Nemendur í Stekkjaskóla stóðu sig frábærlega vel í Stóru upplestrarkeppninni – Til hamingju
Lokakeppni Stóru upplestrakeppninnar í Árborg var haldin í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri í skólahúsnæðinu á Stokkseyri fimmtudaginn 19. mars síðastliðinn. Keppendur voru 11 nemendur úr 7. árgöngum grunnskólanna í Árborg. Þrír nemendur kepptu fyrir hönd Stekkjaskóla. Það voru þau Katla Margrét Ægisdóttir, Rúnar Baldvin Felixson og Vigdís Birta Veigarsdóttir. Öll stóðu þau sig […]
Lausar stöður í Stekkjaskóla
Stekkjaskóli fer stækkandi og nú vantar fleiri öfluga og áhugasama starfsmenn í hópinn fyrir næsta skólaár. Okkur vantar starfsmenn í eftirfarandi stöður sem eru með umsóknarfrest til og með 8. apríl: Skólafélagsráðgjafi í 100% stöðugildi Skrifstofustjóri í 80-100% stöðugildi Umsjónarkennara á miðstig í 100% stöðugildi Náttúrufræðikennara í 100% stöðugildi Einnig vantar okkur starfsmenn í eftirfarandi […]
Skertur dagur fimmtudaginn 12. mars – Skólaþróunardagur
Fimmtudaginn 12. mars er skertur skóladagur hjá nemendum skv. skóladagatali. Þennan dag er skólaþróunardagur kennara. Unnið verður með nýja aðalnámskrá grunnskóla. Skóladeginum lýkur kl. 11:00, en nemendur í 1.-4. bekk sem fara í frístund borða kl. 11:00 og verða í skipulögðu frístundastarfi á vegum skólans þar til frístundaþjónustan tekur við kl. 13:10. Því mun skertur dagur ekki hafa mikil áhrif hjá börnum […]
Matsferill, stöðu- og framvindupróf í mars
Í mars verða stöðu- og framvindupróf lögð fyrir í skólum landsins í 4. – 8. bekk. Matsferill er nýtt námsmatskerfi sem dregur upp heildstæða mynd af námslegri stöðu og framförum nemenda reglulega yfir skólagönguna. Matsferilisprófin eru stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði. Prófin verða lögð fyrir dagana 2. – 27. mars 2026 í Stekkjaskóla. […]
Litrík, skemmtileg og fróðleg ,,Hinsegin vika“, eitthvað fyrir öll!
Hinsegin vika Árborgar verður haldin hátíðleg í fimmta sinn, dagana 2. – 7. mars næstkomandi. Markmið Hinsegin viku Árborgar er að efla fræðslu um hinsegin málefni og stuðla að auknum skilningi í samfélaginu. Jafnframt er lögð áhersla á að auka sýnileika hinsegin fólks og vekja athygli á mikilvægi öryggis, jafnréttis og virðingar. Með vikunni viljum við einnig […]