Innritun í grunnskóla skólaárið 2023-2024
Innritun barna sem eru fædd árið 2017 og eiga að hefja skólagöngu í Árborg haustið 2023 fer fram á arborg.is/Mín Árborg til 20. febrúar næstkomandi. Skráning fyrir skólagöngu barna í Sveitarfélaginu Árborg á Mín Árborg Einnig er hægt að skrá börnin í mötuneyti á Mín Árborg. Skráning í frístund fer fram á skráningarvef Völu. Upplýsingar um skólahverfi hvers […]
100 daga hátíð
Um daginn hélt 1. HIJ upp á það að liðnir voru 100 dagar frá því að skólinn byrjaði. Hér má sjá frétt frá umsjónarkennurum um það sem gert var í tilefni dagsins: Við héldum upp á það að við erum búin að vera 100 daga í skólanum. Það var mjög gaman og við fengum að […]
Appelsínugul veðurviðvörun í fyrramálið
Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi frá 06:00 til 09:30 í fyrramálið, þriðjudaginn 7. febrúar. Forráðamenn þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum í skóla eða frístundastarf. Við appelsínugula veðurviðvörun er meiri þörf á að fylgja börnum í skólann. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd. Forsjáraðilar þurfa […]
Matráður óskast
Stekkjaskóli óskar eftir að ráða matráð í 50-80% starfshlutfall frá og með 1. mars eða eftir nánara samkomulagi. Leitað er að metnaðarfullum, barngóðum og jákvæðum einstaklingi sem er staðgengill matreiðslumanns. Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2023. Sjá nánar hér.
Starfsdagur 2. febrúar og foreldradagur 3. febrúar
Starfsdagur verður í Stekkjaskóla fimmtudaginn 2. febrúar. Þennan dag eru starfsmenn í ýmsum undirbúningi og eru umsjónarkennarar að undirbúa foreldraviðtöl. Einhver foreldraviðtöl verða einnig þennan dag. Föstudaginn 3. febrúar er foreldradagur þar sem umsjónarkennarar hitta nemendur ásamt forráðamönnum. Umsjónarkennarar sendu upplýsingar um viðtölin í vikubréfum sínum síðastliðinn föstudag. Framkvæmdir við nýbyggingu skólans eru langt komnar. […]