Nemendur í vettvangsferðir mánudaginn 19. desember
Mánudaginn 19. desember fara allir nemendur og starfsmenn í skemmtilegar jólaferðir. 1. og 2. bekkur fara saman í ævintýraskóg og 3. – 5. bekkur fara saman á skauta. Báðir hóparnir fara með rútu. Það er mjög mikilvægt að börnin komi klædd eftir veðri því nemendur í 1. – og 2. bekk verða úti allan tímann […]
Fréttabréf Stekkjaskóla
Þriðja fréttabréf Stekkjaskóla skólaárið 2022-2023 var sent á forráðamenn þann 1. desember. Í þessu fréttabréfi koma fram upplýsingar um flutninga í janúar, öryggisatriði er varða hjól og endurskinsmerki, hvað er framundan í desember ásamt skemmtilegum myndum úr skólastarfinu okkar. Sjá fréttabréfið hér.
Nemendur í 1.-2. bekk fengu endurskinsvesti gefins
Nemendur í 1. og 2. bekk í Stekkjaskóla fengu góða gjöf frá foreldrafélagi Stekkjaskóla og Sjóvá þriðjudaginn 22. nóvember síðastliðinn. Sólveig Ingadóttir kom sem fulltrúi frá foreldrafélaginu og í samvinnu við lögregluna fengu nemendur merkt endurskinsvesti til eignar. Ívar Bjarki og Magnús frá lögreglunni á Suðurlandi komu til okkar, ræddu við börnin um umferðaröryggi og […]
Laus störf – Stuðningsfulltrúar óskast
Vilt þú slást í hópinn með okkur í Stekkjaskóla? Óskað er eftir tveimur stuðningsfulltrúum í 75% stöðuhlutfall frá og með 1. janúar eða eftir samkomulagi. Markmið starfsins er að auka sjálfstæði og færni nemenda námslega, félagslega og í daglegum athöfnum. Leitað er eftir áhugasömum og samviskusömum starfsmönnum. Sótt er um störfin í gegnum ráðningarvefinn alfred.is, […]
Baráttudagur gegn einelti
Þriðjudaginn 8.nóvember var Baráttudagur gegn einelti. Í öllum árgöngum voru unnin verkefni í tilefni dagsins og dreifðist sú vinna yfir alla daga vikunnar. Rætt var um einelti og hvaða afleiðingar það getur haft á þá sem fyrir því verða. Nokkrir árgangar unnu með útklipptan líkama og hvaða áhrif ljót orð hafa á hann. Líkaminn var […]