Haustþing Kennarfélags Suðurlands – Skertur kennsludagur fimmtudaginn 1. október og starfsdagur 2. október

Skertur dagur – fimmtudaginn 1. október
Haustþing Kennarafélags Suðurlands hefst á Flúðum eftir hádegi og því verður skertur kennsludagur í skólanum.

Skóla lýkur hjá öllum kl. 13:00.
Nemendur í frístund fara eftir skóla í hefðbundið frístundastarf. 

Nemendur sem taka „sveitarútuna“ taka hana heim um 13:10 þegar hún hefur sótt nemendur í hina skólana. 

Föstudaginn 2. október er starfsdagur í skólanum og því frí hjá nemendum.  

Á þinginu verða ýmsir fyrirlestrar og vinnustofur á dagskrá um menntamál. Má þar nefna umfjöllun um gervigreind og nám, vinnustofa um útinám, hvernig hægt er að efla gæði kennslu, fræðsla um fordóma og hatursorðræðu, fjallað um raddheilsu kennara, málþroskaröskun, jákvæða sálfræði og fræðslutorg um kynjafræði og kynjafræðikennslu.  

Þess má geta að á föstudeginum  verða þrír kennarar Stekkjaskóla með kynningar undir liðnum Líttu þér nær – menntaspjall. Elísabet fjallar um Classroom Screen, Rakel Ýr kynnir nýjar stærðfræðibækur sem hún hefur samið og MMS er að gefa út og Inga Lára kynnir teymiskennslu á yngsta stigi. 

Stuðningsfulltrúar og aðrir starfsmenn sinna ýmsum verkefnum í Stekkjaskóla. 

Sjá bréf sem fór heim til forráðamanna í dag.

Bestu kveðjur, starfsfólk Stekkjaskóla