Val í 5.- 6. bekk
Tímabil 1: 24. ágúst - 9. október
Nemendur í 5.-6. bekk velja fimm sinnum yfir veturinn einhverja valgrein sem tengist áhugasviði.
Ásamt þessum valgreinum verða allir nemendur í hefðbundnum list- og verkgreinum.
Val
Er kennt á miðvikudögum kl. 12:30-13:50
01 Körfubolti
Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Andri Már Þorsteinsson
Hámarksfjöldi: 16 nemendur
Valgreinin byggist á léttum körfuboltaleikjum við körfuboltaspjöldin á skólalóðinni. Nemendur kynnast helstu grunnatriðum körfuboltans með driplæfingum, sendingum og skotum, í gegnum fjölbreytta leiki og æfingar þar sem áhersla er lögð á gleði, samvinnu og hreyfingu fremur en keppni. Kennslan fer fram utandyra og því er mikilvægt að nemendur komi klæddir eftir veðri.
Hæfniviðmið:
- Að nemendur kynnist grunnatriðum körfuboltans og þjálfi þau í gegnum leiki og æfingar.
- Að nemendur upplifi gleði og ánægju af hreyfingu utandyra.
- Að nemendur æfist í samvinnu, tillitssemi og íþróttamannslegri framkomu.
- Að nemendur virði leikreglur og gangi vel um búnað og leiksvæði.
Námsmat:
Leiðsagnarmat og símat þar sem námsmarkmið eru metin ásamt virkni, frumkvæði, samvinnu og framkomu í tímum.

02 Minecraft
Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Leifur Viðarsson
Hámarksfjöldi: 12 nemendur
Minecraft er frábær tölvuleikur sem ýtir undir skapandi hugsun og samvinnu. Í þessari valgrein spilum við Minecraft saman og leysum ýmis verkefni. Nemendur fá tækifæri til að nýta sköpunarkrafta sína saman.
Ég hvet þau ykkar sem ekki hafa valið Minecraft áður að prófa. Það þarf enginn að hafa áhyggjur af því að kunna ekki nóg eða hafa ekki spilað leikinn.
Hæfniviðmið
- Vinna með öðrum og lagt sitt af mörkum í samstarfi við ýmis verkefni.
- Lært af mistökum og geta nýtt það í að betrumbæta vinnu.
- Nota ýmiskonar miðla við nýsköpun, þróun, framsetningu upplýsinga og hugmynda.
- Tekið leiðsögn og uppbyggilegri gagnrýni á jákvæðan hátt.
Námsmat
Símat og leiðsagnarmat þar sem hæfniviðmið eru metin. Einnig er horft til vinnusemi, frumkvæðis, vandvirkni, umgengni og ábyrgðar.

03 Bakstur
Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Elín Ása Magnúsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur
Hér verður lögð áhersla á bakstur.
Hvernig við förum með hráefnið sem við erum að nota, umgengni í eldhúsi, frágangur og þrif.
Námsmarkmið:
- Sýni samnemendum og kennara virðingu og góða framkomu
- Fylgja fyrirmælum og fara eftir uppskriftum
- Tileinki sér góð vinnubrögð og hreinlæti
- Þjálfast í samvinnu sem og sjálfstæðum vinnubrögðum
- Auki áhuga sinn fyrir mismunandi bakstri.
Námsmat:
Leiðsagnarmat og símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, umgengni og vandvirkni.

04 Tölvuleikjahönnun
Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Bryndís Kjartansdóttir
Hámarksfjöldi: 14 nemendur
Í þessu vali kynnast nemendur því hvernig forrit og leikir verða til. Við ætlum að læra einfaldar skipanir til þess að hanna og forrita einfalda tölvuleiki í tvívídd. Forritunarmálið sem við vinnum með heitir Scratch sem er hugbúnaður gerður fyrir börn. Hér verður sköpunargleði og útsjónarsemi í aðalhlutverki.
Hæfniviðmið:
- Þekkja einfaldar skipanir í forritun
- Þekkja nokkur grunnhugtök í tölvunarfræði
- Þjálfa rökhugsun og útsjónarsemi
- Geta hannað einfaldan leik
Námsmat:
Símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði og vandvirkni.

05 Útikennsla og ýmislegt smálegt
Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Hildur Þorkelsdóttir
Hámarksfjöldi: 16 nemendur
Nemendur kynnast því að kveikja upp í eldstæði og baka lummur, hita kakó, súpur og fleira sem við getum gert á eldstæðinu. Þegar ekki eru aðstæður til að kveikja upp verður farið í göngutúr um nágrenni skólans og farið á leikvelli. Mikilvægt er að nemendur klæði sig eftir veðri.
Hæfniviðmið:
- að nemendur sýni ábyrga og örugga umgengni við vinnu og frágang á vinnusvæði.
- að nemendur geti tekið tillit til annarra í í hópavinnu og sýnt frumkvæði.
- að nemendur geti unnið á skipulagðan hátt.
Námsmat:
Hvernig verður námsmatið?
Leiðsagnarmat og símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt vinnusemi, frumkvæði, umgengni og vandvirkni.

06 Frisbígolf
Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Heiðar Pétur Halldórsson
Hámarksfjöldi: 16 nemendur
Við munum fara í frisbígolf á frisbígolfsvellinum hér á Selfossi. Við förum hjólandi frá skólanum, því er mikilvægt að nemendur mæti á hjóli í skólann. Þau sem eiga frisbígolfsdiska mega endilega taka þá með sér, en kennarinn verður líka með diska fyrir þá sem koma ekki með sína.
Hæfniviðmið:
- Að nemendur kynnist frisbígolfi.
- Læri helstu grip og köst í frisbí.
- Sýni sjálfstæði og taki ábyrgan þátt í útivist.
Námsmat
Leiðsagnarmat og símat.

07 Strum & Drum (Strömm & Drömm)
Tímafjöldi: 1x2 kennslustundir í viku í 7 vikur
Kennari: Guðný Lára Gunnarsdóttir
Hámarksfjöldi: 12 nemendur
Langar þig að spila á ukulele, tromma, prófa skemmtilega takta og spila tónlist með öðrum?
Í þessari smiðju ætlum við að vinna með ukulele, slagverk, takt, söng og samspil á skemmtilegan og afslappaðan hátt. Við lærum lög sem gaman er að spila, prófum mismunandi takta og grooves og búum jafnvel til okkar eigin tónlist.
Það skiptir engu máli hvort þú ert algjör byrjandi eða hefur spilað áður – við byrjum þar sem þú ert stödd/staddur og byggjum ofan á það.
Þú færð tækifæri til að prófa mismunandi hljóðfæri, spila með hópnum og finna hvað hentar þér best.
Engin reynsla nauðsynleg – bara áhugi á tónlist og löngun til að prófa!
Hæfniviðmið:
- Nemandi getur leikið einfaldar laglínur og hljóma á hljóðfæri í samspili.
- Nemandi getur leikið hryn á takthljóðfæri í samspili.
- Nemandi getur tekið þátt í tónlistarflutningi og samspili með öðrum.
- Nemandi getur spunnið einfalt stef eða stutt rytmamynstur í samspili.
Námsmat:
Leiðsagnarmat og símat þar sem hæfniviðmið eru metin ásamt virkni og þátttöku nemenda.

Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða spurningar þá vinsamlegast sendið línu á leifur@stekkjaskoli.is