Hér fyrir neðan er póstur frá Önnu Kristínu skólahjúkrunarfræðingi er varðar lús, njálg og kláðamaur. Gott að lesa til enda.
Kæru foreldrar og forráðamenn nemenda í Stekkjaskóla,
Nú í upphafi skólaárs vil ég minna á nokkra síður skemmtilega gesti sem þarf að vera á varðbergi gagnvart. Þetta eru tilkynningarskyldir sjúkdómar svo minni á að senda póst eða láta vita með öðrum leiðum ef kemur upp tilvik á ykkar heimili.
Lús getur skotið upp kollinum í hvaða höfði sem er. Mikilvægt er að fylgjast vel með hári barnanna og besta forvörnin er vikuleg kembing. Verði vart við lús í skólanum í vetur verða forsjáraðilar látnir vita svo þeir geti brugðist við. Frekari upplýsingar um höfuðlús má finna hér: https://www.heilsuvera.is/markhopar/sjukdomar-fravik-einkenni/hofudlus/
Njálgur (e. pinworm) er lítill, hvítur hringormur sem er algeng sýking hjá fólki á öllum aldri en algengastur hjá börnum. Njálgssmit er oft einkennalaust (hjá einum af hverjum þremur) en kláði við endaþarm er helsta einkennið. Algengasta smitleiðin er með fingrum og upp í munn, því skiptir höfuðmáli að brýna fyrir börnunum mikilvægi handþvotts og halda nöglum vel snyrtum og stuttum. Ef kemur upp njálgssmit er mikilvægt að meðhöndla alla fjölskylduna samtímis með lyfjum. Barnið má koma aftur í skólann daginn eftir að búið er að meðhöndla með lyfjum. Athugið að endurtaka þarf meðferðina 2 vikur síðar. Bendi á fylgiskjalið fyrir frekari upplýsingar um njálg og einnig á heilsuveru: https://www.heilsuvera.is/markhopar/sjukdomar-fravik-einkenni/njalgur/
Ef upp kemur kláðamaur þarf einnig að láta vita af því. Fyrir frekari upplýsingar um kláðamaur bendi ég á þessa síðu: https://www.heilsuvera.is/markhopar/sjukdomar-fravik-einkenni/kladamaur/
Þá vil ég einnig nýta tækifærið til að benda á þessa síðu á heilsuveru þar sem má finna upptalningu á algengum veikindum barna, bæði ráðleggingar varðandi meðferð og einnig tímaviðmið varðandi hvenær barn má mæta aftur til skóla eftir veikindin. https://www.heilsuvera.is/markhopar/sjukdomar-fravik-einkenni/veikindi-barna/
Hvet ykkur til að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.
Bestu kveðjur,
Anna Kristín
Hjúkrunarfræðingur í Stekkjaskóla
