Skertur dagur fimmtudaginn 21. nóvember

Fimmtudaginn 21. nóvember er skertur skóladagur hjá nemendum skv. skóladagatali.     Hefðbundnum skóladegi lýkur þá kl. 12:00.  Þennan dag eru grunnskólakennarar í Árborg og aðrir uppeldismenntaðir með sameiginlega dagskrá í Stekkjaskóla eftir hádegi. Ásta Kristánsdóttir hjá KVAN verður með fyrirlestur um bekkjarstjórnun og foreldrasamskipti.  Í kjölfarið verða fundir í árgangateymum og fagteymum þvert á skólana.   

Skertur dagur fimmtudaginn 21. nóvember Read More »

Bókamessa í Stekkjaskóla

Í dag 16. nóvember er Dagur íslenskrar tungu á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar skálds (1807-1845). Í gær var haldið upp á daginn í Stekkjaskóla með okkar árlegu bókamessu.  Markmið bókamessunnar er að vera með lestrarhvetjandi hátíð, fagna íslenska tungumálinu og gefa gömlum bókum nýtt líf.   Síðustu daga komu nemendur með bók eða bækur í skólann

Bókamessa í Stekkjaskóla Read More »

Starfsdagur og foreldraviðtöl 4.-5. nóvember

Samkvæmt skóladagatali skólans er starfsdagur mánudaginn 4. nóvember og þriðjudaginn 5. nóvember eru foreldra- og nemendaviðtöl. Mánudaginn 4. nóvember er starfsdagur og því enginn skóli. Frístund verður þó opin fyrir þau börn sem eru skráð. Sjá hér. Þennan dag verða starfsmenn í ýmsum undirbúningi s.s. fyrir foreldradaginn sem verður daginn eftir. Einhver foreldraviðtöl verða þó

Starfsdagur og foreldraviðtöl 4.-5. nóvember Read More »

Haustþing kennara

Eins og fram hefur komið í vikubréfum kennara og á skóladagatali er starfsdagur næstkomandi föstudag, 27. september. Þennan dag eru kennarar og annað uppeldismenntað starfsfólk á Haustþingi kennarafélags Suðurlands. Haustþingið hefst á fimmtudaginn eftir hádegi. Á fimtudaginn lýkur skóla hjá öllum kl:13:00 í stað 13:10. Nemendur á frístund ljúka deginum sínum hér kl:13 og fara

Haustþing kennara Read More »

Skertur dagur þriðjudaginn 17. september

Þriðjudaginn 17. september er skertur skóladagur hjá nemendum skv. skóladagatali. Hefðbundnum skóladegi lýkur þá kl. 12:00.  Kennarar og aðrir uppeldismenntaðir starfsmenn í grunnskólum Árborgar vinna að ýmsum faglegum undirbúningi eftir hádegi. Dagskráin í Stekkjaskóla verður tileinkuð teymissáttmálum og skólanámskrárgerð.   Allir nemendur fara heim kl. 12:00 nema þeir sem eru í frístund.  Stuðningsfulltrúar verða með

Skertur dagur þriðjudaginn 17. september Read More »

Aðalfundur foreldrafélags Stekkjaskóla

Aðalfundur foreldrafélags Stekkjaskóla verður haldinn á kaffistofu starfsfólks skólans á þriðjudaginn 10. september, kl. 20:00. Fyrir liggur að ekki muni allir núverandi stjórnarmeðlimir gefa kost á sér til endurkjörs og hvetjum við því áhugasama til að mæta á fundinn og gefa kost á sér til starfans. Við hvetjum einnig þá sem ekki hafa áhuga á

Aðalfundur foreldrafélags Stekkjaskóla Read More »

Fræðslu- og kynningarfundur fyrir forráðamenn 5. bekkjar

Þriðjudaginn 10. september kl. 17:00 verður fræðslu- og kynningarfundur fyrir forráðamenn 5. bekkjar. Fundurinn verður haldinn á heimasvæði árgangsins. Það er einlæg ósk að a.m.k. eitt foreldri komi frá hverju barni. Fyrirlesturinn frá fjölskyldusviði heitir Barnið mitt, sjálfsmynd og áskoranir nútímans og síðan verða umsjónarkennarar barnanna með námsefniskynningu.

Fræðslu- og kynningarfundur fyrir forráðamenn 5. bekkjar Read More »