Þriðjudaginn 22. september verður starfsdagur kennara og uppeldismenntaðra frá kl. 11:00. Dagurinn verður tileinkaður vinnu við námskrár og langtímaáætlanir. Einnig verða ÍSAT starfsmenn á MEMM-námskeiði í Vallaskóla þennan dag. Sjá hér.
Skóladeginum lýkur því kl. 11:00, nema hjá nemendum í 1.–4. bekk sem eru skráðir í frístund. Þeir verða í skipulögðu frístundastarfi á vegum skólans í umsjá stuðningsfulltrúa þar til frístundaþjónustan tekur við kl. 13:10.
Aðrir nemendur borða ekki hádegismat í skólanum og fara heim strax að loknum skóla kl. 11:00.
Við biðjum foreldra og forsjáraðila að gera viðeigandi ráðstafanir vegna heimferðar þeirra nemenda sem ekki fara í frístund.
Skólarúta GTS sækir nemendur sem nýta hana um kl. 11:05
Með bestu kveðju,
Starfsfólk Stekkjaskóla