin rithönd, auka öryggi og þjálfa sig í að skrifa bæði fallega og af nákvæmni.
Að nemendur bæti læsileika, snyrtimennsku og færni í handskrift og öðlist aukið öryggi í skriflegri vinnu.
Námsmat:
Námsmat byggir á virkni, vinnusemi og framförum nemenda yfir valtímabilið.

02 Stærðfræðiaðstoð
Tímafjöldi: 1 kennslustund í viku í 7 vikur
Kennari: Agnes Harpa Hreggviðsdóttir
Hámarksfjöldi: 18 nemendur
Í þessu vali fá nemendur tækifæri til að styrkja grunnfærni sína í stærðfræði og fá aukna aðstoð við það námsefni sem unnið er með hverju sinni í almennum stærðfræðitímum.
Farið verður yfir viðfangsefni vikunnar, rifjuð upp mikilvæg hugtök og reikniaðferðir og unnið með fjölbreytt verkefni sem tengjast námsefninu. Nemendur fá tækifæri til að spyrja spurninga, fá nánari útskýringar og æfa sig í þeim þáttum sem reynast þeim erfiðir.
Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða aðstoð, skýra uppsetningu útreikninga og að nemendur öðlist aukið öryggi og sjálfstæði í stærðfræði.
Markmið valsins er að efla skilning nemenda á námsefni vikunnar, styrkja undirstöðuatriði og hjálpa þeim að fylgja betur eftir í almennu stærðfræðinámi.
Að loknu valinu á nemandi að geta:
- sýnt aukinn skilning á þeim stærðfræðihugtökum og reikniaðferðum sem unnið er með í almennum stærðfræðitímum,
- beitt viðeigandi reikniaðferðum við lausn fjölbreyttra verkefna,
- sett stærðfræðidæmi upp á skýran hátt og sýnt útreikninga sína,
- nýtt leiðbeiningar og útskýringar til að bæta eigin skilning,
- greint hvaða þætti námsefnisins hann þarf að æfa betur,
- yfirfarið eigin útreikninga, fundið villur og leiðrétt þær,
- nýtt fyrri þekkingu við lausn nýrra verkefna,
- sýnt aukið sjálfstæði og öryggi við lausn stærðfræðiverkefna.
Námsmat:
Námsmat byggir á virkni, vinnusemi og framförum nemenda yfir valtímabilið. Lögð er áhersla á þátttöku í verkefnum, skilning á námsefni vikunnar og vilja til að nýta leiðbeiningar og bæta eigin færni.
Ekki er eingöngu horft til réttra niðurstaðna heldur einnig til framfara, vinnubragða og þess hvernig nemendur nýta aðstoðina til að efla skilning sinn og sjálfstæði í stærðfræði.

03 My Restaurant
Tímafjöldi: 1 kennslustund í viku í 7 vikur
Kennari: Leifur Viðarsson
Hámarksfjöldi: 18 nemendur
Þið ætlið að stofna veitingastað í London. Hvað þarf að vera með á hreinu áður en hægt er að opna veitingastað?
Nánari verkefnalýsing verður kynnt í fyrsta tímanum, unnið verður í hópum. Öll vinna mun fara fram á ensku.
Hæfniviðmið:
Að nemandi geti...
- flutt frásögn eða kynningu um undirbúið efni af öryggi og svarað spurningum.
- samið, æft og flutt eigið efni, einn eða í félagi við aðra.
- beitt málinu með eðlilegum framburði, áherslum og hrynjandi.
- tekist á við margs konar aðstæður í almennum samskiptum, miðlað og tekið á móti upplýsingum.
- sýnt góð tök á orðaforða, meginreglum málnotkunar og notað tengiorð við hæfi.
Námsmat
Vinnubrögð og Lokaútkoma

Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða spurningar þá vinsamlegast sendið línu á leifur@stekkjaskoli.is