Fréttasafn

Fréttir frá Stekkjaskóla

Aðalfundur foreldrafélagsins

9 september, 2023

Aðalfundur Foreldrafélags Stekkjaskóla verður haldinn þriðjudaginn 12. september kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn á kaffistofu starfsmanna á 2. hæð. Vonast er eftir góðri mætingu.    

Ólympíuhlaup ÍSÍ

6 september, 2023

Nemendur og starfsmenn Stekkjaskóla ætla að taka þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ áður Norræna skólahlaupið fimmtudaginn 7. september. Eitt af markmiðum hlaupsins er að hvetja nemendur til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Hlaupið …

Ólympíuhlaup ÍSÍ Read More »

Kynningafundir fyrir forráðamenn framundan

5 september, 2023

Á næstu dögum verða fræðslu- og kynningarfundir fyrir forráðamenn nemenda. Fundirnir fyrir forráðamenn nemenda í 1. og 5. bekk eru á vegum umsjónarkennara, skólastjórnenda og skólaþjónustu Árborgar. Aðrir fundir sjá umsjónarkennarar um og eru á skólatíma. Fyrsti fundurinn verður næstkomandi …

Kynningafundir fyrir forráðamenn framundan Read More »

Áformsbækur Stekkjaskóla

3 september, 2023

Við í Stekkjaskóla viljum stuðla að einstaklingsmiðuðu námi og kenna nemendum okkar að setja sér námsmarkmið út frá hæfniviðmiðum sem er unnið með hverju sinni. Með þessum bókum stuðlum við að því að nemendur setji sér markmið í samráði við …

Áformsbækur Stekkjaskóla Read More »

Skólasetning Stekkjaskóla

3 september, 2023

Stekkjaskóli var settur í þriðja sinn miðvikudaginn 23. ágúst. Það voru glaðir nemendur sem mættu í skólann að loknu sumarleyfi og hittu vini sína, bekkjarfélaga og starfsmenn. Í skólasetningaræðu skólastjóra, Hilmars Björgvinssonar, kom fram að í byrjun skólaársins hefja 224 …

Skólasetning Stekkjaskóla Read More »

Matseðillinn í september

3 september, 2023

Hér má sjá matseðill septembermánaðar. Framvegis verður hann að finna í flýtihnappnum hér fyrir ofan og einnig neðst á heimasíðunni.  

Val á miðstigi

24 ágúst, 2023

Í vetur ætlar Stekkjaskóli að bjóða upp á valgreinar á miðstigi. Þar verður nemendum í 5. og 6. árgangi kennt saman. Við stefnum á að bjóða upp á fjölbreyttar og skemmtilegar greinar þannig að allir geti fundið eitthvað sem hentar. …

Val á miðstigi Read More »

Stekkur til framtíðar – skýrsla

22 ágúst, 2023

Stekkjaskóli fékk styrk úr Sprotasjóði á vormánuðum 2021 til að vinna að þróunarverkefninu Stekkur til framtíðar – Að byggja upp lærdómssamfélag í nýjum grunnskóla.  Hér má sjá skýrslu sem verkefnastjórn skilaði til Sprotasjóðs í júní.

Skólasetning Stekkjaskóla 23. ágúst

10 ágúst, 2023

Skólasetning Stekkjaskóla fer fram miðvikudaginn 23. ágúst 2023 kl. 9:00 í sal skólans. Eftir stutta samkomu á sal munu nemendur hitta umsjónarkennara. Nemendur í 2.-6. bekk, f. 2016 – 2012 mæta kl. 9:00 Nemendur og forráðamenn 1. bekkjar (f. 2017) …

Skólasetning Stekkjaskóla 23. ágúst Read More »

Fréttabréf foreldrafélagsins

10 júní, 2023

Stjórn foreldrafélags Stekkjaskóla hefur staðið fyrir góðu starfi á nýliðnu skólaári.  Foreldrafélagið hélt m.a. fræðsluerindi um mikilvægi hreyfingar úti í náttúrunni, aðstoðaði við vorhátíð skólans og hélt utan um tengslastarfið sem er gífurlega mikilvægt. Hér má sjá nýtt fréttabréf foreldrafélagsins …

Fréttabréf foreldrafélagsins Read More »

Skólaslit miðvikudaginn 7. júní kl. 9:00

5 júní, 2023

Skólaslit Stekkjaskóla verða í matsal Stekkjaskóla kl. 9:00 miðvikudaginn 7. júní fyrir alla nemendur skólans. Foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomnir.

Vorhátíð þriðjudaginn 6. júní

4 júní, 2023

Þriðjudaginn 6. júní verður vorhátíð Stekkjaskóla. Skóladagurinn byrjar að venju kl. 8:10 í heimastofum nemenda. Kl. 8:40 – 11:10 –   Nemendur fara á milli stöðva, í leiki og fleira fjör. Kl. 11:10 -12:00 –  Foreldrafélagið býður upp á dagskrá. Slökkvilið, …

Vorhátíð þriðjudaginn 6. júní Read More »