Val í Stekkjaskóla

Í Stekkjaskóla leggjum við mikla áherslu á fjölbreytt nám og fjölbreytta kennslu. Með því að bjóða upp á val frá 5. bekk viljum við efla nemendalýðræði og áhugasviðsnám. Markmiðið er líka að virkja nemendur á því sviði sem þau hafa áhuga á, að vinna saman þvert á árganga og jafnframt að kynna fyrir þeim nýjar og fjölbreyttar greinar.

  • Valinu í Stekkjaskóla er skipt í tvennt.
    • 5. og 6. bekkur saman = tvær kennslustundir á viku
    • 7. og 8. bekkur saman = sex kennslustundir á viku
  • 5. og 6. bekkur eru einnig í smiðjum sem inniheldur helstu list- og verkgreinar.
  • Hjá 7. og 8. bekk er valinu skipt upp í tvo flokka. Val-A nær til fjögurra kennslustunda á viku. Val-B nær til tveggja kennslustunda á viku. List- og verkgreinakennsla fer fram að mestu í Val-A hlutanum.
  • Það verða fimm tímabil í vetur þar sem nemendur geta valið. Nemendur í 5. árgangi fá að velja fmm mismunandi valgreinar yfir skólaveturinn. Nemendur í 6. og 7. árgangi fá að velja 10 mismunandi valgreinar yfir skólaveturinn.

Hugmynd að uppsetningu er unnin eftir fyrirmynd Húsaskóla í Reykjavík.
Ef einhverjar spurningar vakna þá hafið samband við Leif Viðarsson: leifur@stekkjaskoli.is

Valgreinatímabil

Val 1 - Tímabil 25. ágúst - 10. október
5.-6. bekkur.         7.-8. bekkur

Val 2 - Tímabil 13. október - 28. nóvember.
5.-6. bekkur.         7.-8. bekkur

Val 3 - Tímabil 1. desember - 30. janúar.
5.-6. bekkur.         7.-8. bekkur

Val 4 - Tímabil 2. febrúar - 27. mars.
5.-6. bekkur.         7.-8. bekkur

Val 5 - Tímabil 6. apríl - 5. júní.
5.-6. bekkur.         7.-8. bekkur