Vorskóli fyrir tilvonandi 1. bekkinga 3. júní

Miðvikudaginn 3. júní kl. 14:30-15:30 verður vorskóli fyrir tilvonandi 1. bekkinga.  Nemendur mæta ásamt foreldrum sínum í hátíðarsal skólans þar stjórnendur og kennarar taka á móti þeim. Síðan fara nemendur með kennurum sínum í stofu og vinna skemmtileg verkefni á meðan stjórnendur ræða við foreldra.