Appelsínugul veðurviðvörun í fyrramálið
Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi frá 06:00 til 09:30 í fyrramálið, þriðjudaginn 7. febrúar. Forráðamenn þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum í skóla eða frístundastarf. Við appelsínugula veðurviðvörun er meiri þörf á að fylgja börnum í skólann. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd. Forsjáraðilar þurfa …
Matráður óskast
Stekkjaskóli óskar eftir að ráða matráð í 50-80% starfshlutfall frá og með 1. mars eða eftir nánara samkomulagi. Leitað er að metnaðarfullum, barngóðum og jákvæðum einstaklingi sem er staðgengill matreiðslumanns. Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2023. Sjá nánar hér.
Starfsdagur 2. febrúar og foreldradagur 3. febrúar
Starfsdagur verður í Stekkjaskóla fimmtudaginn 2. febrúar. Þennan dag eru starfsmenn í ýmsum undirbúningi og eru umsjónarkennarar að undirbúa foreldraviðtöl. Einhver foreldraviðtöl verða einnig þennan dag. Föstudaginn 3. febrúar er foreldradagur þar sem umsjónarkennarar hitta nemendur ásamt forráðamönnum. Umsjónarkennarar sendu upplýsingar um viðtölin í vikubréfum sínum síðastliðinn föstudag. Framkvæmdir við nýbyggingu skólans eru langt komnar. …
Starfsdagur 2. febrúar og foreldradagur 3. febrúar Read More »
Skólastarf með óbreyttum hætti í dag – hugsanlegar tafir á skólaakstri úr dreifbýlinu
Veðrið á Selfossi er að mestu gengið niður. Skólastarf verður með óbreyttum hætti í dag þriðjudaginn 31. janúar. Mögulegar verða einhverjar tafir á skólaakstri úr dreifbýlinu nú í morgunsárið en stefnt er á að koma öllum nemendum í skóla. (Birt þriðjudaginn 31. janúar kl. 7:20)
Úr vikubréfum umsjónarkennara
Í hverri viku senda umsjónarkennarar fréttabréf til forráðamanna. Hér eru nokkrir punktar úr vikubréfinunum og myndir fyrir neðan. 1. árgangur Íslenska: Þessa vikuna voru lagðir inn stafirnir Éé og Hh og unnið með þá á margvíslegan hátt. Unnið var með stafinn Éé á þann hátt að börninn skrifuðu hvað þau heita og hvað þau ætla …