Dagana 28. – 30. apríl eru þemadagar hjá okkur í Stekkjaskóla. Þá daga er ekki hefðbundið skólastarf heldur uppbrot á starfinu.
Í ár ætlar Stekkjaskóli að breytast í Stekkjabæ þar sem nemendur skólans hafa valið sér vinnustað til að vera á þessa þrjá daga. Markmið Stekkjabæjar er að líkja eftir lýðræðissamfélagi þar sem nemendur leika aðalhlutverkið. Hugmyndin að Stekkjabæ er fengin frá Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri þar sem sambærilegt verkefni, sem kallast Barnabær, hefur verið í þróun frá árinu 2011. Verkefnið er hugsað til að efla foreldrasamstarf við skólann, auka ánægju nemenda og kennara og efla fjölbreytileikann í skólastarfinu.
Þemadagarnir gefa nemendum innsýn inn í atvinnulífið og þátttöku í samfélaginu. Nemendur hafa sótt um starf með aðstoð forráðamanna sem þeir völdu eftir áhugasviði og hæfni. Þeim verður úthlutað starf þar sem þau vinna í 3 daga (ásamt öðru uppbroti). Á lokadeginum, fimmtudaginn 30. apríl, eru nemendum borguð út laun fyrir vinnuframlag í formi inneignarkorts sem þau geta nota til að kaupa varning eða þjónustu innan bæjarins. Á lokadeginum sem verður líka markaðsdagur (30. apríl) er foreldrum og nærsamfélagi boðið að koma og skoða og versla í Stekkjabæ fyrir Stekkjakrónur.
Hér má sjá bækling með þeim stöðvum og störfum sem í boði voru.
