Mánudaginn 8. júní og fram á miðvikudaginn 10. júní eru vordagar. Ýmsar ferðir og viðburðir eru í gangi í öllum árgöngum. Hér er yfirlit yfir það sem er á döfinni en jafnframt hafa umsjónarkennarar sent nánari skilaboð heim.
Vorhátíð Stekkjaskóla
Miðvikudagurinn 10. júní, er síðasti kennsludagur í skólanum með vorhátíð.
Dagskráin hefst kl. 8:10 á heimasvæðum árganganna, síðan verður farið í ratleik og kl. 11:00 hefst skemmtun í boði foreldrafélagsins. Í framhaldinu verða grillaðar pylsur.
Foreldrar og forráðamenn eru velkomnir um kl. 11:00.
Skólaslit
Fimmtudaginn 11. júní eru skólaslit í matsal skólans.
- 1.-4. bekkur kl. 9:00
- 5.- 8. bekkur kl. 10:00
Skólaslitaræða, tónlistaratriði frá nemendum og í framhaldinu verður vitnisburður afhentur og kveðjustund á heimasvæðum með umsjónarkennurum og öðrum starfsmönnum.
Sjá nánar bréf sem fór heim fyrir helgi.

